Stuðningur við Kerry dvínar 26. september 2004 00:01
Stuðningur við John Kerry í forsetakosningunum í Bandaríkjunum virðist fara dvínandi. Kosningastjórar hans binda nú vonir við að vel gangi í fyrstu sjónvarpskappræðum frambjóðendanna sem haldnar verða í vikunni. Það blæs ekki byrlega fyrir John Kerry þessa dagana. George Bush hefur mælst með heldur meira fylgi en Kerry nú í margar vikur og virðist aðeins vera að sækja í sig veðrið. Fylgiskannanir sýna að Bush hefur fjögur til tólf prósentustiga forskot á Kerry þegar mælt er fylgi meðal þeirra Bandaríkjamanna sem hafa skráð sig til kosningaþátttöku. Forskot Bush er jafnvel enn meira afgerandi þegar litið er á fjölda kjörmanna. Sigurvegarinn þarf stuðning 270 kjörmanna til að hneppa forsetastólinn og eins og staðan er núna hefur Bush stuðning 311 kjörmanna en Kerry aðeins 217. Kosningabarátta Kerrys hefur tekið mið af þessum tölum og nú leggur hann ofuráherslu á Írak í málflutningi sínum í þeirri von að geta grætt á óánægju Bandaríkjamanna með framvindu mála þar. Í gær lýsti Kerry því yfir að innrásin í Írak hefði verið glappaskot að því leyti að stríðið þar beindi athyglinni frá hinu raunverulega stríði, það er baráttunni gegn hryðjuverkum. Kerry sagði það hafa verið mistök hjá Bush að setja Saddam Hússein efst á forgangslistann í stað Osama bin Ladens. Fyrstu sjónvarpskappræður frambjóðandanna verða haldnar nú á fimmtudaginn og eiga þær einmitt að snúast um utanríkismál.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Innlent Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Erlent Fleiri fréttir Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Sjá meira