Víkingur Reykjavík

Víkingur Reykjavík

Fréttir af Knattspyrnufélaginu Víkingi í Reykjavík.

Fréttamynd

„Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“

„Þetta er búið að vera langt tímabil og mikið af „upp og niður“-augnablikum. Bæði erfiðir tímar og frábærar stundir saman,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson um nýafstaðið tímabil með Víkingi. Hann varð aftur Íslandsmeistari með liðinu og var svo kosinn besti leikmaður ársins af leikmönnum Bestu deildarinnar.

Íslenski boltinn

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Treyja Gylfa fór á milljón

Góðgerðatreyja Víkings og 66° Norður sem Gylfi Þór Sigurðsson klæddist í lokaleik tímabilsins í 2-2 jafntefli við Fram seldist á eina milljón króna. Alls söfnuðust tæplega þrjár milljónir sem renna óskipt til Ingvars Jónssonar, markvarðar Víkingsliðsins.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður

Íslandsmeistarar Víkings spila síðasta leik tímabilsins næstkomandi laugardag í góðgerðartreyju sem er hönnuð af 66°Norður. Takmarkað magn af treyjum er til sölu og mun allur ágóði af sölunni renna óskiptur til markvarðarins Ingvars Jónssonar og fjölskyldu hans en hann greindist með krabbamein fyrr á árinu og háir nú baráttu við það.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Sætur sigur Sel­foss og Gunnar með full­kominn leik

Eftir að hafa lent neðst í Olís-deild kvenna í handbolta á síðasta tímabili en óvænt fengið tækifæri til að halda áfram í deildinni hafa Selfyssingar nú unnið tvo af fyrstu sex leikjum sínum. Valsmenn unnu öruggan sigur á Víkingum í Olís-deild karla í kvöld þar sem Gunnar Róbertsson hélt áfram að fara á kostum.

Handbolti
Fréttamynd

Gylfi seldi sumar­bú­staðinn á 85 milljónir

Knattspyrnumaðurinn Gylfi Sigurðsson hefur selt 152 fermetra sumarbústað sinn að Stangarbraut 27 í Öndverðarnesi. Gylfi keypti bústaðinn árið 2010 og seldi hann í ágúst til Guðmundar Hjaltasonar á 85 milljónir, tæpum fimm milljónum undir ásettu verði.

Lífið
Fréttamynd

Upp­gjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skaga­menn sóttu stig í Fossvoginn

Víkingur og ÍA gerðu 2-2 jafntefli á Víkingsvelli í 25. umferð Bestu deildar karla. Heimamenn komust í 2-0 með mörkum Valdimars Þórs Ingimundarsonar og Arons Elís Þrándarsonar en Skagamenn unnu sig inn í leikinn. Markús Páll Ellertsson minnkaði muninn fyrir hlé og sjálfsmark Olivers Ekroth í upphafi síðari hálfleiks tryggði ÍA stig.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val

Tveir leikir voru á dagskrá í lokaumferð neðri hluta Bestu deildar kvenna í gær þar sem þrjú lið börðust um að forðast tvö fallsæti. Þór/KA hélt sér uppi með sigri í Víkinni og felldi þar með Víking og Val.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

„Sorg­legt fyrir ís­lenskan fót­bolta“

Einar Guðnason þjálfari Víkings sagðist bera stærstan hluta ábyrgðarinnar á falli liðsins úr Bestu deild kvenna eftir tveggja marka tap gegn Þór/KA í lokaumferðinni. Hann sagði mistök á undirbúningstímabilinu og í gegnum mótið hafa reynst Víkingum dýrkeypt.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Upp­gjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild

Þór/KA tryggði sæti sitt í Bestu deild kvenna með tveggja marka sigri á Víkingi í Víkinni í lokaumferðinni. María Dögg Jóhannesdóttir og Erin Flurey skoruðu mörk norðankvenna á síðustu tuttugu mínútum leiksins eftir markalausan fyrri hálfleik. Úrslitin þýddu að Víkingur spilar á næsta tímabili í Lengjudeildinni ásamt Val en Þór/KA heldur sínu sæti í Bestu deildinni á næsta tímabili.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla

Þrjú lið berjast um síðasta örugga sætið í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld. Valskonur gætu fallið í fyrsta sinn og þurfa að treysta á jafntefli í Víkinni á milli Víkings og Þórs/KA sem bæði eiga á hættu að falla.

Íslenski boltinn
Fréttamynd

Haukar halda sigur­göngunni á­fram

Haukar sitja enn á toppi Olís-deildar karla eftir að liðið vann sannfærandi sigur á Víkingum í kvöld, 38-29. Haukar hafa ekki enn stigið feilspor í deildinni og byrja deildina sterkt.

Handbolti
Fréttamynd

Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi

Valur er enn á lífi í Bestu deild kvenna eftir að hafa gert 1-1 jafntefli við Víkinga sem eru einnig í harðri fallbaráttu. Taugatrekkjandi síðari hálfleikur sem einkenndist af fáum markverðum atvikum tryggði það að liðin skyldu jöfn sem þýðir að þrjú lið, Valur, Víkingur og Þór/KA, munu berjast um síðasta örugga sætið í Bestu deildinni næsta föstudag.

Íslenski boltinn