Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Veðurfræðingar vara við hvassviðri á Suðausturlandi seint í kvöld og nótt með hviðum sem geta náð allt að 36 metrum á sekúndu. Eru vegfarendur hvattir til að aka varlega og þá sérstaklega þeir sem eru á ökutækjum sem taka á sig mikinn vind, svo sem ferðavagnar. Veður 6.9.2026 11:47
Vara við snörpum hviðum Veðurstofan varar við snörpum vindhviðum við fjöll sunnan- og suðaustantil á landinu í kvöld, einkum undir Vatnajökli en einnig undir Eyjafjöllum. Hiti verður á bilinu 6 til 16 stig, mildast suðvestanlands, í dag. Veður 6.9.2026 07:25
Bjart með köflum sunnan heiða Í dag má búast við hægri suðvestlægri eða breytilegri átt yfir landinu og dálítilli rigningu eða súld norðan- og austantil, en stöku skúrum síðdegis. Yfirleitt verður bjart með köflum sunnan heiða og léttir víða til með kvöldinu. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Suðausturlandi. Veður 5.9.2026 07:18
Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Bjart er með köflum og þurrt suðvestanlands þegar landsmenn ganga til atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Innlent 29. ágúst 2026 09:20
Skýjað að mestu og hæg norðlæg eða breytileg átt Útlit er fyrir hæga norðlæga eða breytilega átt í dag og á morgun. Það verður skýjað að mestu á landinu og dálitlir skúrir á víð og dreif, en fleiri bjartir kaflar og þurrara í suðvesturfjórðungi landsins. Veður 28. ágúst 2026 08:24
Rigning og skúrir víða um land Lítið lægðadrag liggur nú yfir landinu sem veldur rigningu eða súld um norðan- og austanvert landið í dag. Það verður skýjað með köflum og stöku skúrir verða sunnan- og vestanlands. Veður 27. ágúst 2026 07:11
Bætir í úrkomu eftir hádegi Lægðasvæði er nú yfir Íslandi í dag og vegna þess verður hæg breytileg átt á landinu, en heldur hvassari norðanátt vestast á Vestfjörðum fram eftir degi. Veður 26. ágúst 2026 07:14
Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Tæplega fjörutíu manns eru slasaðir og um þrjú hundruð heimili eru skemmd eftir að hvirfilbylur gekk yfir smáþorp í sunnanverðu Frakklandi í gær. Tveir eru sagðir alvarlega slasaðir. Erlent 25. ágúst 2026 13:32
Spáð hlýju veðri norðaustantil Veðurstofan gerir ráð fyrir vestlægri eða breytilegri átt í dag þar sem víða verða þrír til átta metrar á sekúndu og skýjað að mestu. Veður 25. ágúst 2026 07:04
Talsverð úrkoma í vændum í dag Von er á talsverðri úrkomu suðaustan- og vestanlands í dag, vegna lægðar sem fer norður yfir landið. Rigningarbakkinn fer yfir landið og fylgir honum strekkings suðaustanátt. Á vestanverður landinu verður norðan og norðaustanátt. Innlent 24. ágúst 2026 07:15
Víða skúrir en allt að tuttugu stigum austanlands Í dag má búast við suðvestlægri eða breytilegri átt, á bilinu þrír til átta metrar á sekúndu. Skýjað verður með köflum og víða skúrir. Hiti verður á bilinu tíu til tuttugu stig, hlýjast á Austurlandi. Veður 23. ágúst 2026 09:28
Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Borgarstjóri hvetur íbúa borgarinnar til að mæta í miðborgina og njóta samveru og láta veðrið ekki á sig fá enda sé nóg um að vera. Innlent 22. ágúst 2026 10:57
Stinningskaldi og súld suðvestanlands Í dag má búast við suðvestanátt á bilinu átta til fimmtán metrar á sekúndu og súld um landið sunnan- og vestanvert. Draga á úr vætu í kvöld. Hiti verður á bilinu tíu til nítján stig, hlýjast austanlands. Veður 22. ágúst 2026 07:29
Blaut og vindasöm Menningarnótt í vændum Hlauparar morgundagsins ættu að undirbúa sig fyrir bleytu að sögn veðurfræðings. Búast megi við samfelldri rigningu allan fyrri part dags en um tíuleytið annað kvöld eigi að stytta upp. Veður 21. ágúst 2026 21:09
Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Útlit er fyrir að El niño-veðurfyrirbrigðið sem er að gerjast í Kyrrahafi verði það öflugasta í manna minnum. Líklegt er þá að næsta ár verði það hlýjasta í mælingasögunni. Erlent 21. ágúst 2026 08:36
Lægðardrag fikrar sig nær og bætir í úrkomu í nótt og á morgun Lægðardrag mun fikra sig nær vesturhluta landsins í dag með smá vætu til að byrja með og má því búast við suðvestan strekkingi norðvestantil. Það verður þó bjartviðri að mestu og hlýjast austantil með hita allt að 19 stigum. Veður 21. ágúst 2026 06:59
Bjart að mestu í dag en lægð nálgast á morgun Í dag er spáð vestlægri eða breytilegri átt 3-10 m/s og bjart að mestu, en víða skýjað við ströndina vestan- og austanlands. Veður 20. ágúst 2026 07:14
Bjartviðri í flestum landshlutum Veðurstofan gerir ráð fyrir að vindáttin verði vestlæg eða breytileg í dag og að vindhraði verði yfirleitt fremur hægur. Veður 19. ágúst 2026 06:52
Bjart og sólríkt víðast hvar Í dag er spáð austlægri eða breytilegri átt, 3-8 metrum á sekúndu, en 5-13 við suðaustantil í dag. Lítilsháttar vætu er spáð á Austfjörðum og Suðausturlandi, en annars léttskýjað að mestu. Veður 18. ágúst 2026 07:09
Allt að nítján stiga hiti í dag Milt veður í dag en möguleg bleyta á Austfjörðum og Suðausturlandi. Lægð nálgast landið sem nær þó ekki inn á land og lítil úrkoma á suðaustanverðu landinu. Veður 17. ágúst 2026 11:24
Bjart víðast hvar á landinu í dag Í dag er útlit fyrir að það verði hæg breytileg átt eða hafgola á landinu og bjart með köflum, en skýjað og lítilsháttar væta um landið suðaustanvert. Hiti 10 til 17 stig yfir daginn og hlýjast á Vesturlandi. Veður 16. ágúst 2026 08:12
Veður með rólegasta móti um helgina Það er útlit fyrir veður með rólegasta móti um helgina samkvæmt hugleiðingum veðurfræðing Veðurstofu Íslands. Hitinn verður á bilinu tíu til sautján stig. Veður 15. ágúst 2026 07:39
Norðanáttin ríkjandi og hiti að tuttugu stigum sunnantil Skammt austur af landinu er nú lægð sem þokast austnorðaustur, en hennar vegna verður norðanátt ríkjandi í dag. Veðurstofan gerir ráð fyrir strekkingi við austurströndina, en annars hægari vindi. Veður 14. ágúst 2026 07:07
Allmikil lægð þokast norðaustur Yfir landinu er nú allmikil lægð sem þokast norðaustur og fylgir henni úrkomusvæði, sem liggur yfir öllu landinu og þokuloft, einkum við sjávarsíðuna. Veður 13. ágúst 2026 07:07