Faraldur kórónuveiru (COVID-19)
98 99 100 101 102 103 104 105 106 … 334 ›
Delta-afbrigðið veldur usla víða um heim Delta-afbrigði Nýju kórónuveirunnar er skæðasta afbrigði veirunnar sem veldur Covid-19 og hefur að miklu leyti snúið baráttunni gegn faraldrinum á haus. Afbrigðið dreifist auðveldar manna á milli en bóluefni virðast veita mikla vörn gegn alvarlegum veikindum meðal smitaðra. Erlent 26.7.2021 21:31
Ákvæði um loftræstingu fjarlægt úr sóttvarnarreglum Búið er að gera tvær breytingar á núgildandi takmörkunum á samkomum vegna Covid-19. Önnur breytingin snýr að því að fjölda- og nálægðartakmarkanir snúi einnig að börnum og hin snýr að ákvæði um loftræstingu. Innlent 26.7.2021 21:11
Leiknismenn í sóttkví eftir að leikmaður liðsins greindist með veiruna Leikmannahópur Leiknis R. er kominn í sóttkví eftir að leikmaður liðsins greindist með kórónaveiruna. Íslenski boltinn 26.7.2021 20:31
63,7 prósent landsmanna vilja stytta djammið varanlega Yfirgnæfandi meiri hluti landsmanna er hlynntur því að skemmtistöðum sé lokað fyrr á næturnar en gilti fyrir heimsfaraldur Covid-19. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Maskínu. Aðeins sextán prósent eru andvíg hugmyndinni. Innlent 26.7.2021 20:16
Vilja skýra sýn um framhald aðgerða Stjórnarandstaðan gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir stefnuleysi í sóttvarnaaðgerðum og vill fá skýrari sýn. Margir segjast hafa komið fram efasemdum um rýmkun reglna á landamærum þann 1. júlí. Innlent 26.7.2021 19:01
Skoða að kalla heilbrigðisstarfsmenn úr sumarfríi Verið er að skoða að kalla heilbrigðisstarfsfólk úr sumarfríi vegna stöðunnar í faraldri nýju kórónuveirunnar hér á landi. Þetta sagði Guðrún Aspelund yfirlæknir, á sóttvarnarsviði Landlæknisembættisins, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Innlent 26.7.2021 17:33
Tveir íbúar á Hlíf smitaðir Tveir íbúar á Hlíf, íbúðakjarna fyrir aldraða á Ísafirði, hafa greinst með kórónuveiruna. Þetta staðfestir Súsanna Björg Ástvaldsdóttir, umdæmislæknir sóttvarna á Vestfjörðum, í samtali við fréttastofu. Innlent 26.7.2021 16:17
Þriðji starfsmaður heilsugæslunnar greindist með veiruna Starfsmenn heimahjúkrunar á vegum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem greinst hafa með kórónuveiruna eru orðnir tveir. Áður hafði verið greint frá því að einn starfsmaður heimahjúkrunar hefði greinst, auk starfsmanns á heilsugæslunni Sólvangi, sem sinnti ungbarnaeftirliti. Innlent 26.7.2021 14:20
Þrettán starfsmenn Landspítala í einangrun með Covid-19 Á þriðja hundrað starfsmanna Landspítalans er í vinnusóttkví og talið er að þeim muni fjölga nokkuð í dag. Nú liggja þrír inni á spítala með virkt Covid-smit en einn inniliggjandi sjúklingur greindist smitaður af veirunni í dag. Innlent 26.7.2021 13:40
Upplýsingafundur verður haldinn á morgun Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar á morgun klukkan 11:00, þriðjudaginn 27. júlí. Innlent 26.7.2021 12:52
Eitt af verkefnum dagsins að fara yfir fjölmargar starfsumsóknir Um 160 manns dvelja nú í einangrun farsóttarhúsum á vegum Rauða krossins, þar af um fimmtán í þriðja farsóttarhúsinu sem opnað var í gær. Innlent 26.7.2021 12:30
Hert á reglum um sóttkví Hert verður á reglum um sóttkví sem verða þá eins og þær voru áður en bólusetningar hófust hér á landi. Ekki verður lengur tekið tillit til þess hvort útsettur einstaklingur sé bólusettur eða ekki, segir sérfræðingur á sóttvarnarsviði embættis landlæknis. Innlent 26.7.2021 12:10
Tveir starfsmenn Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu smitaðir Starfsmaður á heilsugæslunni Sólvangi og starfsmaður heimahjúkrunar Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu hafa greinst smitaðir af Covid-19. Þetta segir í tilkynningu frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Innlent 26.7.2021 11:45
Smit hjá Fylki og leiknum gegn Val frestað Leikmaður Fylkis hefur greinst með kórónuveiruna og liðið er komið í sóttkví. Íslenski boltinn 26.7.2021 11:15
71 greindist smitaður af Covid-19 í gær Í gær greindist 71 innanlands með Covid-19. Þar af voru 53 fullbólusettir og 16 óbólusettir. 46 voru utan sóttkvíar við greiningu. Tveir eru á sjúkrahúsi vegna sjúkdómsins og hefur fækkað um tvo á milli daga. Innlent 26.7.2021 10:42
Veit ekki hve lengi þau halda út án fleiri starfsmanna Stanslaust fjölgar í sýnatöku vegna Covid-19 hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnastjóri skimana sagðist í gær ekki vita hversu lengi hægt er að halda ástandið út ef ekki fengist fleira fólk til starfa. Innlent 26.7.2021 09:11
Ný rannsókn segir stafræn samskipti verri en engin samskipti Samskipti við ættingja og vini í gegnum fjarfundabúnað ollu því að margt eldra fólk fann fyrir auknum einmanaleika. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn á andlegri heilsu fólks í heimfaraldrinum í Bretlandi og Bandaríkjunum. Erlent 26.7.2021 08:04
Matvöruverslanir muni beina þeim tilmælum til viðskiptavina að bera grímur Fólk mun einungis þurfa að bera grímur þar sem ekki er unnt að tryggja eins metra fjarlægðarmörk á milli einstaklinga eða þegar húsnæði er illa loftræst. Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu gagnrýnir óskýrleika í reglugerð. Innlent 25.7.2021 20:58
Unnið að því að stoppa í þá leka sem leiddu til alvarlegrar hópsýkingar á Landakoti í fyrra: Sjúklingar skimaðir vikulega Formaður farsóttanefndar Landspítala vonar að búið sé að stoppa í þá leka sem leiddu til alvarlegrar hópsýkingar á Landakoti í fyrra. Nýjum loftræstibúnaði hefur meðal annars verið komið fyrir og sjúklingar verða skimaðir vikulega. Innlent 25.7.2021 20:01
Grunur um að nokkrir hafi sýkst tvisvar af Covid-19 hér á landi Grunur er um að þrír til fjórir einstaklingar hér á landi hafi sýkst af Covid-19 í annað sinn. Eru tilvikin nú til rannsóknar hjá vísindamönnum Landspítalans. Yfirlæknir smitsjúkdómadeildar segir að smit virðist almennt vera mun útbreiddari í samfélaginu nú en í fyrri bylgjum. Innlent 25.7.2021 19:45
Heilbrigðisráðuneytið áréttar reglur um grímuskyldu vegna meints misskilnings Á miðnætti tók gildi ný reglugerð um samkomutakmarkanir sem felur meðal annars í sér eins metra nálægðartakmörkun og grímuskyldu. Einhver óvissa hefur ríkt um grímuskylduna og hafa forsvarsmenn verslana meðal annars kallað eftir skýrari tilmælum frá heilbrigðisyfirvöldum. Innlent 25.7.2021 19:10
Segir mun meiri vörn felast í tveggja metra fjarlægðarreglunni en eins metra Yfirlögregluþjónn almannavarna segir mun meiri vörn felast í tveggja metra fjarlægðarreglunni en eins metra. Hann hefur áhyggjur af því hve illa gengur að hemja smitin sem nú séu komin út um allt land og finnast í öllum aldurshópum. Innlent 25.7.2021 18:31
Minnst 30 nemendur Flensborgar með Covid-19 eftir útskriftarferð Síðustu daga hafa 30 útskriftarnemendur Flensborgarskólans greinst með Covid-19 eftir heimkomu þeirra úr 80 manna útskriftarferð á Krít. Allir nemendurnir eru nú ýmist í sóttkví eða einangrun en hópurinn kom til landsins á föstudagskvöld. Innlent 25.7.2021 17:41
Farsóttarhúsin full og bráðvantar starfsfólk til að opna þriðja húsið Yfir 130 manns eru í einangrun á farsóttarhúsum Rauða krossins og eru hótelin tvö orðin full. Stefnt er að því að opna það þriðja í kvöld en það strandar á því að starfsfólk sárvantar. Innlent 25.7.2021 17:04
Íhugar að setja á laggirnar sóttvarnastofnun Heilbrigðisráðherra segir tímabært að horfast í augu við það að kórónuveiran verði hluti af okkar tilveru til lengri tíma. Því þarfnist heilbrigðiskerfi landsins varanlegrar styrkingar og að til greina komi að setja á laggirnar sérstaka sóttvarnastofnun. Innlent 25.7.2021 14:57
Engan áhuga á að prófa að hleypa veirunni inn á krabbameinsdeildir Yfirlæknir á Landspítalanum segir það vonbrigði hve illa bólusetningin virðist hemja veiruna meðal fólks þó að bólusetningin dragi verulega úr alvarlegum veikindum. Innlent 25.7.2021 14:20
Ráðherrar skuldi þjóðinni afsökunarbeiðni á kolrangri sóttvarnarstefnu Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins og frambjóðandi flokksins í komandi Alþingiskosningum, segir að ríkisstjórnin eigi að biðja þjóðina afsökunar á því sem hann segir kolranga sóttvarnarstefnu sem sé rekin gegn augljósum meirihlutavilja þjóðarinnar. Innlent 25.7.2021 13:55
Veiran úti um allt samfélag, allt land og í öllum aldurshópum Yfirlögregluþjónn almannavarna segir að í þessari fjórðu bylgju faraldurins smiti hver og einn fleiri út frá sér en áður. Smit sé nú komið um allt land og finnst í öllum aldurshópum. 88 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru 54 utan sóttkvíar við greiningu. Innlent 25.7.2021 12:25
88 greindust smitaðir innanlands 88 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Þar af greindust sex smit í handahófssýnatökum en 82 í einkennasýnatökum. 14 af þeim sem greindust voru óbólusettir. Innlent 25.7.2021 10:44
Ríkisstjórnin á að biðja þjóðina afsökunar Í dag eru 500 dagar síðan að fyrst voru settar á samkomutakmarkanir á Íslandi vegna kórónafaraldursins. Og þetta er líka fyrsti dagurinn í nýjum takmörkunum. Skoðun 25.7.2021 07:30