Te dregur úr líkum á húðkrabbameini 9. maí 2007 13:49 Andoxunarefni í tei eru talin draga úr líkum á krabbameini.
Rannsóknir sýna að grænt og svart te minnkar hugsanlega líkur á húðkrabbameini. Tveir bollar af grænu eða svörtu tei gætu dregið úr líkum á krabbameini. Þetta eru niðurstöður breskra og bandarískra rannsókna á greindum húðkrabbameinstilfellum árin 1993 til 1995 og 1997 til 2000. Lífsstíll, mataræði og neysla á grænu og svörtu tei var skoðuð hjá sjúklingum sem þjáðust af húðkrabba og heilbrigðum einstaklingum á aldursbilinu 25 til 74 ára. Rannsóknirnar leiddu í ljós að þeir sem drukku reglulega te voru í minni hættu á að fá húðkrabbamein og er það rakið til andoxunarefna tesins, sem eiga að hindra myndun krabbameinsfrumna. Enn fremur er talið að sítrónusneiðar, sem eru vinsælar út í te í Bandaríkjunum, eigi sinn þátt í að ýta undir heilsusamleg áhrif tesins, og því sé gott að setja eina eða tvær sneiðar út í. Vonast er til að rannsóknirnar varpi frekara ljósi á því hvernig krabbamein þróast. Vísindamenn benda þó á að te sé ekki vörn gegn útfjólubláum geislum sólarinnar. Sólarvörn 15+ komi að góðum notum, en best sé auðvitað að skýla sér fyrir sólinni þegar hún skín skærast. Frá þessu er greint á bbc. co.uk
Vísindi Mest lesið Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Innlent Fleiri fréttir 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Sjá meira