Glæpir gegn mannkyni staðfestir? 13. október 2004 00:01
Fjöldagröf fannst í norðurhluta Íraks og er talið að þar sé að finna hundruð og jafnvel þúsundir líka. Sum þeirra eru af börnum sem halda á leikföngunum sínum. Líklegt er talið að þetta leiði til þess að Saddam Hússein verði sakfelldur fyrir glæpi gegn mannkyni. Rannsóknarmenn vinna nú að því að grafa upp líkamsleifar úr fjöldagröfunum sem fundust nálægt þorpinu Hatra í Norður-Írak. Meðal þess sem fundist hefur eru lík af fóstrum allt niður í átján til tuttugu vikna gömul og ungabörn sem halda dauðahaldi í leikföngin sín. Viðmælandi Reuters segir grafirnar augljóslega hafa verið notaðar oftar en einu sinni til að grafa lík og að svo virðist sem bæði konur og börn hafi verið tekin þar af lífi, án þess að nokkur augljós skýring finnist. Rannsóknarmennirnir, sem margir hverjir unnu við að grafa upp fjöldagrafir eftir stríðin á Balkanskaga, segjast aldrei áður hafa séð neitt þessu líkt. Fólkið hafi verið skotið á staðnum og líkunum síðan ýtt með jarðýtum ofan í grafirnar. Grafirnar eru taldar sanna ofsóknir gegn Kúrdum sem drepnir voru í þúsunda tali í valdatíð Saddams Hússeins í lok níunda áratugarins. Hermt er að þrjú hundruð þúsund manns hafi horfið með dularfullum hætti í valdatíð Saddams og óttast að margir hafi endað í viðlíka gröfum. Hann var jafnframt sakaður um þjóðarmorð á Kúrdum. Saddam Hússein verður færður fyrir stríðsglæpadómstól á næsta ári þar sem hann mun svara fyrir glæpi gegn mannkyninu.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira