Vesturbyggð

Vesturbyggð

Mannfjöldi: 1.314 (2025). Flatarmál: 1.512 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Patreksfjörður, Bíldudalur, Tálknafjörður.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Brúin yfir Djúpa­fjörð boðin út

Vegagerðin hefur boðið út nýbyggingu Vestfjarðavegar á um 4,6 kílómetra kafla yfir Djúpafjörð og Gufufjörð. Bygging 210 metra langrar bogabrúar yfir Djúpafjörð er innifalin í verkinu. Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2028.

Innlent
Fréttamynd

Urðu eftir í Flat­ey á meðan Baldur sigldi suður

Bæjarstjóri Vesturbyggðar er ósáttur við samráðsleysi þegar tekin er ákvörðun um að sigla ferjunni Baldri til Vestmannaeyja þar sem henni er ætlað að leysa af Herjólf. Tveir starfsmenn á vegum Orkubús Vestfjarða eru strandaglópar í Flatey vegna brotthvarfs Baldurs.

Innlent
Fréttamynd

Fékk í skrúfuna skammt frá landi

Skömmu fyrir hádegi tilkynnti skipstjóri lítils fiskibáts sem var staddur utarlega í Patreksfirði, um að hann hefði fengið veiðarfæri í skrúfuna og væri því aflvana.

Innlent
Fréttamynd

„Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“

Sveitarstjórn og viðbragðsaðilar í Vesturbyggð eru nú íóða önn að undirbúa komu mikils fjölda ferðamanna í tengslum við almyrkvann í sumar. Bæjarstjóri á segir erfitt að sjá fyrir hve margir leggi leið sína vestur til að berja almyrkvann augum.

Innlent
Fréttamynd

Raforkureikningurinn: Hver hagnast – hver borgar?

Lækkun verðs á raforku til húshitunar hefur lengi verið baráttumál sveitarfélaga á köldum svæðum. En af hverju hefur árangurinn ekki verið meiri? Þetta verður meginumræðuefnið á ráðstefnu Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum sem ber heitið „Raforkureikningurinn: Hver hagnast – hver borgar? Hverju er hægt að breyta” og fer fram á morgun, miðvikudaginn 18. mars.

Skoðun
Fréttamynd

Að standa af sér storminn

Umræðan um sjókvíaeldi hefur verið þung og á köflum hörð. Hér fyrir vestan finnum við það vel. Margir íbúar hafa lýst því yfir að þeir upplifi umræðuna ekki aðeins sem gagnrýni á atvinnugrein heldur sem gagnrýni á samfélagið sjálft og fólkið sem hér býr og starfar.

Skoðun
Fréttamynd

Einn læknir sinnir þremur stjórnunar­stöðum

Mönnun fagfólks er ein helsta áskorunin hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, líkt og víða annars staðar, samkvæmt úttekt embættis Landlæknis. Einn læknir sinnir þremur stjórnendastöðum og eru fengnir læknar frá Danmörku til að manna stöður. Þá fer rafmagnið reglulega af í húsnæði stofnunarinnar á Patreksfirði.

Innlent
Fréttamynd

Harma launalækkanir í fisk­eldi á Vest­fjörðum

Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga segist harma að stjórnendur Arnarlax og Arctic fish hafi tekið þá ákvörðun að lækka laun starfsfólks í fiskeldi. Sú ákvörðun mun hafa verið tilkynnt starfsfólki fyrr í mánuðinum og á að taka gildi þann 1. maí.

Innlent
Fréttamynd

Fisk­eldi til fram­tíðar

Nýr grunnskóli á Bíldudal. Heimavöllur bikarmeistara Vestra. Vatnsveitur og fráveitur. Skólastofur og slökkvistöð. Nemendagarðar og göngustígar. Allt eru þetta dæmi um hvernig framlög fiskeldissjóðs hafa styrkt sveitarfélög á Vestfjörðum síðustu ár til uppbyggingar, aukið lífsgæði og styrkt innviði.

Skoðun
Fréttamynd

Skila­boð Vestfirðings til stjórn­valda ekki útvarpshæf eftir 50 milljóna króna tjón

Hátt í þrjátíu þúsund fiskar Tungusilungs drápust í landeldi í Tálknafirði fyrir helgi eftir að rafmagni sló þar út. Rekstrarstjóri Tungusilungs segist hafa áttað sig á því að þessi staða gæti komið upp einn daginn því hann hafi ekki séð neinar framfarir í afhendingaröryggi raforku á svæðinu í áratugi. Vestfirðingar séu annars flokks þegar komi að innviðum.

Innlent