Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Grindavík vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu er liðið lagði Stjörnuna í 3. umferð Bónus-deildar karla í kröfubolta í kvöld, 98-92. Körfubolti 22. október 2026 21:07
Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Valsmenn eru með fullt hús í Bónusdeild karla í körfubolta eftir þriðja sigur sinn í röð. Valur vann átta stiga sigur á Njarðvík, 93-85, og heimamenn í Njarðvík hafa því tapað fyrstu þremur leikjum tímabilsins. Körfubolti 22. október 2026 21:02
Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Nýliðar Hattar eru komnir með tvo sigra í sarpinn eftir þrjár fyrstu umferðirnar í Bónus-deild karla en liðið vann í kvöld sanngjarnan sigur á ÍR fyrir austan. Körfubolti 22. október 2026 18:32
Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfuboltamaðurinn Veigar Páll Alexandersson, leikmaður Njarðvíkur, hefur verið dæmdur í tólf mánaða keppnisbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi síðastliðið vor. Hann spilar því ekki með Njarðvík á þessari leiktíð. Körfubolti 22. október 2026 16:51
Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Höttur vann mikilvægan sigur á Stjörnunni í annarri umferð Bónus-deildar karla í körfubolta en þar var nýtt met sett. Obie Trotter varð elsti leikmaðurinn til þess að skora þriggja stiga körfu í efstu deild á Íslandi. Körfubolti 22. október 2026 16:30
Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Umfangsmikið hneykslismál skekur nú grískan körfubolta og hafa fimm karlar og ein kona verið handtekin og ákærð. Í hópnum er sjálfur formaður gríska körfuboltasambandsins sem og fjórir körfuboltadómarar. Körfubolti 22. október 2026 15:02
„Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Íslandsmeistara Grindavíkur í körfubolta, segir botninum hafa verið náð í gengi liðsins í upphafi móts. Grindavík hefur tapað fyrstu fjórum leikjum tímabilsins, þar af þungt tap fyrir B-deildarliði Breiðabliks í bikarnum fyrr í vikunni. Körfubolti 22. október 2026 12:47
Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Extraleikarnir eru farnir aftur af stað í Körfuboltakvöldi Extra og því fagna margir. Körfubolti 22. október 2026 10:16
Er skrefareglan dauð í NBA? Umræða vestanhafs um fjölda skrefa sem stjörnur deildarinnar komast upp með að taka áður en þeir skora körfu hefur orðið sífellt háværari. LaMelo Ball sýndi ýkt sýnidæmi í deildinni í nótt. Körfubolti 22. október 2026 09:00
Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Hinn sextán ára gamli Atli Freyr Haraldsson Katrínarson hefur óvænt verið ein af stjörnum Bónus deildar karla í körfubolta í fyrstu tveimur umferðunum. Körfubolti 22. október 2026 07:01
„Þetta er bara einn leikur í einu“ Ellen Nyström átti frábæran leik fyrir Grindavík í kvöld þegar þær lögðu nágranna sína af velli í Bónus deild kvenna í kvöld. Ellen Nyström endaði með tvöfalda tvennu í 89-75 sigri Grindavíkur. Sport 21. október 2026 21:44
Dazia skoraði 46 stig fyrir KR KR vann þrettán stiga sigur á Ármanni, 102-89, í fjórðu umferð Bónus deildar kvenna í körfubolta. KR hafði tapað fyrsta leiknum á tímabilinu í leiknum á undan en komst aftur á sigurbrautina í Vesturbænum í kvöld. Körfubolti 21. október 2026 21:08
Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Grindavíkurkonur héldu áfram sigurgöngu sinni í Bónus-deild kvenna í körfubolta í kvöld með sannfærandi fjórtán stiga sigri á nágrönnum sínum úr Keflavík, 89-75. Körfubolti 21. október 2026 20:54
Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það LeBron James spilaði sinn fyrsta leik fyrir Philadelphia 76ers í nótt og það var hundur í gamla manninum. Körfubolti 21. október 2026 12:46
Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Andri Már Eggertsson, eða Nablinn, tók fram grillspaðann og grillaði fimm verstu liðin í Bónus-deild karla í körfubolta þessa stundina. Hann setti Íslandsmeistara Grindavíkur í versta sætið. Körfubolti 21. október 2026 10:30
Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Philadelphia 76ers unnu ríkjandi NBA-meistara New York Knicks 106-100 þegar NBA-deildin byrjaði í nótt. LeBron James var að spila sinn fyrsta leik í NBA-deildinni fyrir 76ers og náði hann góðri byrjun með liðinu. Körfubolti 21. október 2026 07:30
Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Stjarnan hefur samið við nýjan bandarískan leikmann að nafni Nojel Eastern. Um er að ræða bakvörð sem er 198 cm á hæð. Sport 20. október 2026 22:17
„Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Haukar unnu fimm stiga útisigur gegn Val 85-90. Þetta var annar sigur liðsins á tímabilinu og Viktor Marinó Alexandersson, þjálfari Hauka, var afar ánægður með sigurinn. Sport 20. október 2026 21:40
Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Njarðvíkurkonur fögnuðu sínum þriðja sigri í röð í Bónus deild kvenna í körfubolta í kvöld þegar liðið vann 53 stiga stórsigur á Fjölni, 108-55. Körfubolti 20. október 2026 20:55
Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Eftir tvo tapleiki í röð komust Haukar aftur á sigurbraut eftir fimm stiga sigur gegn Val á útivelli 85-90. Leikurinn var jafn og spennandi en í fjórða leikhluta settu Haukar í annan gír og lönduðu sigri. Körfubolti 20. október 2026 20:51
Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Stjarnan hélt sigurgöngu sinni áfram í Bónus deild kvenna í körfubolta í kvöld með þrettán stiga sigri á Tindastól, 93-80. Körfubolti 20. október 2026 20:14
Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Elvar Már Friðriksson og félagar í Neptunas Klaipeda þurftu að sætta sig við tap í Evrópubikarnum, Euro Cup, í kvöld en íslenski bakvörðurinn mataði engu að síður félaga sína í kvöld. Körfubolti 20. október 2026 19:01
Jón Arnór gengur til liðs við Akta eignastýringu Akta er að bæta við teymið sitt með ráðningu á Jóni Arnóri Stefánssyni en hann kemur til félagsins eftir nokkurn viðsnúningi í rekstri að undanförnu með auknum eignum í stýringu. Innherji 20. október 2026 13:14
Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Tindastólsmenn hafa samið við körfuboltamanninn Nemanja Đurišić. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu en Nemanja á að koma inn í liðið fyrir Adomas Drungilas sem meiddist illa í fyrstu umferð Bónus-deildarinnar. Hann braut þá tvö bein í fæti. Sport 20. október 2026 13:02
Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Ben Simmons, leikmaður Sacramento Kings í NBA-deildinni, sleit hásin á æfingu með liðinu um helgina. Hann hafði nýlega samið við liðið eftir að hafa misst af allri síðustu leiktíð sökum meiðsla. Körfubolti 20. október 2026 12:46
Luka Gasic frá í nokkrar vikur Álftanes fór þægilega áfram í 16-liða úrslit VÍS-bikarsins í gærkvöldi þegar liðið sló út ÍA 95-73. Körfubolti 20. október 2026 12:00
„Þetta er karfa tímabilsins“ Flottustu tilþrif annarrar umferðar Bónus-deildar karla í körfubolta voru ekki af verri gerðinni frekar en fyrri daginn. Jamir Chaplin, leikmaður Keflavíkur, var áberandi með þrjú af topp tíu en karfa Dwayne Lautier fyrir Val stendur upp úr. Körfubolti 20. október 2026 11:30
Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Dómarar í Bónus-deildinni í körfubolta kunna ýmislegt annað en að blása í flautuna og dæma körfuboltaleiki. Það sést meðal annars á nýrri færslu eins allra reyndasta körfuboltadómara landsins. Körfubolti 19. október 2026 22:32
Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Ein óvæntustu úrslitin í langan tíma í bikarkeppni Körfuknattleikssambands Íslands urðu í kvöld þegar 1. deildarlið Breiðabliks sló út Íslandsmeistara Grindavíkur í 32 liða úrslitum VÍS-bikars karla. Körfubolti 19. október 2026 21:33
Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Tindastólsmenn hafa farið mikinn í ENBL-deildinni á þessu tímabili og unnið fyrstu þrjá leikina. Körfubolti 19. október 2026 15:02