Flug

Flug

Allt það helsta sem viðkemur flugi.

Fréttamynd

Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gauta­borg

Heimferð fótboltakrakka og aðstandenda þeirra úr Garðabæ og Akureyri eftir fótboltamót í Gautaborg hefur enn frestast vegna vandræðagangs Icelandair við að fljúga hópnum heim. Foreldrar hrósa viðhorfi barnanna en eru hugsi yfir vinnubrögðum flugfélagsins.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Nauð­syn­legt að fá varan­lega lausn“

Forstjóri Icelandair segir það góðar fréttir að tímabundin sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Evrópusambandsins hafi verið framlengd til ársins 2030. Hann vonast aftur á móti eftir því að varanleg lausn finnist og vill kallar eftir því að alþjóðlegu losunarheimildakerfi verði komið á fót.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tæki­færi fylgi flugi frá Kína en einnig hættur

Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir fyrirhugaðar flugferðir Air China frá Kína til Íslands breyta miklu. Mögulegt sé að fjöldi kínverskra ferðamanna gæti tvöfaldast á tiltölulega stuttum tíma en þeir mynda nú þegar einn stærsta ferðahópinn hérlendis á vissum árstíma. Á sama tíma muni fjölguninni mögulega fylgja áskoranir, til að mynda í tengslum við fyrirtæki sem fari á svig við íslenskar venjur og regluverk.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu

Síðustu ár hafa reglulega borist fréttir af því að fyrirhugað sé að koma á beinu flugi milli Kína og Íslands en nú er útlit fyrir að fréttirnar verði loks að veruleika. „Stutt er í að dagsetning fyrsta flugsins verði kynnt og sala miða hefjist,“ segir Kínverska sendiráðið á Íslandi í svari við fyrirspurn fréttastofu.

Innlent
Fréttamynd

Þurfti að lenda flug­vél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana

Flugkennarinn Leandro Andrés Bertazzo, 42 ára, fannst látinn eftir að hafa stokkið út úr dyrum flugvélar og með því skilið nemanda sem hann var að kenna eina eftir svo hún varð að lenda vélinni sjálf. Atvikið átti sér stað yfir bænum Toledo í Argentínu á laugardag, samkvæmt yfirlýsingu frá ríkissaksóknara landsins sem birt var á þriðjudag.

Erlent
Fréttamynd

Hægara sagt en gert að ná lé­legum myndum

Frönsk kona sem þykir hinn versti ljósmyndari lauk hringferð um Ísland á dögunum. Markmið ferðalagsins var að reyna að ná lélegum myndum af íslenskri náttúru. Hún komst þó að því að það væri hægara sagt en gert.

Lífið
Fréttamynd

Sögu­fræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykja­víkur

Flugvél af gerðinni Douglas DC 6B er núna á leiðinni til Reykjavíkur frá Salzburg í Austurríki. Áætlað er að hún lendi á Reykjavíkurflugvelli um fimmleytið síðdegis og verði yfir nótt. Flugáhugamenn fá með komu hennar fágætt tækifæri til að sjá með eigin augum flugvél sem markaði djúp spor í flugsögu Íslendinga.

Innlent
Fréttamynd

Vatna­skil gætu verið í kortunum og spá því að vaxta­hækkunum sé lokið í bili

Þótt verðbólgan verði að líkindum í kringum fimm prósent á næstu mánuðum þá gætu verið vatnaskil í kortunum samhliða hratt lækkandi hrávöruverði og skýrum vísbendingum um hægari efnahagsumsvif. Greinendur Acro telja því að vaxtahækkunarferlinu sé lokið, í bili að minnsta kosti, og segja „nauðsynlegt“ að innlenda hagkerfið fái aukið súrefni á komandi misserum.

Innherji
Fréttamynd

Ellefu létust í flug­slysi í Frakk­landi

Ellefu létust eftir að flugvél í notkun fallhlífarstökkvaraskóla hrapaði í bænum Tomblaine í austurhluta Frakklands í dag. Fimm farþeganna um borð voru nemendur sem undirbjuggu sig fyrir sitt fyrsta fallhlífastökk, hinir fimm hafi verið leiðbeinendur í skólanum.

Erlent
Fréttamynd

Selja mann­virki bæjarins á flug­vellinum á tólf milljónir

Bæjarráð Fjallabyggðar hefur samþykkt tilboð ferðaþjónustufyrirtækisins Viking Heliskiing í fasteignir sveitarfélagsins á flugvallarsvæðinu á Siglufirði. Tilboðið hljóðar upp á tólf milljónir króna en um er að ræða tækjahús og gömlu flugstöðina.

Innlent
Fréttamynd

Rukka ekki lengur for­eldra fyrir að sitja við hlið barna sinna

Lággjaldaflugfélagið Ryanair hefur verið skikkað til þess að breyta reglum sínum um sætaskipan fyrir fjölskyldur og leyfa foreldrum að sitja við hlið ungra barna sinna án þess að greiða gjald fyrir sætapöntun. Er þetta í kjölfar rannsóknar sem breska samkeppnis- og markaðseftirlitið (CMA) hóf nýverið til að kanna hvort stefna flugfélagsins, sem eftirlitið segir að leiði venjulega til gjalds upp á átta pund, eða þrettán hundruð krónur, hvora leið, sé „ósanngjörn“ samkvæmt neytendalögum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

„Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“

„Við erum búin að vera í ESB núna í 30 ár,“ segir Baldur Pétursson, fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu. Baldur er eindreginn stuðningsmaður evrunnar. „EES-samningurinn er um það bil 75-80% aðgangur að ESB. Við höfum góða reynslu af 80% aðild að ESB, þannig að það er ekki nema 20% eftir,“ segir Baldur.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Flug­maður féll í yfir­lið við lendingu í Kefla­vík

Flugmaður EasyJet féll í yfirlið við lendingu í Keflavík í morgun og var rauðu óvissustigi tímabundið lýst yfir á flugvellinum. Engan sakaði og gekk lendingin vel, að sögn Isavia. Á annan hundrað voru um borð í vélinni. Flugmaðurinn var með rænu þegar vélin lenti.

Innlent
Fréttamynd

Dómur burðardýrs mildaður

Maður á fertugsaldri var dæmdur til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar í héraðsdómi fyrr á árinu fyrir fíkniefnalagabrot. Málinu var skotið til Landsréttar en þar var refsing ákærða til endurskoðunar og dómur hans mildaður úr þremur og hálfu ári í þrjú ár. 

Innlent