Viðskipti innlent

Hefur dag­legt flug milli Kefla­víkur og Fíla­delfíu næsta sumar

Atli Ísleifsson skrifar
American Airlines snýr aftur til Íslands eftir nokkurra ára fjarveru.
American Airlines snýr aftur til Íslands eftir nokkurra ára fjarveru.

Bandaríska flugfélagið American Airlines tilkynnti í dag um nýja áætlunarleið milli Keflavíkurflugvallar (KEF) og Fíladelfíu (PHL), sem hefst 27. maí 2027.

Í tilkynningu frá Isavia segir að flogið verði daglega yfir sumartímann á Airbus A321neo flugvél sem taki 196 farþega.

„American Airlines snýr þar með aftur til Íslands eftir nokkurra ára fjarveru. Félagið hóf flug milli KEF og Dallas-Fort Worth 2018 og áformaði að bæta Fíladelfíu við sem áfangastað 2020. Ekkert varð af því vegna heimsfaraldursins og hætti félagið einnig flugi milli Íslands og Dallas,“ segir í tilkynningunni. 

„Við á Keflavíkurflugvelli bjóðum American Airlines aftur velkomið til okkar og fögnum þessari ákvörðun,“ er haft eftir Ómari Svavarssyni, framkvæmdastjóra viðskipta á KEF. „Það er ánægjulegt að fá félagið aftur í flugvallarsamfélagið okkar á vellinum. Þessi nýja leið styrkir tengingu okkar við Norður-Ameríku og sýnir að þetta stóra flugfélag hefur sterka trú á áfangastaðnum Íslandi.“

Þá er haft eftir José A. Freig, framkvæmdastjóra alþjóðlegra rekstrarmála og samstarfsaðila hjá American Airlines, að félagið sé afar spennt að snúa aftur til Íslands með nýju flugi milli KEF og Fíladelfíu. „Með þessari nýju leið fá farþegar frá Íslandi og Norðurlöndunum greiðan aðgang að einum ört vaxandi tengiflugvelli okkar í Bandaríkjunum. Frá Fíladelfíu geta þeir ferðast áfram til meira en 100 áfangastaða víðs vegar um Bandaríkin og til annarra heimshluta.“

Flugáætlun KEF–PHL






Fleiri fréttir

Sjá meira


×