Vopnafjörður
1 2 3 4 5 6 … 6 ›
Nýr loðnukvóti ávísun á yfir tíu milljarða króna gjaldeyristekjur Hafrannsóknastofnun leggur til að loðnukvótinn tvöfaldist frá því sem áður var búið að gefa út, samkvæmt nýrri ráðgjöf sem birt var í kvöld. Ægir Páll Friðbertsson, framkvæmdastjóri Brims hf., segir varlega áætlað verðmæti þess sem fellur í hlut íslenskra skipa vel yfir tíu milljarðar króna í útflutningsverðmæti. Viðskipti innlent 4.2.2021 22:56
Fundu loðnu mjög víða við landgrunnsbrúnina Umfangsmestu loðnuleit til þessa á Íslandsmiðum lýkur í kvöld þegar rannsóknarskipið Árni Friðriksson klárar síðasta leitarlegg sinn á Víkurál, syðst á Vestfjarðamiðum, djúpt vestur af Kollsvík. Tvö rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar og sex fiskiskip frá útgerðum stefna síðan öll til lands og tvö þegar lögst að bryggju. Viðskipti innlent 30.1.2021 21:35
Verja tuttugu milljónum króna á dag í loðnuleit í von um tugmilljarða vertíð Átta skip leita nú ákaft að loðnu á Íslandsmiðum, tvö rannsóknaskip Hafrannsóknastofnunar og sex fiskiskip frá útgerðum, í umfangsmestu loðnuleit til þessa. Hver leitardagur kostar um tuttugu milljónir króna. Viðskipti innlent 28.1.2021 21:45
Átta skip í ákafri loðnuleit: „Nú á hún ekki að sleppa“ Loðnuleitin sem hófst um síðustu helgi er orðin mun umfangsmeiri en áður var gert ráð fyrir. Í fyrstu var miðað við þrjú til fjögur skip en núna eru þau orðin átta talsins, tvö rannsóknarskip Hafrannsóknastofnunar og sex uppsjávarveiðiskip frá útgerðum; öll að leita loðnunnar. Viðskipti innlent 27.1.2021 17:32
Klárir að taka loðnunótina um borð og halda til veiða Skipstjórinn sem fann þykkar loðnutorfur á Austfjarðamiðum um helgina segir áhöfnina tilbúna að hefja veiðar. Búist er við að það skýrist á morgun hvort Hafrannsóknastofnun gefi grænt ljós á loðnuvertíð. Viðskipti innlent 20.1.2021 21:02
Segir mikilvægt að kanna einnig hvort loðna sé fyrir Norðurlandi Loðnuleitin á Austfjarðamiðum hefur haldið áfram í dag. Uppsjávarveiðiskipin þrjú, Ásgrímur Halldórsson, Polar Amaroq og Bjarni Ólafsson, með starfsmenn Hafrannsóknastofnunar um borð í tveimur fyrrnefndu, hafa verið að skanna hafsvæðið norður með landgrunnskantinum út af Austfjörðum. Viðskipti innlent 19.1.2021 13:52
Forstjóri Hafrannsóknastofnunar heldur í vonina um loðnuvertíð Ekki er grundvöllur til að hefja loðnuveiðar þar sem mun minna mældist af loðnu í nýafstöðnum loðnuleiðangri en í desember. Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, er þó ekki tilbúinn að afskrifa loðnuvertíð í vetur. Viðskipti innlent 12.1.2021 20:38
Fimm skip kappkosta að finna loðnu á næstu tveimur vikum Floti fimm skipa, þar af tveggja hafrannsóknaskipa, er að leggja úr höfn til víðtækrar loðnuleitar. Vonir eru bundnar við að niðurstöðurnar verði ávísun á tuttugu til þrjátíu milljarða króna loðnuvertíð á næstu vikum. Viðskipti innlent 4.1.2021 20:50
Hofsá líklega skosk og íslenska fjallasýnin stafræn Atriði í Netflix-þáttaröðinni The Crown, sem sýna Karl Bretaprins í veiðiferð í Hofsá í Vopnafirði, er ekki tekið upp við ána – og að öllum líkindum ekki einu sinni tekið upp á Íslandi, að sögn framkvæmdastjóra veiðiklúbbsins sem rekur Hofsá. Innlent 16.11.2020 14:14
Heldur enn í vonina um myndarlega loðnuvertíð Þriðja árið í röð stefnir í loðnubrest en Hafrannsóknastofnun lagði til í dag að áður útgefinn upphafskvóti yrði afturkallaður. Talsmaður sjávarútvegsfyrirtækja heldur enn í vonina og hvetur til öflugrar loðnuleitar í vetur. Innlent 16.10.2020 21:42
Loðnuleit næstu vikur gæti orðið ávísun á tugmilljarða innspýtingu Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson lagði í dag upp í þriggja vikna loðnuleitarleiðangur. Bjartsýni ríkir í sjávarútvegsgeiranum um komandi loðnuvertíð eftir vonbrigði síðustu ára. Innlent 14.9.2020 21:37
Hreppsráð sér ekki hag sinn í að taka við rekstri flugvallarins Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps segist ekki sjá hag sinn í því að sveitarfélagið taki yfir rekstur flugvallarins við bæinn af Isavia líkt og hefur verið til umræðu. Áréttað sé að það sé ekki hlutverk sveitarfélagsins að standa í slíkum rekstri. Innlent 9.9.2020 07:39
Sóttvarnir til fyrirmyndar á Austurlandi Sóttvarnaráðstafnir hjá vertum á Austurlandi virðast vera til fyrirmyndar, ef marka má umsögn lögreglunnar. Innlent 14.8.2020 15:37
Hætta skipulagðri leit að skipverjanum á Vopnafirði Skipulagðri leit lögreglu að skipverjanum Axel Jósefssyni Zarioh hefur verið hætt. Áfram verður þó haldið af hálfu björgunarsveitarinnar Vopna á Vopnafirði með leit á sjó og í fjöru en dregið úr þunga þeirrar leitar og skipulagi. Innlent 25.5.2020 13:30
Leit að skipverjanum lokið í dag Leit að Axel Jósefssyni Zarioh, skipverjanum sem leitað hefur verið í Vopnafirði undanfarna daga er lokið í dag án árangurs. Innlent 24.5.2020 17:56
Leit að skipverjanum heldur áfram í dag Ekki var unnt að leita í gær sökum slæmra veðurskilyrða. Innlent 24.5.2020 10:19
Leit að skipverjanum frestað vegna veðurs Leit að Axel Jósefssyni Zarioh, skipverja sem talinn er hafa fallið fyrir borð fiskiskips í Vopnafirði á mánudag hefur verið frestað til morguns vegna veðurs. Innlent 23.5.2020 10:39
Fresta leit að átján ára skipverja í dag vegna erfiðra skilyrða Leit að skipverja sem talinn er hafa fallið fyrir borð fiskiskips í Vopnafirði á mánudag er lokið í dag. Innlent 22.5.2020 18:04
Nota sérstakan leitarpramma við leitina að skipverjanum Björgunarsveitir hófu á ný leit að skipverja í Vopnafirði í morgun. Innlent 22.5.2020 11:33
Leit að skipverjanum hætt í dag Leit að skipverja sem talinn er hafa fallið fyrir borð fiskiskips í Vopnafirði á mánudag er lokið í dag. Þetta staðfestir Hinrik Ingólfsson, formaður björgunarsveitarinnar Vopna, í samtali við Vísi. Innlent 21.5.2020 16:01
Ganga fjörur í leit að sjómanninum Leit að sjómanninum sem féll útbyrðis af netabát við Vopnafjarðarhöfn hófst aftur klukkan tíu í morgun. Björgunarsveitir munu ganga fjörur á svæðinu í dag. Innlent 21.5.2020 12:18
Leit að skipverjanum hafin að nýju Leit að skipverja sem saknað hefur verið síðan á mánudag hófst að nýju í Vopnafirði í morgun, samkvæmt áætlun. Innlent 20.5.2020 12:06
Leit hefur ekki borið árangur og verður haldið áfram Um 140 menn frá björgunarsveitum af Austur- og norðuausturlandi hafa komið að leitinni í dag auk Landhelgisgæslunni og lögreglunni. Innlent 19.5.2020 18:38
Nota sérútbúinn drónakafbát við leitina Leit að skipverjanum sem talið er hafa fallið útbyrðis af fiskiskipi í Vopnafirði í gær stendur enn yfir. Innlent 19.5.2020 11:59
„Það verða gengnar fjörur í allan dag ef þörf er á“ Björgunarsveitir munu nú klukkan níu halda áfram leit að skipverja sem talið er hafa fallið útbyrðis af fiskiskipi á leið til hafnar í Vopnafirði í gær. Innlent 19.5.2020 07:53
Leit að skipverjanum stendur enn yfir Sveitir Landhelgisgæslu, lögreglu og björgunarsveitarinnar Vopna á Vopnafirði leita enn að skipverjanum sem talinn er hafa fallið fyrir borð af fiskiskipi á leið þess til hafnar fyrr í dag. Innlent 18.5.2020 22:05
Sjómanns saknað af fiskiskipi: Þyrla með fimm kafara send á Vopnafjörð Þyrla landhelgisgæslunnar TF-GRO lenti nú um klukkan sjö á Vopnafirði með fimm kafara úr séraðgerðasveit, vegna leitar að sjómanni sem saknað var eftir að skipið kom til Vopnafjarðar. Innlent 18.5.2020 19:14
Sara Elísabet næsti sveitarstjóri á Vopnafirði Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps hefur lagt til við sveitarstjórn að ráða Söru Elísabetu Svansdóttur í starf sveitarstjóra út kjörtímabilið. Innlent 12.5.2020 12:02
Lýsa yfir vonbrigðum með ráðamenn og Hafró vegna loðnuveiða Sveitarstjórnir fimm sveitarfélaga hafa lýst yfir miklum vonbrigðum með að sjávarútvegsráðherra, stjórnvöld og Hafrannsóknarstofnun skuli ekki hafa gefið út rannsóknarkvóta á loðnu nú þegar hrygning stofnsins hefst. Innlent 6.3.2020 14:05
Hættir sem sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Þór Steinarsson vísar til ólíkrar sýnar sinnar og sveitarstjórnarinnar á hlutverk og störf sveitarstjóra um ástæður brotthvarfs síns. Innlent 15.2.2020 08:24