Gullörn fæli refi af flugbrautum 9. janúar 2008 08:42
Stjórnendur flugvallarins við hafnarborgina Bari á Ítalíu hafa gripið til þess ráðs að fá taminn gullörn til liðs við sig. Er erninum ætlað að fæla refi frá flugbrautunum á vellinum Á undanförnum mánuðum hefur oft þurft að loka flugbrautum þar sem refir hafa verið á veiðum við eða á þeim. Eru refirnir á höttunum eftir kanínum og músum sem mikið er af á þessum slóðum. Flugvallaryfirvöld hafa því fengið gullörninn Cheyenne til liðs við sig en örninn kemur frá Þýskalandi þar sem hann var alinn upp og þjálfaður. Vænghaf hans er tveir metrar og hann getur lyft 18 kílóum eða þrefaldi þyngd sinni. Vonast er til að örninn muni fæla refina frá flugvellinum nú þegar gottími refanna fer í hönd. Um tvær milljónir farþega fara um flugvöllinn á hverju ári og því hafa hindranir á flugi vegna refaplágunnar kostað miklar fjárhæðir. Flugvellir bregðast yfirleitt við dýraplágum af þessu tagi með því að beita hátíðnihljóðum en þetta er í fyrsta sinn sem örn er kallaður til. Cheyenne mun kosta um 900.000 krónur og er þjálfun hans um það bil að ljúka. Reiknað er með að örninn muni taka við hinu nýja starfi sínu í næstu viku.
Vísindi Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira