Efnahagsbrot

Fréttamynd

„Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“

Ástarsvik hafa verið sérstaklega algeng hér á landi síðustu vikur samkvæmt upplýsingum frá bönkunum. Teymisstjóri hjá Bjarkarhlíð segir of lítið hlutfall þeirra sem lenda í ástarsvikum leita sér hjálpar. Þolendur geti misst aleiguna og skuldsett sig um margar milljónir. 

Innlent
Fréttamynd

„Þetta kemur okkur mjög á ó­vart“

Formaður Félags eldri borgara segir lögregluna hafa brugðist manni á áttræðisaldri sem leitaði ítrekað hjálpar vegna fjárkúgunar. Hann kallar eftir því að verkferlar verði endurskoðaðir. 

Innlent
Fréttamynd

Sjö­tugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara

Sjötugur maður sem nýlega opnaði sig um að hafa misst aleiguna til fjárkúgara hefur lifað í stöðugum ótta síðan kúgunin hófst. Vinur hans segir frá því að alls hafi hann greitt hópi fólks ríflega hundrað og átta milljónir en þau hótuðu honum að ljúga upp á hann öllu illu og beita hann ofbeldi ef hann neitaði að borga.

Innlent
Fréttamynd

Dró sér fé sem gjald­keri fram­boðsins

Rödd unga fólksins hefur upplýst um fjárdráttarmál innan flokksins sem upp kom snemma á síðasta ári. Grunur hafi þá vaknað um að Sævar Þór Birgisson, þáverandi bæjarfulltrúi og gjaldkeri flokksins, hafi dregið til sín töluverða fjármuni og málið kært til lögreglu. Rödd unga fólksins hefur átt fulltrúa í sveitarstjórn Grindavíkur síðastliðin tvö kjörtímabil.

Innlent
Fréttamynd

Fjárdráttur lög­manns hjá héraðssaksóknara

Ólafur Hauksson héraðssaksóknari segir kæru á hendur Guðrúnu Björgu Birgisdóttur á borði embættisins. Hún er sökuð um að hafa dregið sér fé sem fjárvörslumaður dánarbús og grunur leikur á að um að það sé ekki eina brot hennar af þessu tagi.

Innlent
Fréttamynd

„Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaup­fé­laginu

Héraðsdómur Norðurlands vestra dæmdi í gær karlmann í níu mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir fjársvik sem beindust að bróður hans. Á árunum 2016 til 2021 sveik maðurinn út vörur úr verslunum Kaupfélags Skagfirðinga, það eru Skagfirðingabúð, Verslun Eyri og Bifreiðaverkstæði kaupfélagsins. Það gerði hann með því að skuldfæra vörur á viðskiptareikning sem hann hafði vitneskju um.

Innlent
Fréttamynd

Hafi svikið tugi milljóna úr ís­lenskum banka

Rúmenskur karlmaður hefur verið handtekinn í heimalandi sínu þar sem hann er grunaður um að nýta sér veikleika í kerfi íslensks banka í lok apríl til að millifæra á sig umtalsverðar fjárhæðir ólöglega. Áætlað tjón nemur um 57 milljónum króna. Hann verður framseldur til Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Í með­ferð eftir fjár­drátt hjá Við­reisn

Fyrrverandi formaður stjórnar Viðreisnar í Reykjavík segist farinn í meðferð á Vogi til þess að takast á við fíknivanda. Hann var kærður fyrir að draga sér fé úr sjóðum flokksins fyrr í þessum mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Sumarstarfsmaður stal sjö milljónum af Happ­drætti Há­skóla Ís­lands

Íslensk kona hefur játað fyrir að hafa stolið rúmum sjö milljónum af Happdrætti Háskóla Íslands en hún starfaði þar sem sumarstarfsmaður árið 2023. Hún hefur verið dæmd í 30 daga fangelsisvist skilorðsbundið og henni verður gert að greiða allan sakarkostnað málsins sem og milljónirnar sjö til baka. 

Innlent
Fréttamynd

Á­fram hús­leit á fyrra heimili Andrews

Breska lögreglan mun halda áfram húsleit sinni á fyrra heimili Andrews Mountbatten Windsor sem handtekinn var í gær grunaður um spillingu í opinberu embætti. Andrew bjó um árabil í Royal Lodge en var gert að flytja þaðan fyrr á árinu.

Erlent
Fréttamynd

Þegar enginn lætur vita - ofbeiting laga og kerfisblinda

Þegar netsvik eru annars vegar er einn viðkvæmasti hópurinn eldra fólk og einstaklingar sem þarfnast umönnunar. Tölfræðin sýnir að einstaklingar 65 ára og eldri verða fyrir mun hærra meðaltjóni í slíkum svikum en aðrir aldurshópar, oft tvö- til þrefalt hærra, þar sem slíkar svikagreiðslur eru oft óafturkræfar.

Skoðun
Fréttamynd

„Full­yrðingar á­kæru­valdsins eru á sandi byggðar“

Þórarinn Arnar Sævarsson, einn eigenda fasteignasölunnar Remax, sem sætir ákæru fyrir markaðsmisnotkun telur fullyrðingar ákæruvaldsins um sekt hans á sandi byggðar. Í greinargerð hans kemur meðal annars fram að viðskipti hans með bréf í Kviku hafi numið 0,14 prósentum af heildarviðskiptum á ákærutímabilinu, þróun gengis félagsins hafi verið í takt við þróun gengis Arion banka á tímabilinu og hann hafi ekki reynt að hafa áhrif á dagslokagengi Kviku. Viðskipti hans með bréf í félaginu hafi aldrei hækkað gengið um meira en 1,5 prósent, sem er langt undir öllum viðmiðunarmörkum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Þremur þjófum vísað úr landi

Þremur erlendum ríkisborgurum, tveimur körlum og einni konu, hefur verið vísað brott frá Íslandi. Fólkið, sem er á þrítugs- og fertugsaldri og er talið tengjast skipulagðri brotastarfsemi, var handtekið 18. desember vegna þjófnaðarmála á höfuðborgarsvæðinu

Innlent
Fréttamynd

Haldlögðu metmagn af fíkni­efnum á árinu

Árið 2025 var metár í haldlagningu fíkniefna samkvæmt bráðabirgðatölfræði lögreglu. Lögregla og tollgæsla lögðu hald á samtals 468 kíló af marijúana, 106 kíló af kókaíni og 66 kíló af hassi.

Innlent
Fréttamynd

Til­efni til að varast svik á svörtum föstu­degi

Nú þegar tilboðsdagar á borð við svartan föstudag og stafrænan mánudag eru á næsta leyti er tilefni fyrir neytendur til að vera sérstaklega á varðbergi gagnvart svikatilraunum. Öryggissérfræðingur brýnir fyrir almenningi að smella ekki á tilboðshlekki sem berast með tölvupósti og minnir á að ef tilboð hljómar of gott til að vera satt, þá er það líklega grunsamlegt.

Neytendur
Fréttamynd

Er­lendum vasa­þjófum vísað úr landi

Tveimur erlendum vasaþjófum var vísað úr landi í dag eftir að hafa stolið af ferðamönnum á Skólavörðuholti. Þeir komu til Íslands á miðvikudag en voru handteknir í gær.

Innlent
Fréttamynd

Bentu hvor á annan og hlutu ó­lík ör­lög

Fyrrverandi framkvæmdastjóri Megna, sem áður hét Glerborg og framleiddi gler og spegla, hefur verið dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir meiriháttar brot á skattalögum. Fjármálastjóri fyrirtækisins var sýknaður en þeir tveir bentu hvor á annan fyrir dómi spurðir um ábyrgð.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Svona fer peninga­þvætti fram

Fjármögnun á lúxuslífstíl, kaup á gjaldeyri og fasteignum, lánagerningar og svokallaðar sýndareignir eru meðal algengustu leiða skipulagðra brotahópa til peningaþvættis. Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra um skipulagða brotastarfsemi á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Sverrir Einar á­kærður en fer í hart á móti

Athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson hefur verið ákærður fyrir meiri háttar skattalagabrot með því að hafa, sem stjórnandi fjögurra félaga, ekki staðið skil á alls 59,7 milljónum króna í opinber gjöld. Þess er krafist að hann verði dæmdur til refsingar og í atvinnurekstrarbann. Hann hefur kært Ríkisskattstjóra og Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu vegna aðgerða á starfstöðvum félaga hans í apríl í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Netsvikarar þykjast vera þekkt ís­lensk fyrir­tæki

Nýverið fór að bera á nýrri tegund tilrauna til fjársvika, þegar netþrjótar hófu að kaupa sér lénaheiti sem líkjast íslenskum fyrirtækjaheitum og láta lénin líta út eins og þau tengist fyrirtækjunum. Lénaheitin voru á forminu fyrirtæki-ehf.is í staðinn fyrir bara fyrirtæki.is Þessi lén nota þrjótarnir til að villa á sér heimildir og virðist það aðallega beinast að erlendum birgjum þessara íslensku fyrirtækja.

Innlent