Saka Rússa um að hafa gert árásir á friðsæl mótmæli Úkraínumenn saka Rússa um að hafa gert sprengjuárásir á friðsæl mótmæli í sunnanverðri Úkraínu í dag. Stjórnvöld vara við hörðum átökum á svæðinu næstu daga. Frans páfi var óvenjuharðorður í garð Rússlandsforseta í ávarpi í dag. Erlent 2. apríl 2022 23:02
Rannsaka salmonellusýkingu í Evrópu - hópsýking kom upp á Íslandi á sama tíma Grunur leikur á að uppruna hundruða salmonellusýkinga á meginlandi Evrópu megi rekja til þriggja eggjabúa á Spáni. Umfangsmikil rannsókn stendur yfir, en tilkynnt hefur verið um smit í sex löndum. Hópsýking á salmonellu kom upp á Íslandi í fyrrahaust, á sama tíma og fyrstu tilfellanna varð vart á meginlandinu. Erlent 20. febrúar 2022 14:31
Sakaður um aðgerðaleysi vegna kynferðisbrota presta Benedikt páfi er sakaður um að hafa sýnt af sér aðgerðaleysi í tengslum við misnotkun á fjögurra barna í biskupsdæmi hans í München op Freising frá 1977 til 1982. Erlent 20. janúar 2022 15:31
Páfinn segir það sjálfselskt að velja gæludýr fram yfir börn Frans páfi segir sjálfselskt þegar fólk velur að eignast gæludýr í stað barna. Fólki kynni að þykja það fyndið en svona væri raunveruleikinn, sagði hann þegar hann ávarpaði viðstadda í Páfagarði. Erlent 6. janúar 2022 07:32
Frans páfi biður fyrir endalokum faraldurs Frans páfi fagnaði komu jólanna í gærkvöldi fyrir framan um tvö þúsund manns í Péturskirkju í Vatíkaninu. Í predikun sinni gerði páfinn lítillæti Krists að umtalsefni sínu og hvatti fólk til að minnast þess að frelsari kristinna manna hefði komið í heiminn fátækur. Erlent 25. desember 2021 19:06
Zlatan skiptist á jólagjöfum við páfann Sænski fótboltamaðurinn Zlatan Ibrahimovic er í guðatölu hjá mörgum, þar á meðal sjálfum sér. Hann fékk að heimsækja Frans páfa í Vatíkanið þar sem þeir skiptust á jólagjöfum. Fótbolti 15. desember 2021 12:00
Biden sækir G20-fund og hittir páfann fyrir loftslagsráðstefnuna Joe Biden Bandaríkjaforseti er kominn til Evrópu þar sem hann verður viðstaddur tvo fundi á næstu dögum. Forsetinn byrjar í Róm þar sem G20 ríkin hittast til að ræða skattamál og þá mun hann hitta Frans Páfa í Vatíkaninu en Biden er aðeins annar kaþólikkinn í sögu Bandaríkjanna sem sest á forsetastól. Erlent 29. október 2021 07:01
Páfi hafnar fréttum um að hann ætli að segja af sér Frans páfi segir ekkert hæft í fréttum ítalskra fjölmiðla um að ætli að segja af sér á næstunni. Hann lifi nú fullkomulega eðlilegu lífi eftir ristilaðgerð sem hann gekkst undir í júlí. Erlent 1. september 2021 10:09
Páfinn við hestaheilsu eftir aðgerð Frans páfi gekkst undir hnífinn í dag þegar framkvæmd var aðgerð á stórþörmum hans. Aðgerðin gekk að vonum vel. Erlent 4. júlí 2021 23:31
Málaferli í Vatíkaninu vegna fjárdráttar Giovanni Angelo Becciu kardináli er einn þeirra tíu sem ákærðir hafa verið vegna fjárdráttar. Málið á rætur sínar að rekja til fjárfestingar Vatíkansins í fasteignaverkefni í Lundúnum. Erlent 3. júlí 2021 19:35
Páfagarður mótmælir banni á hatursáróðri gegn hinsegin fólki Páfagarður hefur hvatt ítölsk stjórnvöld til að breyta lagatillögu sem myndi glæpavæða fordóma gegn hinsegin fólki. Páfagarður segist áhyggjufullur um að lögin myndu takmarka hugsanafrelsi kaþólsku kirkjunnar. Erlent 22. júní 2021 16:28
Krefst þess að Páfagarður biðjist afsökunar á ofbeldi í heimavistarskólum Forsætisráðherra Kanada segir það mikil vonbrigði að kaþólska kirkjan hafi ekki beðist formlega afsökunar á ofbeldi gegn börnum af frumbyggjaættum, sem fór fram í skólum í Kanada um áraraðir. Hann kallar eftir því að kirkjan taki ábyrgð á ofbeldinu eftir áralanga þöggun. Erlent 4. júní 2021 22:43
Banna prestum að misnota fullorðna Kynferðisbrot presta gegn fullorðnum verða nú sérstaklega bönnuð með breytingum sem Frans páfi hefur fyrirskipað á lögum kaþólsku kirkjunnar. Þá verður einnig hægt að refsa leikmönnum sem starfa fyrir kirkjuna fyrir kynferðisbrot. Erlent 1. júní 2021 13:08
Lagði áherslu á mikilvægi þess að fátækar þjóðir verði bólusettar Annað árið í röð var páskaguðsþjónustu að mestu streymt á netinu. Í páskaávarpi sínu lagði Frans páfi áherslu á mikilvægi þess að fátækustu þjóðir heims yrðu bólusettar. Erlent 4. apríl 2021 20:46
Mummi reynir að koma vitinu fyrir páfa Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ritað hans heilagleika, Frans páfa í Vatíkaninu, opið bréf þar sem hann fer vinsamlegast fram á að hann dragi til baka ákvörðun um að samband samkynhneigðra para njóti ekki blessunar kaþólsku kirkjunnar. Innlent 17. mars 2021 15:51
Prestar í uppreisn gegn Páfagarði Samtök kaþólskra presta sem hafa lengi verið þyrnir í síðu vatíkansins, hafa lýst því yfir að meðlimir þeirra muni blessa samvist samkynja para, þvert á skipun forsvarsmanna kirkjunnar sem opinberuð var í gær. Erlent 16. mars 2021 16:42
Vatíkanið bannar blessun samvistar samkynja para Vatíkanið gaf í dag út ákvörðun, sem Frans páfi, samþykkti, um að kaþólskir prestar megi ekki blessa samvist samkynja para. Það sé ekki í samræmi við ætlanir guðs og ekki sé hægt að blessa syndsamlega hegðun. Erlent 15. mars 2021 14:49
Páfinn ætlar að stappa stálinu í kristna Íraka sem hafa átt undir högg að sækja Frans Páfi leggur leið sína til Íraks í dag þar sem hann mun hitta kristna Íraka. Þeim hefur fækkað gífurlega á undanförnum árum vegna ofbeldis í landinu og af ótta við ofbeldi gegn þeim. Innlent 5. mars 2021 08:47
Páfi skipar konu sem annan varaformann biskuparáðsins Kona mun nú í fyrsta sinn sitja í embætti varaformanns biskuparáðs kaþólsku kirkjunnar, sem er páfa til ráðgjafar. Páfagarður tilkynnti í gær að Francis páfi hefði skipað Nathalie Becquart, franska nunnu, í embættið. Erlent 7. febrúar 2021 21:18
Umdeildur kardínáli: Trump er villimaður kristinna manna Donald Trump er villimaður en hann er „okkar villimaður,“ segir kardinálinn George Pell í bókinni Prison Journal, sem fjallar meðal annars um þá 404 daga sem honum var haldið í einangrun eftir að hann var fundinn sekur um kynferðisofbeldi gegn börnum. Erlent 17. desember 2020 12:34
Rannsaka hvernig það gerðist að páfinn „like-aði“ fáklædda fyrirsætu Vatíkanið hefur hafið rannsókn á því hvernig það kom til að opinber Instagram-aðgangur páfa „like-aði“ mynd af fáklæddri brasilískri fyrirsætu. Ekki liggur fyrir hvenær atvikið átti sér stað en á myndinn var fyrirsætan, Natalia Garibotto, klædd í skólabúning. Erlent 20. nóvember 2020 11:13
Páfi heitir því að uppræta misnotkun innan kirkjunnar Frans páfi hét því að uppræta kynferðislega misnotkun innan veggja kaþólsku kirkjunnar í kjölfar umfangsmikillar skýrslu um kynferðisbrot bandarísks fyrrverandi kardinála sem var birt í gær. Erlent 11. nóvember 2020 20:37
Páfar vissu af ásökunum á hendur kardinála í áratugi Bandarískur fyrrverandi kardináli hlaut framgang innan kaþólsku kirkjunnar þrátt fyrir að páfum, kardinálum og æðstu mönnum kirkjunnar vestanhafs hefði verið kunnugt um ásakanir um kynferðislega misnotkun á hendur honum. Erlent 10. nóvember 2020 18:25
Páfinn lýsir yfir stuðningi við staðfesta samvist samkynja para Frans páfi er fyrsti páfinn til að lýsa yfir stuðningi við staðfesta samvist samkynja para. Það gerði hann í ummælum í heimildarmynd sem frumsýnd var í dag en talin er hafa verið tekin upp í fyrra. Erlent 21. október 2020 22:02
Hafna beiðni Pompeo að fá áheyrn hjá páfa Páfagarður í Róm hefur hafnað beiðni frá Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þess efnis að hann fái áheyrn hjá páfa. Erlent 1. október 2020 07:12
Kardinála í Páfagarði gert að segja af sér Háttsettur embættismaður í Páfagarði sagði óvænt af sér í dag vegna ásakana um að hann hafi gefið bróður sínum fé frá kaþólsku kirkjunni. Erlent 25. september 2020 14:07
Pell kardináli sýknaður af ákæru um barnaníð Dómstóllinn sneri þar með við dómi, en kardinálinn hafði áður verið dæmdur í sex ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur drengjum í Melbourne á tíunda áratugnum. Erlent 7. apríl 2020 06:36
Páfinn ekki með kórónuveiruna Páfagarður hefur staðfest að páfinn sé ekki með kórónuveiruna Erlent 28. mars 2020 22:31
Hafnar því að hægt verði að vígja gifta menn í Amasón til prests Frans páfi hefur hafnað því að hægt verði að vígja gifta karlmenn til prests í Amasón-svæðinu til að bregðast við skorti á kaþólskum prestum á svæðinu. Erlent 12. febrúar 2020 11:36
Páfinn biðst afsökunar á að hafa slegið á hönd konu Frans páfi hefur beðist afsökunar á að hafa slegið í hönd konu þar sem hún reyndi að toga hann til sín á Péturstorginu í Páfagarði á gamlársdag. Erlent 2. janúar 2020 08:39