Grænland
1 2 3 4 5 6 7 … 22 ›
Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni „Ég verð að segja eins og er að þessi nýjustu skilaboð frá Bandaríkjaforseta eru mikil vonbrigði og áhyggjuefni. Ekki síst fyrir líkt þenkjandi þjóðir sem trúa á frelsi, lýðræði og alþjóðalög og virðingu fyrir þeim. Þetta eru mikil vonbrigði.“ Erlent 18.1.2026 14:03
Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Löndin sem Trump hefur hótað háum tollum gangi þau ekki að óskum hans um að styðja innlimun hans á Grænlandi hafa gefið út sameiginlega yfirlýsingu. Þau segjast tilbúin til viðræðna en að þeim verði ekki hnikað hvað fullveldi þeirra varðar. Erlent 18.1.2026 13:58
Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Sendiherrar Evrópusambandsins koma saman á neyðarfundi seinna í dag vegna Grænlandstolla Bandaríkjaforseta. Alþjóðastjórnmálafræðingur segir samband Bandaríkjanna og Evrópu aldrei hafa verið verra. Hún útilokar ekki að Ísland bætist á lista forsetans. Innlent 18.1.2026 12:56
Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Emmanuel Macron, forseti Frakklands, kallar eftir því að Evrópusambandið beiti „ofurvopni“ sínu gegn Bandaríkjunum vegna aðgerða Donalds Trump varðandi Grænland. Utanríkisráðherra Danmerkur segir erfitt að átta sig á Bandaríkjamönnum og forsætisráherra Ítalíu segir Bandaríkjamenn ekki skilja Evrópumenn. Erlent 18.1.2026 12:10
Greipur telur Trump hafa ruglast á Grænlandi og Íslandi Grínistinn Greipur telur nokkuð víst að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hafi ruglast á Grænlandi og Íslandi. Hann vilji ekki í rauninni eignast Grænland heldur Íslands vegna þess hvernig víkingarnir nefndu löndin til að gabba fólki. Lífið 18.1.2026 10:41
Myndir: Þúsundir mótmæltu á Grænlandi Íbúar Nuuk létu rigningu ekki stöðva sig í gær og mótmæltu í þúsundatali. Mótmæli voru einnig haldin í smærri byggðum landsins stóra, þar sem fólk stóð saman gegn hótunum ráðamanna í Bandaríkjunum. Erlent 18.1.2026 09:02
Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Verslunarsamningur Bandaríkjanna og Evrópusambandsins frá því í fyrra er í uppnámi þar sem meirihluti á Evrópuþingi vill ekki lengur staðfesta samkomulagið í kjölfar þess að Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði átta Evrópulöndum með tollum í tengslum við Grænland. Erlent 17.1.2026 23:24
Evrópuleiðtogar bregðast við: „Við látum ekki fjárkúga okkur“ Forsætisráðherra Bretlands segist munu ræða við Bandaríkjastjórn um fyrirhugaða Grænlandstolla. Leiðtogar Evrópu stilla nú saman strengi eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti boðaði tolla gegn átta NATO-ríkjum vegna þess að þau sendu mannskap til Grænlands í hernaðaræfingu. Erlent 17.1.2026 20:45
Macron: „Engin ógnun eða hótun mun hafa áhrif á okkur“ Frakklandsforseti segir að Evrópulönd muni svara fyrirhuguðum Grænlandstollum Donalds Trump Bandaríkjaforseta, taki þeir gildi. Hótanir Bandaríkjamannsins séu óásættanlegar og dragi ekki úr stuðningi Frakklands við Danmörku. Erlent 17.1.2026 19:09
Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra lýsir yfir stuðningi við Grænland og Danmörku í kjölfar þess að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur boðað tolla á lönd sem styðja Grænland. Hún segist ekki trúa því að tollastríð „færi okkur nær lausn í þessu máli“ en Trump vill leggja undir sig landið. Innlent 17.1.2026 18:43
Ekki útilokað að Ísland sæti Grænlandstollum Ekki er útilokað að Donald Trump Bandaríkjaforseti leggi toll á Ísland, að mati stjórnmálafræðings, rétt eins og forsetinn hyggst gera við fjölda Evrópuríkja vegna stuðnings þeirra við Grænland. Stjórnmálafræðingurinn segir að aðferðir Trumps séu komnar á svo alvarlegt stig að Evrópulönd geti ekki lengur útilokað innrás Bandaríkjamanna í Grænland. Erlent 17.1.2026 18:38
Þyrfti líklega að leggja toll á allt Evrópusambandið Donald Trump Bandaríkjaforseti á ekki að geta lagt sérstaka tolla á Danmörku án þess að leggja tolla á öll Evrópusambandsríkin enda eru þau í tollabandalagi. Forsetinn hótar nú vinalöndum Grænlands með tolli, í von um að það auðveldi Bandaríkjamönnum að leggja landið undir sig. Erlent 17.1.2026 17:59
Boðar 10 prósenta toll á Norðurlönd, Breta, Frakka, Þjóðverja og fleiri Donald Trump hyggst leggja tíu prósenta toll á allar vörur frá Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Frakklandi, Bretlandi, Hollandi og Finnlandi frá og 1. febrúar vegna þess að fyrrnefnd lönd styðja ekki innlimun Bandaríkjanna á Grænlandi. Erlent 17.1.2026 16:37
Þúsundir baula á bandaríska sendiherrann Fjöldafundir til stuðnings Grænlandi fara nú fram víðs vegar um Danmörku. Mikill fjöldi fólks hefur komið saman á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn og sömuleiðis í Árósum, Óðinsvéum og Álaborg. Erlent 17.1.2026 13:58
Danmörk „pínulítið land“ með „pínulítinn her“ Einn nánasti ráðgjafi Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, segir Dani ekki geta varið Grænland. Danmörk sé pínulítið ríki, með pínulítinn efnahag og pínulítinn her. Hann segir ósanngjarnt að Bandaríkjamenn eigi að verja fúlgum fjár í að byggja upp varnir á Grænlandi og eyríkið eigi áfram að tilheyra Danmörku en ekki Bandaríkjunum. Erlent 17.1.2026 09:15
Hótar tollum á ríki sem standa með Grænlendingum Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist mögulega ætla að beita ríki þar sem ráðamenn eru ekki fylgjandi ætlunum hans varðandi yfirtöku Grænlands tollum. Erlent 16.1.2026 16:08
Milljónir Bandaríkjamanna hafi þungar áhyggjur vegna Grænlands „Ég er hér í dag vegna þess að milljónir Bandaríkjamanna hafa þungar áhyggjur af orðræðunni um yfirtöku Bandaríkjanna á Grænlandi, annað hvort með því að kaupa landið eða beita hervaldi,“ sagði öldungadeildarþingmaðurinn Jeanne Shaheen nú fyrir hádegi. Erlent 16.1.2026 12:39
„Þetta er ekki það sem við samþykktum“ Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, sagði í gær að ef Bandaríkin virtu ekki yfirráðarétt Danmerkur yfir Grænlandi og sjálfsákvörðunarrétt Grænlendinga yrði nýskipaður starfshópur um framtíð Grænlands líklega skammlífur. Erlent 16.1.2026 07:39
Kynþáttahyggja forseta Bandaríkjanna og Grænland Hótanir Trump forseta Bandaríkjanna um að leggja undir sig Grænland, næsta nágranna Íslands, með góðu eða illu hafa vakið ugg í brjósti margra. Í DV í dag, 15. janúar, segir Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrv. forseti Íslands, sem þekkir fleiri bandaríska ráðamenn en flestir íslenskir stjórnmálamenn, að hann útiloki ekki að Bandaríkin muni taka Grænland með valdi en segir jafnframt að: „Afleiðingarnar yrðu af stærðargráðu sem við höfum aldrei séð á okkar lífskeiði.“ Skoðun 15.1.2026 16:00
Búast við enn betri rekstrarafkomu og hækka verðmatið á Amaroq Amaroq fer inn í nýtt ár í sterkri stöðu eftir að hafa náð markmiðum sínum um gullframleiðslu og birt borniðurstöður í Nanoq-verkefninu sem voru umfram væntingar, að sögn erlendra greinenda, og útlit er fyrir að afkoma félagsins verði betri en áður var spáð. Af þeim sökum hefur verðmat á félaginu verið hækkað um fjórðung. Innherjamolar 15.1.2026 11:55
Grín sendiherrans ógni Íslandi Þingmaður Viðreisnar telur grín mögulegs sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi ógna fullveldi smárra ríkja á við Ísland. Útvarpsmaður hefur efnt til undirskriftarlista til að fá utanríkisráðherra til að hafna sendiherranum. Innlent 15.1.2026 11:48
Ólafur Ragnar við CNBC: Afleiðingarnar „gífurlegar“ ef Bandaríkin tækju Grænland með valdi Vestræn samvinna og heimsskipanin sjálf yrði fyrir gífurlegum áhrifum ef Bandaríkjamenn tækju Grænland með hervaldi, að sögn Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta. Hann gerir lítið úr mögulegri ógn af Kína og Rússlandi á norðurslóðum í viðtali við bandarískan fjölmiðil. Erlent 15.1.2026 10:35
Stuðningur við Grænland ómetanlegur og hvetur Íslendinga til að mæta Formaður Landssamtaka Grænlendinga í Danmörku hvetur Íslendinga og aðra sem búsettir eru í Danmörku til að sýna samstöðu með Grænlendingum í verki með því að mæta á samstöðumótmæli sem skipulögð hafa verið víðsvegar um Danmörku á laugardaginn. Hún segir Grænlendinga þurfa á andlegri fyrstu hjálp að halda í ljósi málflutnings Bandaríkjaforseta um að vilja eignast landið, með einum eða öðrum hætti. Erlent 14.1.2026 22:43
Vilja geta sett herlög á eyju norðan Íslands Norsk stjórnvöld hafa vegna óvissu í varnar- og öryggismálum kynnt áform um að lög um herlögreglu verði látin gilda á Jan Mayen. Breytingin þýddi að Norðmenn gætu framfylgt herlögum á þessari nágrannaeyju Íslands. Erlent 14.1.2026 21:41
Tveir fulltrúar taka þátt í aukinni hernaðarviðveru Tveir fulltrúar Landhelgisgæslunnar taka þátt í aukinni hernaðarviðveru Atlantshafsbandalagsins á Grænlandi. Þeir munu aðstoða við undirbúningar æfingarinnar Arctic Endurance sem hófst í dag og felur í sér verulega aukningu herafla á Grænlandi sem harla óvenjulegt telst að hafi verið hrundið fyrir tilviljun af stað akkúrat í dag. Innlent 14.1.2026 18:09
Sögulega hátt gullverð ýtir upp verðmati á Amaroq um nærri þrjátíu prósent Á meðan gullverð helst sögulega hátt og framleiðslan er að aukast þá ætti sjóðstreymið hjá Amaroq, að sögn greinenda bresks fjárfestingabanka, að batna mjög hratt á næstunni en þeir hafa hækkað verulega verðmat sitt á félaginu og ráðleggja fjárfestum að bæta við sig hlutum. Innherji 14.1.2026 16:22
Sautján prósent Bandaríkjamanna styðja innlimun Grænlands Um það bil sautján prósent Bandaríkjamanna styðja fyrirætlanir Donald Trump Bandaríkjaforseta um að sölsa undir sig Grænland. Þá eru fjögur prósent fylgjandi hernaðaríhlutun. Erlent 14.1.2026 11:47
Vaktin: Stofna vinnuhóp um framtíð Grænlands Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands, auk varaforseta Bandaríkjanna, hafa sammælst um að stofna vinnuhóp um framtíð Grænlands. Erlent 14.1.2026 11:40
Fundurinn í Washington gæti reynst örlagaríkur Afdráttarlaus ummæli sem forsætisráðherrar Grænlands og Danmerkur létu falla á sameiginlegum blaðamannafundi í Kaupmannahöfn í dag ættu að senda stjórnvöldum í Washington skýr skilaboð um að Grænland sé ekki til sölu, grænlenska þjóðin fáist ekki keypt, og að ríkin standi saman um að standa vörð um landamæri danska konungsríkisins. Á sama tíma þykir blaðamannafundurinn hafa verið til marks um mikilvægi þess að dönsk og grænlensk stjórnvöld komi samstillt til fundarins í Hvíta húsinu á morgun þar sem mikið er í húfi fyrir grænlensku þjóðina. Erlent 13.1.2026 20:21
„Við veljum Danmörku“ Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, og Jens-Frederik Nielsen, formaður grænlensku landsstjórnarinnar, héldu sameiginlegan blaðamannafund síðdegis þar sem afstaða ríkjanna var áréttuð um að Grænland væri ekki til sölu. Jens-Frederik sagði skýrt að ef valið stæði á milli Bandaríkjanna og Danmerkur, þá velji grænlensk stjórnvöld danska konungsríkið, Evrópusambandið og NATO. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Íslands, mun funda með norrænum kollegum síðar í dag vegna málsins. Erlent 13.1.2026 15:22