Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Freyja Þórisdóttir skrifar 18. júlí 2026 10:28 Jón segir þá vinina hafa hist reglulega síðan kúgunin hófst. Myndin tengist málinu ekki beint og er úr safni. getty Sjötugur maður sem nýlega opnaði sig um að hafa misst aleiguna til fjárkúgara hefur lifað í stöðugum ótta síðan kúgunin hófst. Vinur hans segir frá því að alls hafi hann greitt hópi fólks ríflega hundrað og átta milljónir en þau hótuðu honum að ljúga upp á hann öllu illu og beita hann ofbeldi ef hann neitaði að borga.
Lögreglan varar reglulega við fjársvikum og þá af ýmsu tagi. Það virðist vera að færast í aukana að fólk fái skilaboð frá óprúttnum aðilum sem villi á sér heimildir og geri tilraunir, misvelheppnaðar, til að svíkja af fólki pening. „Ég er beðinn um að hitta vin minn heima hjá honum og hann ætlar að segja mér einhverja sögu og ég kveið fyrir því að hann væri alvarlega veikur því það hljómaði svolítið þannig í símtalinu sem ég fékk,“ byrjar frásögn Jóns Þorsteins Sigurðssonar en hann mætti í Reykjavík síðdegis í gær, fimmtudaginn 17. júlí, til að segja frá slíku máli. Vatt fljótt upp á sig Vinur hans hafi heyrt í honum um miðjan júní þessa árs og beðið hann um að hitta sig. Því næst hafi hann sagt honum frá því að rúmum fjórtán mánuðum fyrr hafi komið til hans fólk sem átti eftir að kúga hann um fé og hóta honum öllu illu. Þau ætluðu að ljúga upp á hann alls konar og sögðust bara ætla að segja það sem hentaði,“ segir Jón frá og útskýrir að vinur hans hafi orðið óttasleginn og frekar en að „rugga bátnum, þá bara borgaði hann“. Fyrst um sinn hafi hann borgað nokkur hundruð þúsund krónur í senn en svo hafi þetta orðið að hærri upphæðum. Honum hafi verið sagt að peningurinn færi í að hjálpa börnum, greiða fermingarveislur, koma einhverjum manni í Svíþjóð undir læknishendur og annað slíkt. „Svo bara vatt þetta upp á sig og alltaf segir vinur minn mér að ástæðan fyrir því að hann borgi sé sú að hann hélt að þetta væri að verða búið,“ segir Jón en á því tímabili sem kúgunin stóð yfir fóru þeir vinirnir í ferðalög og hittust reglulega. „Allan þennan tíma er ég að umgangast þennan vin minn. Ég hitti hann reglulega, við borðum saman, við förum í ferðalög saman og svona. En hann sagði mér ekki orð.“ Sérsveitin kölluð til Það var ekki fyrr en á þjóðhátíðardaginn núna síðasta sem vinur Jóns fann sig knúinn til að segja frá. Þá hafi systkini hans komið að honum þar sem fólkið var að hóta honum ofbeldi og beina að honum hníf á heimili hans. „Það er þá sem lögreglan er kölluð á staðinn og beðin um að, sem sagt, þá senda þeir sérsveitina af því að það er vopnaburður þarna og verður til þess að þau átta sig á að hann er í þessari stöðu,“ útskýrir Jón. Eftir að hann hafi rætt málið við vin sinn hafi þeir strax hafist handa við að reyna að finna lögmann til þess að aðstoða hann við að leita réttar síns. Hann hafi óttast að fara til lögreglunnar, þá helst af skömm og hræðslu við að fólkið myndi þá tvíeflast í því að kúga af honum fjármuni. Fólkið hafði hann þekkt í gegnum tíðina en þau, sem og hann, séu Íslendingar. „Þetta er maður sem er búinn að vera mikið í tengslum við fólk í gegnum tíðina og bara hittir á þetta fólk einhvers staðar úti í bæ og það vindur svona upp á sig.“ Þegar upp er staðið greiddi hann fólkinu ríflega hundrað og átta milljónir, að sögn Jóns sem telur litlar líkur á því að þeir fáist til baka. Lögreglan sé með málið til rannsóknar en það hafi tekið fjórar tilraunir til þess að fá málið tekið upp. „Það var ekki fyrr en að lögmaðurinn sendi bréf á lögregluna að það var tekið vel á móti honum. Fram að því var óljóst hvar málið væri statt og þú veist, já, það liðu bara nokkrir dagar og jafnvel vikur bara frá því hann fór fyrst,“ segir Jón og bætir við „viðmótið sem við mættum þar hjá lögreglunni, ég hefði ekki viljað vera í hans stöðu á þessum tímapunkti.“ Missti aleiguna Vinur Jóns er sjötugur og segist Jón hafa átt erfitt með að fylgjast með honum lenda í þessu. Hann sé nú skuldum vafinn og hafi í raun misst aleiguna á þessum fjórtán mánuðum. Viðmót lögreglunnar hafi gert illt verra og haft virkilega slæm áhrif á hann, til hins verra. „Hann tók lán í eitt skiptið og segir mér að þau hafi komið þarna, þessi hópur, á heimilið hans og tekið símann hans, sett upp Aur-appið og tekið þar út einhverja tæpa milljón og bara lagt inn á sjálfan sig,“ segir Jón frá. Hann sé þá núna ábyrgur fyrir slíku láni enda hafi það verið greitt í gegnum hans síma, hann hafi notað rafræn skilríki og verið á staðnum en Jón segir hann einfaldlega ekki hafa þorað að streitast á móti. Það hafi verið þrír aðilar sem komu oftast við sögu en „svo kom einhver annar aðili sem hann kannaðist ekkert við og sagði: „Ég veit allt um þetta, ég skal hjálpa þér að ná þessum fjármunum til baka“ og sveik hann svo. Líkt og fyrr segir er málið á rannsóknarstigi að sögn Jóns sem vonast til þess að fólkið verði kallað í skýrslutöku þannig að það fái að segja þessa sögu. Hópurinn hafi ekkert haft samband við vin hans síðustu vikur en það hafi nokkrir grunaðir verið handteknir. „Við vitum ekki hversu lengi þeir verða lokaðir inni eða hvort þeir munu hafa samband seinna,“ segir hann. Uppfært 11:05: Áður kom fram að maðurinn sem um ræðir væri níræður. Við frekari eftirgrennslan reyndist maðurinn nær sjötugu.
Lögreglumál Eldri borgarar Efnahagsbrot Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis Innlent Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Innlent Fleiri fréttir Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í Miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Viðbrögð við sláandi PISA-könnun Ísland sé með rauða spjaldið í námsárangri barna „Ef þetta á að vera grín er þetta lélegt grín“ Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Sjá meira
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu
Aðalmeðferð hafin í Höfðatorgsmáli: Myndskeið sýnir fórnarlambið kastast upp í loft eftir ákeyrslu Innlent