Meistaradeildin: Liverpool áfram Elvar Geir Magnússon skrifar 11. mars 2008 19:08 Hér skorar Fernando Torres eina markið sem kom í kvöld.
Liverpool komið í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Liðið vann Inter í kvöld 1-0 á útivelli og kemst áfram samanlagt á 3-0 sigri úr tveimur leikjum. Spánverjinn Fernando Torres skoraði eina markið í kvöld á 63. mínútu. Markið var glæsilegt hjá þessum frábæra leikmanni sem hefur svo sannarlega verið þyngdar sinnar virði í gulli fyrir Liverpool á leiktíðinni. Þetta mark slökkti heldur betur í Ítalíumeisturunum sem hefðu þurft að skora fjögur til að komast áfram. Nicolas Burdisso, leikmaður Inter, fékk að líta sitt annað gula spjald í upphafi seinni hálfleiks. Það var virkilega strangur dómur og Inter tíu á vellinum. Tvær brottvísanir í tveimur leikjum gerðu út um vonir Inter í þessu einvígi. Rafael Benítez heldur áfram að sýna færni sína í Evrópukeppninni og lagði hann leikinn vel upp. Lið Liverpool var virkilega skipulagt og komst virkilega verðskuldað áfram. Inter fékk nokkur virkilega góð færi en náði ekki að finna leiðina framhjá Reina í marki Liverpool í þessum tveimur leikjum. Þetta er lokaleikur sextán liða úrslitana. Dregið verður í átta liða úrslitin á föstudag en í pottinum verða Chelsea, Schalke, Roma, Arsenal, Manchester United, Barcelona, Fenerbache og svo auðvitað Liverpool.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira