Fáránlega frábærir 3. september 2007 11:00 Trommukjuðarnir vekja mikla lukku í partíum þar sem hægt er að búa til áhrifahljóð við brandara. MYND/hörður
Elsa María Jakobsdóttir sjónvarpskona mætir alltaf með rafmagnskjuða í partí. „Ég sá kjuðana fyrst á www.iwantoneofthose.com þar sem eru margir frábærir og fáránlegir hlutir sem eru mispraktískir. Einar Baldvin vinur minn pantaði þá og gaf mér í jólagjöf," segir Elsa María Jakobsdóttir, umsjónarmaður í nýjum menningarþætti Sjónvarpsins sem heitir 07-08, bíó og leikhús. Kjuðarnir heita á frummálinu „Rhythm sticks" og vekja mikla lukku bæði heima og í partíum að sögn Elsu. „Þetta eru svona feitir trommukjuðar sem ganga fyrir batteríum með takka fyrir bassatrommu, snerli eða „high hat"," segir Elsa, sem segir þá vera með hátalara og blikkandi ljós í takt. „Fólki finnst alltaf gaman að tromma með lögum og þá sérstaklega með eitístónlist," segir Elsa hlæjandi og bætir við: „Síðan er hægt að gera áhrifahljóð þegar einhver segir brandara." Til að framkalla hljóð þarf að slá og veifa út í loftið. Þá nema þeir hreyfinguna og láta í sér heyra að sögn Elsu.Auk kjuðanna var Game Boy í miklu uppáhaldi hjá Elsu þegar hún var yngri og þá aðallega Tetrisspilið. Í seinni tíð hefur Bubble þó átt hug hennar og hjarta. „Ég hef verið mjög illa haldin eftir langar lotur í Bubble. Til dæmis var ég í Smáralind síðustu jól og langaði bara að skjóta niður jólakúlurnar. Þess vegna reyni ég að hemja mig núna og spila minna. Ég spila heldur aldrei í vinnunni, ég lofa," segir Elsa hlæjandi.
Vísindi Mest lesið Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Sjá meira