Gufustrókar hækka í 12.000 fet í logninu 25. mars 2010 05:30 Mynd/Jónella Sigurjónsdóttir.
Gufustrókar úr eldstöðvunum á Fimmvörðuhálsi hækkuðu verulega þegar líða tók á daginn í gær og vind lægði. Áhöfn TF-SIFJAR, eftirlitsflugvélar Landhelgisgæslunnar, telur gufustrókana hafa náð um tólf þúsund feta hæð, en hún flaug yfir svæðið um kvöldmatarleytið. Þá var hægur vindur og strókarnir fuku lítt. Vísindamenn telja kvikuna, sem er svipuð kvikunni er kom upp í Surtseyjargosinu, vera milli 1.150 og 1.200 stiga heita. Í viðtali við Stöð tvö í gær sagði Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur að hraunið gæti náð til Þórsmerkur á næstu dögum. Nú sjást fjórir til fimm gosstrókar á svæðinu, en voru allt að tólf fyrstu dagana. Mælingar gefa til kynna að þrýstingur í eldstöðinni sé óbreyttur og ekkert hefur dregið úr rennsli. Því er enn talin hætta á að gosið fari undir jökul og skapi þannig flóð. Því er umferð um Eyjafjallajökul og Þórsmörk bönnuð. Ökutæki mega heldur ekki fara upp Fimmvörðuháls vegna aurbleytu. Sú leið er hins vegar opin göngugörpum, sem fara upp á eigin ábyrgð. klemens@frettabladid.is
Eldgos og jarðhræringar Gos á Fimmvörðuhálsi Mest lesið Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Innlent Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Erlent Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Innlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Erlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Játaði nokkrum ákæruliðum en neitaði nauðgununum Erlent Fleiri fréttir Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Sjá meira