Grindvíkingar enduðu sigurgöngu KR-inga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. nóvember 2010 20:38 Páll Axel Sævarsson skoraði 15 stig í kvöld.
Grindavík komst aftur upp í 2. sæti Iceland Express deildar karla eftir tíu stiga sigur á KR, 87-77, í Röstinni í Grindavík í kvöld. KR hafði unnið þrjá síðustu leiki sína í deildinni en tókst ekki að vera fyrsta útiliðið til að vinna í Grindavík. Bæði lið áttu mjöguleika á því að ná öðru sætinu með sigri. Ómar Sævarsson var mjög öflugur í liði Grindavíkur í kvöld með 19 stig og 11 fráköst en Jeremy Kelly var stigahæstur með 20 stig. Páll Axel Vilbergsson skoraði 15 stig og Ryan Pettinella var með 10 stig og 11 fráköst. Marcus Walker skoraði 19 stig fyrir KR, Pavel Ermolinskij var með 14 stig, 11 fráköst og 7 stoðsendingar og Hreggviður Magnússon skoraði 12 stig. Grindvíkingar voru með frumkvæðið framan af leik, komust í 5-2, 12-8 og 14-10 en KR-ingar skoruðu þá átta stig í röð og voru á endanum með tveggja stiga forustu eftir fyrsta leikhluta, 23-21. KR-liðið komst síðan mest átta stigum yfir í öðrum leikhlutanum, 37-29, en þá fór Grindavíkurliðið í gang, skoraði átta stig í röð og jafnaði leikinn. KR var síðan með þriggja stiga forskot í hálfleik, 42-39, efrir að Brynjar Þór Björnsson endaði hálfleikinn á þriggja stiga körfu. Þriðji leikhlutinn var æsispennandi þar sem liðið voru að skiptast á því að ná forustunni þar til að Grindvíkingar skoruðu níu stig í röð og komust í 64-57. Grindavík var síðan fimm stigum yfir, 65-60, fyrir lokaleikhlutan. KR minnkaði muninn í tvö stig, 65-63, í upphafi leikhlutans en Grindavík svaraði með sjö stigum í röð og var komið með 72-63 forskot. Þorleifur Ólafsson skoraði fimm stig á þessum kafla og Grindvíkingar voru komnir með góð tök á leiknum sem þeir héldu til enda. Grindavík-KR 87-77 (39-42) Stig Grindavíkur: Jeremy Kelly 20, Ómar Örn Sævarsson 19/11 fráköst, Páll Axel Vilbergsson 15/5 fráköst, Ryan Pettinella 10/11 fráköst/5 varin skot, Ólafur Ólafsson 9/5 fráköst, Þorleifur Ólafsson 7/6 stoðsendingar, Guðlaugur Eyjólfsson 7.Stig KR: Marcus Walker 19/4 fráköst, Pavel Ermolinskij 14/11 fráköst/7 stoðsendingar, Hreggviður Magnússon 12/4 fráköst, Jón Orri Kristjánsson 8/7 fráköst, Brynjar Þór Björnsson 8, Fannar Ólafsson 7/6 fráköst, Finnur Atli Magnússon 6/6 fráköst, Ólafur Már Ægisson 3/4 fráköst.
Dominos-deild karla Mest lesið Segir Messi hafa rifist við þjálfarann um taktíkina í úrslitaleiknum Fótbolti Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Fótbolti Fleiri fréttir Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Sjá meira