Dreymdi eigandann nóttina eftir fornleifafund 18. ágúst 2007 11:30 Harald Haraldsson fann spjótsodd frá miðöldum þegar hann gróf fyrir brunni í Laxárdal. Mynd/Magnús A. Sigurðsson
Framkvæmdir við vatnsveitu leiddu til þess að Harald Haraldsson, bóndi á Svarfhóli í Laxárdal, skammt frá Búðardal, fann heillegan spjótsodd á dögunum. Ekki er vitað um aldur oddsins, en hann hefur nú verið sendur á Þjóðminjasafnið. „Við vorum að grafa ofan í uppsprettu til að setja niður brunn, við sáum oddinn þegar hann kom upp í skóflunni. Hann var ryðgaður, en samt ótrúlega heill,“ segir Harald. Hann segir að augljóst hafi verið að þarna hafi verið eitthvað merkilegt á ferð, og að oddurinn væri gamall. „Mig dreymdi svo nóttina eftir karl með skaftið, sem vantaði oddinn á, en hann kynnti sig ekki,“ segir Harald. Hann hafði samband við Fornleifavernd ríkisins. „Ég passaði mig bara að setja brunninn niður fyrst svo þeir gætu ekki stoppað það af,“ segir Harald. Magnús A. Sigurðsson, minjavörður á Vesturlandi, sótti oddinn. Hann segir ólíklegt að fleiri fornminjar leynist í jörð þar sem oddurinn fannst, auk þess sé nú búið að raska svæðinu svo mikið að ekki sé hægt að ganga úr skugga um það. Hann segir að mögulega hafi einhver fornmaður brotið spjótið sitt, eða oddurinn endað á þessum stað fyrir einhverjar sakir, en ólíklegt er að þarna hafi verið kuml. Oddurinn sé líklega frá miðöldum, og hann verður aldursgreindur á Þjóðminjasafninu.
Vísindi Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira