Neytendur

Styrkja fjar­skipta­kerfið fyrir almyrkvann

Agnar Már Másson skrifar
Jón Svanberg og Ólafur Magnússon.
Jón Svanberg og Ólafur Magnússon. Aðsend/Gunnar Svanberg

Viðbragðsaðilar og fjarskiptafélög hafa lagst á eitt til þess að styrkja fjarskiptakerfið á Íslandi í kringum almyrkva á sólu. Þá hefur Neyðarlínan einnig gefið út varanúmer sem hægt er að hringja í ef ekki næst samband við 112. 

Viðbragðsaðilar búa sig um þessar mundir undir aukið álag á Neyðarlínuna og fjarskiptakerfi landsins sem búist er við í kringum 12. ágúst – þegar fjöldi ferðamanna gerir sér leið til landsins til að sjá almyrkva á sólu.

„Viðbúnaður Neyðarlínu er tvenns konar, annars vegar styrking á vakt 112 þar sem við svörum neyðarsímtölum sem má búast við á þessum tíma. Einnig erum við að styrkja samskiptainnviði sem við rekum. Það er verið að setja nýja senda á svæði og verða færanlegir sendar líka í notkun á þessum tíma,“ segir Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar.

Þá hafa fjarskiptafélögin og viðbragðsaðilar einnig lagst á eitt til að styrkja fjarskiptakerfið. Ólafur Magnússon – sem er framkvæmdastjóri á tækni- og nýsköpunarsviði hjá Nova – segir að um sé að ræða samstarfsverkefni Nova, Símans, Sýnar, Mílu, Sendafélagsins, Almannavarna og Neyðarlínunnar.

„Bæði með tímabundnum aðgerðum eins og að koma upp fjarskiptakerfum þar sem búist er við að verði töluverður mannsafnaður en líka með því að fara fyrr í endurbætur á dreifikerfum á þessum stað,“ segir Ólafur hjá Nova.

Nú hefur Neyðarlínan gefið út aukaneyðarnúmer í kjölfar þess að borið hefur á vandræðum við að tengjast við Neyðarlínuna eftir að 2G- og 3G-kerfum var lokað hér á landi en það á einkum við um síma keypta erlendis og eldri síma. Nú verður einnig hægt að hringja í númerið 599-0112.

Í neyð er mikilvægt að hringja fyrst í 112 þar sem að þá fer síminn í svokallaðan neyðarham. 

„En þegar þú hringir í þetta nýja númer 599-0112 þá er þetta eins og venjulegt símtal milli tveggja síma, þá kemur ekki staðsetning eða neitt slíkt og nýtur ekki forgangs í kerfinu,“ segir Jón Svanberg hjá Neyðarlínunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×