Myndband með aftöku Bigleys 8. október 2004 00:01
Aftaka breska gíslsins Kenneths Bigleys er til á upptöku að sögn manns sem Reuters-fréttastofan ræddi við í Írak í dag. Myndbandið hefur ekki enn verið gert opinbert en maðurinn segist hafa séð það og að hans sögn les Bigley upp yfirlýsingu, klæddur appelsínugula gallanum sem hann var í á myndum sem gerðar voru opinberar á dögunum, á meðan sex mannræningjar standa fyrir aftan hann. Að lestrinum loknum sker einn mannanna hausinn af Bigley með hnífi. Bigley var rænt 16. september og haldið með tveimur Bandaríkjamönnum sem skornir voru á háls skömmu síðar. Skammt er síðan bróðir Bigleys taldi sig hafa vissu fyrir því að Kenneth Bigley hefði verið færður öðrum hópi og að það gæti þýtt að unnt yrði að liðka fyrir lausn hans. Síðan hefur ekkert frést, þangað til í dag, þegar sjónvarpsstöð í Abu Dhabi flutti þær fréttir að Bigley hefði verið drepinn. Sagði í fréttinni að hryðjuverkahópur, tengdur Abu Musab al-Zarqawi, leiðtoga al-Kaída í Írak, hefði drepið hann. Fréttastofa SKY segist hafa fengið staðfestingu frá ónafngreindum breskum embættismanni í utanríkisráðuneytinu. Yfirvöld segjast vera að kanna málið.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Innlent „Skapaði mikla ringulreið hjá okkur og við erum hrædd“ Innlent John Alford fannst látinn í fangelsinu Erlent Hellisheiði er lokuð Innlent Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Erlent Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Innlent „Við erum ekki hrædd“ Innlent Snjóflóð þveraði veginn þegar opið var fyrir umferð Innlent Vildu helst Asíubúa í flug til Grænlands Innlent Fleiri fréttir John Alford fannst látinn í fangelsinu Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Bandarísk herflugvél fórst í Írak Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sakar Úkraínumenn um að hóta sér og fjölskyldu sinni Feðginin prófuðu nýjar skammbyssur Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Þrír handteknir í tengslum við sprengingu í Ósló Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Segir nánast ekkert ósprengt í Íran og að stríðinu gæti lokið fljótt Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Mojtaba Khamenei særður en óhultur Segir Ísland geta klárað viðræður á einu og hálfu ári Forsprakki Noma sakaður um andlegt og líkamlegt ofbeldi Sjá meira