Fjölmiðlar

Fréttamynd

Birta bréf sem Epstein á að hafa skrifað áður en hann lést

Alríkisdómari í New York í Bandaríkjunum samþykkti í dag að birta opinberlega bréf sem Jeffrey Epstein á að hafa skrifað í fangelsi. Klefafélagi hans sagðist hafa fundið bréfið í myndasögu. Í frétt New York Times segir að þau hafi ekki staðfest rithönd Epstein í bréfinu.

Erlent
Fréttamynd

Ekki hafi tekist að sanna að brotið hafi verið á frið­helgi Páls

Dómari í máli Páls Steingrímssonar gegn Ríkisútvarpinu og Þóru Arnórsdóttur, fyrrverandi starfsmanni RÚV, segir í niðurstöðu dómsins að ekki hafi tekist að sanna að Þóra og aðrir starfsmenn RÚV hafi brotið á friðhelgi einkalífs hans. Þau voru í dag sýknuð af öllum kröfum Páls en hann krafðist milljóna í miskabætur vegna ætlaðra brota þeirra gegn friðhelgi einkalífs hans.

Innlent
Fréttamynd

Almar í kassanum ætlar að sækja um hjá Fox-sjón­varps­stöðinni

Almar Steinn Atlason myndlistarmaður, sem jafnan er kenndur við glerkassann sem hann dvaldi í þegar hann framdi frægasta listagjörning sem gerður hefur verið á Íslandi, þá á 1. ári í Listaháskólanum, ætlar að sækja um sérstakt starf sem Fox Sports hefur auglýst laust til umsóknar.

Lífið
Fréttamynd

Ted Turner er látinn

Ted Turner, sem er hvað þekktastur fyrir að hafa stofnað bandarísku sjónvarpsstöðina CNN og haft þannig gífurleg áhrif á þróun fjölmiðla í heiminum, er látinn. Hann var 87 ára gamall en árið 2018 greindi hann frá því að hann hefði greinst með Lewy body heilabilun.

Erlent
Fréttamynd

Gjör­sam­lega út í hött að þurfa að hanga svo lengi í stúdíóinu

Ólafur Þ. Harðarson og Bogi Ágústsson segja þingmenn bera alla ábyrgð á því hve miklar tafir séu á talningu atkvæða á kjördegi í kosningum hér á landi. Ýmsar breytingar hafi verið lagðar til sem gætu flýtt öllu ferlinu sem þingmenn hafi ekki orðið við. Þá segist Bogi myndu stefna ríkinu og fara með það alla leið hefði hann tök á því til að fá misvægi atkvæða milli kjördæma leiðrétt.

Innlent
Fréttamynd

Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv

Erla Björg Gunnarsdóttir hefur verið ráðin menningarritstjóri Rúv. Erla lét af störfum sem ritstjóri fréttastofu Sýnar fyrr á árinu. Alls sóttu 48 um starfið og má sjá lista umsækjenda að neðan.

Innlent
Fréttamynd

Hætta á ferðum í fjöl­miðlun á Ís­landi

Öll fyrri viðmið um heilbrigðan fjölmiðlamarkað á Íslandi eru hrunin. Á síðustu 15–20 árum hefur blaðamönnum í landinu fækkað um meira en helming og starfa nú vel innan við þúsund manns að því sem við myndum skilgreina sem sjálfstæða fréttaþjónustu, dagskrárgerð og blaðamennsku.

Skoðun
Fréttamynd

Nýir eig­endur taka við svæðismiðlinum Trölla.is

Hjónin Selma Hrönn Maríudóttir og Smári Valtýr Sæbjörnsson hafa tekið við rekstri svæðismiðilsins Trölli.is. Frá því er greint í tilkynningu á vef miðilsins. Í tilkynningunni segir að þau ætli að setja fókus á afmarkaðra svæði og leggja sérstaka áherslu á lífið í Fjallabyggð og Fljótum.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri segir Jón Gnarr ekki hafa sent reikning á Ríkisútvarpið vegna umdeilds grínatriðis í Vikunni með Gísla Marteini og þar af leiðandi hafi hann ekki fengið greitt fyrir það. Hefði hann sent reikning hefði hann, líkt og aðrir listamenn sem koma fram í þáttunum, fengið laun. 

Innlent
Fréttamynd

Reyndist sann­spár um koss dauðans

Freyr Gígja Gunnarsson er nýr upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins. Fyrir rúmu ári hreppti hann blaðamannaverðlaun ársins fyrir fréttaskýringar í Spegli Ríkisútvarpsins. Þegar hann veitti verðlaununum viðtöku nefndi hann þau „koss dauðans“ með vísan til þess að menn hefðu ekki fyrr fengið þessi verðlaun en að þeir væru mynstraðir í störf hjá hinu opinbera.

Lífið
Fréttamynd

Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“

Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar og grínisti, segist ekkert hafa fengið greitt fyrir framkomu sína í Vikunni hjá Gísla Marteini, eins og fram kom í máli útvarpstjóra samkvæmt fundargerð stjórnar Rúv. Greint var frá málinu á mbl.is í morgun en Jón sakar Morgunblaðið um óvandaða blaðamennsku og „pólitískan hráskinnaleik.“

Innlent
Fréttamynd

Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leið­beiningar

Í uppfærðum leiðbeiningum Fjölmiðlanefndar um hlaðvörp kemur fram að ekki megi auglýsa nikótínvörur í hlaðvörpum né heldur áfengi. Þá er enn fremur tekið fram að hlaðvörp sem skilgreind eru sem fjölmiðlar njóti ýmissa réttinda, svo sem verndar heimildarmanna.

Innlent
Fréttamynd

Stór brjóst eru stór

Hin árlega Wireless tónlistarhátíð, sem fara átti fram í sumar í almenningsgarði skammt þar frá sem ég bý í London, hefur verið blásin af. Er það gert í kjölfar þess að rapparanum Kanye West, aðalstjörnu hátíðarinnar, var synjað um rafrænt ferðaleyfi til Bretlands vegna ásakana um að hann sé nasisti.

Lífið
Fréttamynd

Atli og Sunna nýir frétta­stjórar og Árni vara­frétta­stjóri

Atli Ísleifsson og Sunna Sæmundsdóttir hafa tekið við stöðum fréttastjóra á fréttastofu Sýnar. Þá er Árni Sæberg orðinn varafréttastjóri á fréttastofunni. Kolbeinn Tumi Daðason er ritstjóri fréttastofunnar sem segir landsmönnum fréttir á Bylgjunni, Sýn og Vísi.

Innlent
Fréttamynd

Gunnar Smári rís upp úr „rotnandi holdi“ í sumar

Gunnar Smári Egils­son, fjölmiðla­maður og prímus mótor Sam­stöðvarinnar, glímir enn við af­leiðingar þeirra al­var­legu veikinda sem hafa í tví­gang lagt hann inn á hjarta­deild. Þeim sem í sumar­byrjun for­vitnast um líðan hans segist hann hafa það „skítt og lagó“ en hann verði góður í sumar.

Lífið
Fréttamynd

Ís­land: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“

Þegar ég fullyrti við breskan vin minn að Ísland væri spilltasta ríki Norðurlanda skellihló hann. Honum fannst lítið til áþjánar landsmanna koma og sagði: „Að vera spilltasta ríkið á Norðurlöndum er eins og að vera lauslátasta nunnan í klaustrinu.“

Lífið
Fréttamynd

Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg

Ingólfur Þórarinsson, sem betur er þekktur sem Ingó veðurguð, stígur fram í ítarlegu viðtali í þættinum Spjallið með Frosta Logasyni og ræðir í fyrsta sinn opinberlega um ásakanir, útilokunarmenningu og áhrif MeToo-byltingarinnar á líf sitt og feril.

Innlent
Fréttamynd

CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið

Lágflug farþegaþotu Icelandair yfir Vestmannaeyjabæ síðastliðinn laugardag heldur áfram að vekja heimsathygli en bandarísku sjónvarpsstöðvarnar CNN og ABC hafa nú báðar fjallað um flugið.

Innlent
Fréttamynd

Fjórar í valda­stöðum á frétta­mynd ársins

Í dag voru veitt verðlaun fyrir fréttamynd ársins og mynd ársins en ljósmyndarinn Kjartan Þorbjörnsson, Golli, vann í báðum flokkum. Ólíkt því sem tíðkast var myndaröð valin í flokknum mynd ársins. Sýningin Myndir ársins var jafnframt opnuð í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í dag en fólk getur gert sér ferð á hana til 17. maí.

Innlent
Fréttamynd

Fjölmiðlahugtakið sagt út­þynnt og gagns­laust

Ingvar Smári Birgisson, lögmaður og stjórnarmaður hjá RÚV, segir fjölmiðlahugtakið nú orðið svo útþynnt, bæði í fjölmiðlalögum og í framkvæmd fjölmiðlanefndar, að það sé í hans huga orðið nær algerlega merkingarlaust.

Innlent
Fréttamynd

Helmingur hefur á­hyggjur af áróðursherferðum er­lendra ríkja

Tæpur helmingur landsmanna hefur miklar áhyggjur af áróðursherferðum erlendra ríkja hér á landi og hefur mikill meirihluti orðið var við þær, og sérstaklega á Facebook. Helmingur segist vel undirbúinn til þess að sjá í gegnum áróðursherferðir erlendra ríkja hér á landi og karlmenn eru líklegri en konur til að telja sig geta það. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Fjölmiðlanefndar og Netvís sem birtir lista yfir óvinsælustu hópa landsins.

Innlent
Fréttamynd

Lifandi maður sagður látinn í Morgun­blaðinu

Svo virðist sem dánartilkynning hafi birst í Morgunblaðinu í morgun um mann sem er sprelllifandi. Maðurinn, Sölvi Guðmundarson, ber fregnirnar af sér í færslu á Facebook, í skilaboðum til ættingja og vina.

Innlent
Fréttamynd

Hve­nær verður hlaðvarp að fjöl­miðli?

Hvenær hættir hlaðvarp að vera bara hlaðvarp og verður fjölmiðill? Hvenær er maður orðinn eitthvað meira en bara manneskja með hljóðnema, sterkar skoðanir og fasta útgáfu? Og hver á eiginlega að draga þá línu?

Innlent