Almyrkvi 12. ágúst 2026

Fréttamynd

Um­fangs­miklar götulokanir í kringum al­myrkva

Umfangsmiklar götulokanir verða í Vesturbænum og á Seltjarnarnesi á meðan almyrkvi á sólu sést yfir vesturhluta landsins í ágúst. Hátt í 80 þúsund ferðamenn verða á landinu á meðan á almyrkvanum stendur. Einn helsti stjörnuáhugamaður landsins ætlar sjálfur að fylgjast með sólmyrkvanum heima hjá sér í Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Styrkja fjar­skipta­kerfið fyrir almyrkvann

Viðbragðsaðilar og fjarskiptafélög hafa lagst á eitt til þess að styrkja fjarskiptakerfið á Íslandi í kringum almyrkva á sólu. Þá hefur Neyðarlínan einnig gefið út varanúmer sem hægt er að hringja í ef ekki næst samband við 112. 

Neytendur
Fréttamynd

Mikil eftir­spurn eftir miðum á Eclipse Festival - „Augna­blik sem aldrei gleymist“

 „Við erum þegar búin að selja stóran hluta af miðunum enda gríðarlegur áhugi frá fólki sem vill koma til Íslands og upplifa eitthvað alveg einstakt. Hátíðir sem byggja á almyrkva hafa sterkt aðdráttarafl fyrir fólk sem sækist eftir óvenjulegri upplifun,“ segir Jón Bjarni Steinsson, einn af forsvarsmönnum Iceland Eclipse hátíðarinnar sem haldin verður á Hellissandi á Snæfellsnesi dagana 11. til 15. ágúst. 

Lífið samstarf
Fréttamynd

Páll biður ein­hvern að forða því að Ís­land verði að at­hlægi

Páll Einarsson jarðfræðingur biðlar til þeirra sem hafa með skiltið við Bjargtanga að gera að það verði lagfært áður en útlendingar furða sig á landafræðikunnáttu Íslendinga. Sá sem setti skiltið upp segir að þetta sé gamall barnaskólalærdómur sem hafi verið innprentaður í barnsminnið.

Innlent
Fréttamynd

Sæ­var Helgi horfir heima

Sævar Helgi Bragason, Stjörnu-Sævar, upplýsti í kvöldfréttum nýverið að hann ætlaði að fylgjast með almyrkvanum í ágúst á pallinum heima.

Skoðun
Fréttamynd

Al­myrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagn­legar upp­lýsingar

Þann 12. ágúst verður almyrkvi á sólu sýnilegur á vesturhluta landsins. Almyrkvaslóðin liggur yfir Vestfirði, Vesturland, höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaga og því má áætla að um og yfir 70% landsmanna séð þetta stórbrotna náttúrundur að heiman frá sér. Á sama tíma verður deildarmyrkvi á öllu landinu austan slóðarinnar en á Norðfirði og Seyðisfirði hylur tunglið 95% af yfirborði sólar.

Skoðun
Fréttamynd

Vegum lokað og bílar taldir

Töluvert af öryggisráðstöfunum verða gerðar á Vestfjörðum vegna almyrkvans þann 12. ágúst næstkomandi. Til að mynda verður veginum um Bolafjall lokað og fari of margir í átt að Látrabjargi verður veginum lokað.

Innlent
Fréttamynd

Fræddust um dag­legt líf blindra og hreyfihamlaðra

Vísindaskóli unga fólksins á Akureyri er hápunktur sumarsins hjá mörgum en hann er fyrir börn á aldrinum ellefu til þrettán ára. Ýmis námskeið eru á boðstólum og í ár fengu krakkarnir fræðslu um jafnréttismál, málefni norðurslóða, sorpmál og margt fleira.

Innlent
Fréttamynd

Senda loft­belgi á loft á hálf­tíma fresti á meðan sólmyrkvinn stendur yfir

Bandarískir vísindamenn munu nýta loftbelgi til að gera mælingar, sem fjármagnaðar eru af geimferðastofnuninni NASA, á andrúmsloftinu yfir Íslandi. Mælingarnar verða framkvæmdar meðan á sólmyrkvanum stendur í ágúst og snúast um að kanna áhrif myrkvans á lægsta lag veðrahvolfsins. Vísindamennirnir hafa notið aðstoðar Háskóla Íslands, Sævars Helga Bragasonar og fleiri sérfræðinga hérlendis.

Innlent
Fréttamynd

Eftir sumarið tekur við ó­vissa

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir stöðuna góða innan greinarinnar yfir sumarið og sólmyrkvann 12. ágúst vera mikla búbót. Í haust taki þó við óvissa.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sólmyrkvinn mögu­lega þúfan sem veltir hlassinu

Búist er við holskeflu ferðamanna í ágúst vegna sólmyrkvans og það á versta mögulega tíma, að mati greiningardeildar Landsbankans. Hagfræðingur bankans segir verðbólguspárnar þegar á tæpasta vaði og að sólmyrkvinn gæti orðið þúfan sem veltir hlassinu.

Innlent
Fréttamynd

Gull­grafaraæði magnast upp í tengslum við sól­myrkvann

Eins og Íslendingar, sem flestir þykjast þrælskipulagðir ef þeir vita hvað þeir eru að fara að gera á morgun, eru smám saman að átta sig á verður almyrkvi 12. ágúst. Hundrað dagar í dag. Öll gisting er fyrir löngu uppbókuð og verðið er að sigla upp úr öllu valdi.

Innlent
Fréttamynd

„Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“

Sveitarstjórn og viðbragðsaðilar í Vesturbyggð eru nú íóða önn að undirbúa komu mikils fjölda ferðamanna í tengslum við almyrkvann í sumar. Bæjarstjóri á segir erfitt að sjá fyrir hve margir leggi leið sína vestur til að berja almyrkvann augum.

Innlent
Fréttamynd

„Deilum við Norð­menn um meira en síld og makríl“

Ef vel tekst til getur almyrkvi á sólu verið gríðarleg markaðssetning á landinu og mikilvægt að stjórnvöld nýti tækifærið og fjárfesti í ferðaþjónustunni og markaðssetningu á landinu. Þetta segir formaður fyrirtækja í hótelrekstri.

Innlent
Fréttamynd

Björk treður upp í Hafnar­firði í sumar

Stórstjarnan Björk var rétt í þessu að tilkynna Sólmyrkvahátíð á Víðistaðatúni í Hafnarfirði 12. ágúst næstkomandi þar sem hún þeytir skífum ásamt öflugum hópi tónlistarfólks.

Tónlist
Fréttamynd

Falsmyndir af sól­myrkva vella fram: „Gervigreindin er plága“

Stjörnu-Sævar segir gervigreindina plágu sem kaffæri réttum upplýsingum með bulli og ljótleika. Máli sínu til stuðnings deilir hann aragrúa skjáskota af fölsuðum myndum af sólmyrkva á Suðurskautslandinu. Óttast hann að Íslendingar muni verða fyrir barðinu á svipuðu falsi vegna almyrkva á Íslandi í ágúst.

Lífið
Fréttamynd

„Verður svona þjóðhátíðar­stemmning nema bara marg­föld“

Gisting á Íslandi er nánast uppbókuð í tengslum við almyrkva á sólu í ágúst á næsta ári og stjórnvöld hafa skipað stýrihóp sem á að samræma og samhæfa undirbúning vegna myrkvans. Sævar Helgi Bragason stjörnuáhugamaður segir að dæmi séu um að verð á gistingu hafi fjórfaldast.

Innlent
Fréttamynd

Skipa stýri- og að­gerða­hóp vegna al­myrkvans en eiga ekki fyrir verk­efna­stjóra

Forsætisráðherra skipaði í vikunni stýrihóp innan Stjórnarráðsins til að samhæfa og samræma undirbúning fyrir almyrkva 12. ágúst 2026. Með stýrihópnum mun starfa aðgerðahópur undir forystu almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra og mun dómsmálaráðherra skipa þann hóp. Fram kemur í svarinu að þörf sé á að tryggja að verkefnastjóri verði til starfa hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra en að ekki sé til fjármagn fyrir því innan dómsmálaráðuneytisins. 

Innlent
  • «
  • 1
  • 2