Fimmtíu féllu í tveimur árásum 18. september 2004 00:01
Um fimmtíu manns létu lífið í Írak í gær. Meirihluti fólksins féll þegar bandarískar herflugvélar gerðu loftárásir á hús í Falluja þar sem yfirstjórn Bandaríkjahers í Írak sagði vígamenn hafast við. Konur og börn voru þó nær helmingur þeirra sem féllu þar. Þá féllu fimm í sprengjutilræði sem var gert í Bagdad. Sautján börn voru í hópi þeirra sem létust í loftárásinni í Falluja og tvær konur meðal þeirra 27 sem særðust að sögn heilbrigðisyfirvalda. Árásin vakti mikla reiði heimamanna, sem fordæmdu Bandaríkin. Bandarísk hermálayfirvöld vörðu hins vegar árásina og vísuðu til upplýsinga sem þau hefðu fengið um að um það bil 60 vígamenn hefðu fallið í árásinni. Bandaríkjaher hefur ekki haft hermenn í Falluja frá því bardögum um borgina lauk fyrir nokkrum mánuðum. Trúarleiðtogar notuðu hátalarakerfi Falluja-moskunnar til að hvetja fólk til að gefa blóð. Vígamenn hafa búið um sig í Falluja síðustu mánuði og notað borgina sem stökkpall til árása á bandarískar hersveitir sem hafa herbúðir í nágrenninu.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira