ÍA
1 2 3 4 5 6 … 18 ›
Uppgjörið: KR - ÍA 5-0 | Skemmtikraftarnir slógu ekki slöku við KR tók á móti ÍA og bauð upp á fimm marka flengingu í fjórðu umferð Bestu deildar karla. 5-0 niðurstaðan í Laugardalnum og KR enn ósigrað. ÍA hefur hins vegar tapað síðustu þremur leikjum. Fyrirliðinn Aron Sigurðarson sneri aftur úr leikbanni, skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. Atli Sigurjónsson kom inn af varamannabekknum og lagði upp síðustu tvö mörkin. Íslenski boltinn 27.4.2025 18:31
Hlutir sem Skagamenn sætta sig alls ekki við Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, segir að eftir tapið gegn Vestra í síðustu umferð Bestu deildarinnar hafi hann í fyrsta skiptið í mjög langan tíma verið virkilega ósáttur við sitt lið. Hann vill svar frá sínum mönnum í kvöld þegar KR tekur á móti ÍA og býst Jón Þór við skemmtilegum leik gegn öflugu, hröðu en oft á tíðum kaótísku liði KR. Fótbolti 27.4.2025 12:47
Stuðningsmenn Vestra úti í horni vegna kröfu um aðskilnað Þó að stuðningsmenn Vestra hafi getað fagnað góðum sigri gegn ÍA í gær þá er ekki hægt að segja að það hafi farið vel um þá í Akraneshöllinni. Ekki frekar en þann hluta stuðningsmanna ÍA sem ekki fengu sæti í stúkunni. Íslenski boltinn 24.4.2025 16:29
Uppgjörið: ÍA - Vestri 0-2 | Taplausir Vestramenn sóttu sigur á Skagann Vestri sótti 0-2 sigur gegn ÍA í Akraneshöllinni og er því enn ósigrað eftir þrjár umferðir. Daði Berg Jónsson og Diego Montiel skiptust á að skora og leggja upp fyrir gestina í fyrri hálfleik, Skagamönnum tókst síðan illa að skapa sér færi í seinni hálfleik gegn vel skipulagðri vörn. Íslenski boltinn 23.4.2025 17:18
„Vilhjálmur Birgisson vill meina að hann hafi uppgötvað mig sem þjálfara“ Tvíburarnir Arnar og Bjarki Gunnlaugsson tóku óvænt við þjálfun ÍA eftir nokkrar umferðir sumarið 2006. Nálgun þeirra á þjálfarahlutverkið var nokkuð óvenjuleg en þeir áttu sér hauk í horni í verkalýðsleiðtoganum Vilhjálmi Birgissyni. Íslenski boltinn 23.4.2025 09:01
ÍA og Vestri mætast inni Leikur ÍA og Vestra í 3. umferð Bestu deildar karla í fótbolta hefur verið færður inn í Akraneshöllina. Íslenski boltinn 20.4.2025 15:32
Koma strandaglópunum heim í kvöld Leiguflugvél á vegum Play mun fara frá Barselóna klukkan 20:15 á staðartíma í kvöld. Hún á að fljúga með strandaglópa til Íslands. Innlent 19.4.2025 13:42
„Þeir liggja hérna eins og hráviði út um allt“ Hátt í níutíu íslenskir piltar, þar af sjötíu undir lögaldri, eru fastir ásamt fylgdarliði á flugvellinum í Barselóna þessa stundina. Í hópnum eru allt niður í fjórtán ára börn og einhver enn þá yngri systkini. Drengirnir sem eru annars vegar Skagamenn og hins vegar Grindvíkingar voru í keppnisferð í fótbolta, að taka þátt í Daurada Cup í Salou. Pappírar sem gera fararstjórum kleift að ferðast með strákana renna út í dag. Innlent 19.4.2025 10:08
Skagamenn og Selfyssingar í sextán liða úrslit Bestu deildar lið ÍA og Lengjudeildarlið Selfoss komust í dag áfram í sextán liða úrslit Mjólkurbikars karla í fótbolta. Íslenski boltinn 18.4.2025 15:56
„Mínir menn geta borið höfuðið hátt“ Jón Þór Hauksson, þjálfari Skagamanna, var svekktur eftir 2-1 tap á móti Stjörnunni. Leikurinn var jafn á flestum vígstöðum og segir Jón Þór að þetta hefði getað dottið báðum megin. Íslenski boltinn 14.4.2025 22:11
Uppgjörið: Stjarnan - ÍA 2-1 | Tveir sigrar í röð hjá Stjörnumönnum Stjörnumenn sigruðu Skagamenn í miklum baráttuleik í Garðabænum í kvöld. Mikið jafnræði var með liðunum allan leikinn en heimamenn höfðu betur að lokum, 2-1, og hafa nú unnið báða sína leiki í Bestu-deild karla. Íslenski boltinn 14.4.2025 18:30
Bjarki gerði allt brjálað á Skaganum með því að kyssa KR-merkið Þrátt fyrir að hafa alist upp hjá ÍA var Bjarki Gunnlaugsson ekki vinsælasti maðurinn á Akranesi sumarið 1999. Íslenski boltinn 11.4.2025 09:01
Sjáðu glæsimark Rúnars Más og skrautlegt sjálfsmark á Hlíðarenda Sjö mörk voru skoruð í þremur leikjum í Bestu deild karla í gær. Fjögur þeirra komu á Akureyri þar sem KA og KR skildu jöfn. Íslenski boltinn 7.4.2025 09:03
„Sá það strax að boltinn myndi enda inni“ Rúnar Már Sigurjónsson skoraði markið sem færði Skagamönnum sigurinn þegar liðið sótti Fram heim í fyrstu umferð Bestu-deildar karla í fótbolta á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal í kvöld. Íslenski boltinn 6.4.2025 22:05
Uppgjörið: Fram - ÍA 0-1 | Stórglæsilegt mark Rúnars Más tryggði Skagamönnum sigurinn gegn Fram Skagamenn fara vel af stað í Bestu-deild karla en liðið lagði Fram að velli með einu marki gegn engu í leik liðanna í fyrstu umferð deildarinnar á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal í kvöld. Það var Rúnar Már Sigurjónsson sem gerði gæfumuninn fyrir Skagaliðið að þessu sinni. Íslenski boltinn 6.4.2025 18:30
Ærandi þögn þegar Elías Ingi lenti í lyftu með Skagamönnum Hvernig er að lenda í lyftu með manninum sem átti sinn þátt í að þú komst ekki í Evrópukeppni? Það fengu Skagamennirnir Jón Þór Hauksson og Viktor Jónsson að reyna. Íslenski boltinn 3.4.2025 12:02
Faðir Arnars og Bjarka fékk nóg og hótaði að berja George Kirby Endurkoma Georges Kirby á Akranes 1990 fór ekki eins og vonast var eftir. Faðir Arnars og Bjarka Gunnlaugssonar sagði Kirby meðal annars til syndanna. Íslenski boltinn 3.4.2025 09:00
Var kóngurinn 1995 en „algjörlega á botninum“ 1997 Arnar Gunnlaugsson sneri heim til Íslands með stæl sumarið 1995. Heimkoman tveimur árum seinna var hins vegar ekki jafn eftirminnileg og Arnar segir að hann hafi verið langt niðri á þeim tíma. Íslenski boltinn 2.4.2025 09:02
„Stærsta í þessu er ef Rúnar Már nær að spila meira“ Albert Ingason, sérfræðingur Stúkunnar, telur að ÍA geti barist um Evrópusæti, annað árið í röð. Miklu máli skipti ef Rúnar Már Sigurjónsson getur spilað meira en í fyrra. Íslenski boltinn 1.4.2025 11:01
Besta-spáin 2025: Vindur í Skagaseglin Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir ÍA 6. sæti Bestu deildar karla í sumar. Íslenski boltinn 1.4.2025 10:02
Snéru heim eins og rokkstjörnur og komust á súluna á Astró „Þeir koma til baka þarna ‘95 eins og einhverjar rokkstjörnur.“ Þetta segir Rósant Birgisson um æskuvini sína, tvíburabræðurna Arnar og Bjarka Gunnlaugssyni, þegar ævintýraleg endurkoma þeirra í íslenska boltann og ekki síður kraftmikil endurkoma í íslenska dægurmenningu, árið 1995, var rifjuð upp í fyrsta þætti af A&B. Fótbolti 31.3.2025 07:30
Gísli Laxdal snýr heim á Skagann Gísli Laxdal Unnarsson hefur yfirgefið Hlíðarenda og heldur heim á Skagann, þar sem hann skrifar undir þriggja ára samning við uppeldisfélagið ÍA. Íslenski boltinn 23.3.2025 21:07
„Rjóminn á kökuna fyrir okkur“ Ný aðstaða fyrir knattspyrnudeild Skagamanna mun gjörbreyta landslaginu fyrir félagið. Íslenski boltinn 17.3.2025 08:00
Hinrik farinn til Noregs frá ÍA Hinrik Harðarson er genginn til liðs við norska félagið Odds BK frá ÍA. Fótbolti 16.3.2025 18:11
Skagamenn spila í Bónus-deildinni í glænýju íþróttahúsi ÍA tryggði sér sæti í Bónus deild karla í körfubolta á næstu leiktíð eftir útisigur á Fjölni. Liðið er nú þegar búið að vinna 1. deildina. En aðstaða Skagamanna mun breytast gríðarlega strax á næsta ári. Körfubolti 11.3.2025 10:01
Skagamenn upp í Bónus deild karla ÍA tryggði sér í kvöld sæti í Bónus deild karla í körfubolta á næstu leiktíð en liðið tryggði sér þá sigur í 1. deildinni. Efsta liðið fer beint upp en hitt lausa sætið er undir í úrslitakeppninni. Körfubolti 7.3.2025 21:08
ÍA fær Baldvin frá Fjölni Miðvörðurinn Baldvin Þór Berndsen er genginn í raðir ÍA og skrifar undir samning á Akranesi út tímabilið 2027 í Bestu deild karla í fótbolta. Íslenski boltinn 25.2.2025 18:17
Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? Ég held að það deili enginn um það mat undirritaðs að félagsskipti Gylfa Þórs Sigurðssonar frá Val yfir í Víking í vikunni séu í hópi þeirra allra stærstu í sögu íslenskra knattspyrnu. En þekkjum við stærri félagsskipti hér á Íslandi? Íslenski boltinn 20.2.2025 09:01
Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna ÍA hefur verið duglegt að sanka að sér ungum og efnilegum leikmönnum frá því að tímabilinu í Bestu deild karla lauk í haust. Nú hafa Skagamenn sótt Jón Viktor Hauksson frá Haukum. Sá er fæddur 2009 og hefur verið viðloðandi yngstu landslið Íslands. Íslenski boltinn 18.2.2025 18:01
Körfuboltinn vaknaður á Akranesi: Níu sigrar í röð og stefna á Bónus-deildina Skagamenn hafa ekki átt lið í efstu deild karla í körfubolta í aldarfjórðung. Það gæti breyst á næstunni því ÍA hefur unnið níu leiki í röð og er á toppi 1. deildarinnar. Þjálfari Skagamanna segir að mikil körfuboltastemmning hafi myndast á Akranesi og vel hafi tekist að setja saman lið. Hann segir þó að árangur vetrarins hafi komið jafnvel honum á óvart. Körfubolti 18.2.2025 10:01