Níutíu féllu umhverfis Bagdad 14. ágúst 2004 00:01
Bandarískir hermenn felldu um níutíu uppreisnarmenn í borgum umhverfis Bagdad í nótt en allt var með kyrrum kjörum í Najaf þar sem sjítaklerkurinn Muqtada al-Sadr er að reyna að semja vopnahlé. Hörðustu bardagarnir voru í borgunum Samarra og Hilla. Í Samarra féllu um fimmtíu af stuðningsmönnum al-Sadrs og í Hilla voru fjörutíu stuðningsmenn hans felldir. Ekki er getið um mannfall í liði Bandaríkjamanna. Hins vegar var allt með kyrrum kjörum í borginni Najaf þar sem al-Sadr er að reyna að semja um vopnahlé, enda búið að stráfella liðsmenn hans þar. Klerkurinn býðst til þess að hætta bardögum í borginni gegn því að Bandaríkjamenn flytji herlið sitt þaðan. Bandaríkjamenn eru nokkuð tregir til þess enda hafa þeir áður gert slíka samninga við Muqtada sem hann hefur jafnharðan svikið. Ekki er þó víst að Bandaríkjamenn komist hjá því að semja við klerkinn því Najaf er ein helgasta borg Íraka og þeim er mjög illa við að þar sé barist. Helgidómar borgarinnar hafa orðið fyrir nokkrum skemmdum því það er í þeim sem Muqtada holar sér niður þegar í harðbakka slær. Myndin er frá Najaf í morgun.
Erlent Fréttir Írak Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira