Tugmilljarða tap á dag 17. apríl 2010 05:30 Þröng á þingi Mikill mannfjöldi var á lestarstöðinni í Hamborg í gær, sem og á öðrum lestarstöðum í Evrópu. Fólk á ferð um meginlandið brást við flugbanni með því að breyta ferðamátanum. Nordiphotos/AFP
Annan daginn í röð var nánast ekkert flogið í Norður-Evrópu. Mat samtaka áætlunarflugfélaga er að tap flugfélaga sé 200 milljónir dollara á dag. Meira en helmingur fluga í evrópskri lofthelgi var felldur niður. Askan úr Eyjafjallajökli hafði enn meiri áhrif á flugsamgöngur í gær en í fyrradag. Fleiri Evrópulönd þurftu að loka lofthelgi sinni en svigrúm gafst þó til að þess að fljúga til Skotlands, hluta Írlands, auk þess sem innanlandsflug í Norður-Noregi og norðurhluta Svíþjóðar var leyft hluta úr degi. Annars lágu flugsamgöngur niðri á Norðurlöndum, í Hollandi, Belgíu og Eystrasaltslöndum, norðurhluta Frakklands, norðurhluta Þýskalands, hluta af Póllandi og Tékklandi. Austurríki og Sviss lokuðu lofthelgi er leið á daginn. Fjöldi fólks sem hefur orðið fyrir áhrifum vegna flugbannsins hleypur á hundruðum þúsunda hið minnsta. Útlit er fyrir áframhaldandi tafir í dag. 16 þúsund flug felld niðurEvrópska flugmálastofnunin sagði 12 þúsund flug hafa verið í evrópskri lofthelgi en hefðu átt að vera 28 þúsund, það þýðir að 60 prósent fluga voru felld niður. Aldrei áður hefur verið jafn mikil röskun á flugi í evrópskri lofthelgi. Ásgeir Pálsson, framkvæmdastjóri Flugstoða, segir unnið eftir viðbragðsáætlun Alþjóðaflugmálastofnunar. Hún felur meðal annars í sér að farið er eftir kortum sem Upplýsingamiðstöð gjóskudreifingar í London gefur út en þau sýna hvar öskuský leggur yfir og þar með hvar bannað er að fljúga. Yfirvöld á hverjum stað meta svo einnig aðstæður sem skýrir mismunandi tímasetningar á lokunum lofthelgi. Icelandair flaug þrisvar til Glasgow í gær, alls með 600 farþega. Að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair, voru þeir að stórum hluta til breskir ferðamenn sem hér voru strandaglópar. Guðjón segir viðskiptavini hafa sýnt þolinmæði. Hann segir ekki mikið um afbókanir, fólk virðist ætla að bíða og sjá hvað setur. Undir þetta tekur Kristín Þorsteinsdóttir, upplýsingafulltrúi Iceland Express. Ein vél félagsins kom frá Alicante í gær. Fraktflug í uppnámiEins og gefur að skilja voru það ekki einungis ferðalangar sem sátu heima vegna flugbannsins. Fraktflug lá niðri sem til dæmis þýðir að ferskvörur voru ekki fluttar milli landa. Breska blaðið Guardian sagði frá því að gera mætti ráð fyrir að ef framhald yrði á flugbanni myndi úrval ferskra ávaxta í hillum breskra stórmarkaða minnka strax eftir helgi. 50 fullir vörubílar voru í gærdag á leið með vörur frá Noregi, Svíþjóð og Danmörku til Leipzig í Þýskalandi en þaðan átti að fljúga þeim á markaði að sögn Politiken. Þjóðir sem flytja mikið til Evrópu hafa einnig orðið fyrir tjóni, enda geta þær ekki flutt varninginn á markað. Asía í viðbragðsstöðuSamkvæmt mati samtaka áætlunarflugfélaga er tap flugfélaga 200 milljónir dollara dag hvern, ríflega 25 milljarðar íslenskra króna. Svo dæmi séu tekin þá er talið að norræni flugrisinn SAS tapi í kringum 150 milljónum danskra króna á dag eða 3,4 milljörðum íslenskra króna. Í netútgáfu breska dagblaðsins Times er áætlað að bresk flugfélög tapi jafnvirði tuttugu milljarða króna raskist flug um helgina. Samkvæmt tilskipunum Evrópusambandsins verða flugfélög að halda strandaglópum uppi, greiða fyrir þá gistingu og fæði, auk þess sem flugfélögin verði af tekjum þegar farþegar afpanti flug.Þá sagði sérfræðingur í flugmálum hjá alþjóðlega matsfyrirtækinu Standard & Poor's í samtali við Fréttablaðið flugfélög í Asíu í viðbragðsstöðu. Röskun á flugsamgöngum hefur jafnframt komið við kaunin á fjármagnseigendum en gengi hlutabréfa í flugfélögum víða um heim lækkaði í gær. Sem dæmi þá lækkaði virði hlutabréfa British Airways, SAS og Atlantic Airways. sigridur@frettabladid.is jonab@frettabladid.is
Eldgos og jarðhræringar Gos á Fimmvörðuhálsi Mest lesið Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Kona réðst á pizzasendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veður Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Innlent Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Innlent Fleiri fréttir Kona réðst á pizzasendil sem vildi fá símann sinn aftur Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Vara við bikblæðingum á Bröttubrekku Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Sjá meira