„Minnti á köflum á leik í minnibolta“ Lárus Jónssson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar, sagði leikmenn sína hafa verið ólíkir sjálfum sér þegar liðið fékk væna magalendingu gegn Stjörnunni í Bónus-deild karla í körfubolta í kvöld. Körfubolti 6.3.2026 22:10
„Maður lifir og deyr með því“ Óskar Þór Þorsteinsson, þjálfari ÍA í Bónus-deild karla í körfubolta, segir að tapið gegn ÍR í kvöld svíði. Sport 6.3.2026 22:04
„Þurfum aðeins meira frá okkar leikmönnum“ „Þetta var klárlega stór sigur fyrir okkur,“ sagði Borche Ilievski, þjálfari ÍR, eftir þriggja stiga sigur liðsins gegn ÍA í 19. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld. Sport 6.3.2026 21:53
Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 96-106 | Keflvíkingar komnir aftur á sigurbraut Körfubolti 6.3.2026 18:30
Uppgjörið: Stjarnan - Þór Þ. 127-68 | Vel gíraðir Stjörnumenn völtuðu yfir vankaða Þórsara Það var vægt til orða tekið himinn og haf á milli spilamennsku Stjörnunnar og Þórs Þorlákshafnar þegar liðin leiddu saman hesta sína í ÞG Verk-höllina í Ásgarði í kvöld en leikurinn var liður í 19. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta. Körfubolti 6. mars 2026 20:56
Uppgjör:Ármann - Njarðvík 87-104 | Sýning hr. Lautier-Ogunleye Dwayne Lautier-Ogunleye fór fyrir sínum mönnum í Njarðvík þegar þeir sóttu sigur í Laugardalshöllina gegn Ármanni. Kappinn skoraði 50 stig í 87-104 sigri sem skiptir Njarðvíkinga miklu máli. Körfubolti 6. mars 2026 20:55
„Þeir geta klárað þetta án mín“ Körfuboltamaðurinn Orri Gunnarsson stefnir á það að vera kominn aftur á parketið eftir tíu mánuði. Hann sleit krossband og bíður eftir því að komast í aðgerð en segir Stjörnuliðið fullfært um að verja Íslandsmeistaratitilinn án hans. Körfubolti 5. mars 2026 12:32
„Eruð þið tilbúin í blóð, svita og tár?“ Spennan í samfélaginu stigmagnast dag frá degi því úrslitakeppnirnar í körfubolta eru á næsta leiti. Hér fyrir neðan má stiklu frá SÝN Sport þar sem ríkjandi meistarinn Hlynur Bæringsson er í aðalhlutverki. Körfubolti 5. mars 2026 10:05
Orri með slitið krossband og þarf í aðgerð Íslenski landsliðsmaðurinn Orri Gunnarsson, leikmaður Stjörnunnar, er með slitið krossband og þarf í aðgerð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjörnunni nú rétt í þessu. Körfubolti 26. febrúar 2026 13:17
Orri borinn meiddur af æfingu landsliðsins Orri Gunnarsson var borinn meiddur af velli á hádegisæfingu íslenska landsliðsins. Óttast er að um alvarleg meiðsli sé að ræða. Körfubolti 25. febrúar 2026 13:19
„Það sem er búið að gera í allan vetur virkar ekki“ Það virðist allt til alls hjá körfuboltaliði Álftaness en samt rambar liðið á barmi þess að missa af úrslitakeppninni í Bónus-deild karla. Sérfræðingarnir í Körfuboltakvöldi buðu Álftnesingum ráð. Körfubolti 23. febrúar 2026 16:01
Segir að Grindvíkingar verði að passa vel upp á gömlu kallana Sævar Sævarsson segir að Grindvíkingar verði passa vel upp á álagið á tveimur af elstu leikmönnum Bónus deildar karla þegar út í úrslitakeppnina verður komið. Körfubolti 22. febrúar 2026 22:31
Var rekinn en hefndi sín: „Hefði verið búið að berja hann í spað“ Darryl Morsell hefndi sín á sínum gömlu vinnuveitendum í Keflavík í leik liðsins gegn ÍA í Bónus deildinni í körfubolta á dögunum. Morsell var rekinn frá Keflavík en átti stórleik fyrir ÍA gegn sínu gamla liði. Rætt var um frammistöðu hans í Körfuboltakvöldi á Sýn Sport Ísland. Körfubolti 22. febrúar 2026 11:33
Frank Booker eldri látinn Frank Booker eldri er látinn 61 árs gamall að aldri. Sonur hans, Frank Aron Booker, greinir frá andláti föður síns núna í morgun. Körfubolti 21. febrúar 2026 12:58
„Héldum leikplaninu þangað til í lokin“ Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, var sáttur við spilamennskuna að flestu leyti þegar liðið laut í lægra haldi fyrir Stjörnunni á sárgrætilegan hátt í kvöld. Það hafi hins vegar vantað upp á klókindi þegar mest á reyndi undir lokin. Körfubolti 20. febrúar 2026 22:02
„Þeir töluðu skít á bekkinn okkar eftir þrista“ Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar, telur að hegðun leikmanna Ármanns í kjölfar þriggja stiga karfa þeirra hafi kveikt þann neista sem þurfti til þess að Stjörnuliðið náð upp þeirri orku sem þurfti til þess að sækja sigurinn í leik liðanna í kvöld. Körfubolti 20. febrúar 2026 21:58
Woods: Úrslitakeppnin nálgast Keyshawn Woods skoraði 22 stig fyrir Val í kvöld þegar mennirnir frá Hlíðarenda lögðu Álftanes 87-108 í 18. umferð Bónus deildar karla. 16 af stigum Woods komu í þriðja leikhluta þar sem leikmaðurinn snögghitnaði. Körfubolti 20. febrúar 2026 21:41
Uppgjör: Álftanes - Valur 87-108 | Woods lykillinn að velgengni Valsmanna Eftir jafnan og skemmtilegan fyrri hálfleik þá varð frábær þriðji leikhluti til þess að Valsmenn báru sigur úr býtum á Álftanesi í dag. Keyshawn Woods skoraði 16 stig í leikhlutanum og keyrði liðið áfram. Lokatölur 87-108 í lokaleik 18. umferðar Bónus deildar karla í körfuknattleik. Körfubolti 20. febrúar 2026 21:20
Uppgjörið: Ármann-Stjarnan 88-90 | Orri með sigurkörfuna tveimur sekúndum fyrir leikslok Stjörnumenn lentu óvænt í kröppum dansi á móti Ármanni í Laugardalshöllinni í 18. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld en tókst að vinna upp forskot heimamanna og tryggja sér nauman sigur. Orri Gunnarsson skoraði sigurkörfuna tveimur sekúndum fyrir leikslok eftir að hafa náð sóknarfrákasti en lokatölur í leiknum urðu 88-90 Stjörnunni í vil. Körfubolti 20. febrúar 2026 20:52
Miskovic farinn frá Álftanesi: „Aðallega var það persónuleikinn“ Álftanes á mikilvægan leik fyrir höndum í kvöld þegar liðið tekur á móti Val í 18. umferð Bónus deildar karla í körfubolta. Álftnesingar hafa gert breytingar á leikmannahópnum frá því í síðasta leik. Körfubolti 20. febrúar 2026 13:46
„Frammistaðan kannski ekkert alltof góð en tvö góð stig“ Grindavík vann fimm stiga seiglusigur á ÍR í kvöld í Bónus-deild karla, 100-95. Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, var sáttur með stigin tvö í leik þar sem bæði lið gerðu ítrekuð áhlaup og munurinn sveiflaðist ótt og títt. Körfubolti 19. febrúar 2026 21:39
„Okkur líður vel og við erum að spila vel“ KR vann í kvöld öruggan og sannfærandi þrettán stiga sigur 92-105 á Njarðvík þegar þessi lið mættust í IceMar-höllinni í 18. umferð Bónus deild karla í kvöld. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson var gríðarlega öflugur í liði KR og var að vonum sáttur með sigurinn. Sport 19. febrúar 2026 21:38
Uppgjörið: Njarðvík-KR 92-105 | Skutu Njarðvíkinga í kaf Bikarmeistarar KR héldu sigurgöngu sinni áfram í Njarðvík í kvöld með því að vinna þrettán stiga sigur á heimamönnum í Njarðvík, 105-92. Körfubolti 19. febrúar 2026 20:57
Uppgjör: ÍA-Keflavík 97-96 | Skagamenn enduðu níu leikja taphrinu Skagamenn unnu langþráðan sigur í Bónus-deild karla í kvöld þegar liðið fékk Keflavík í heimsókn í AvAir höllina á Akranesi. Leikurinn sveiflaðist fram og aftur en heimamenn unnu að lokum eins stigs sigur, 97-96. Körfubolti 19. febrúar 2026 20:55
Uppgjör: Þór Þ-Tindastóll 95-98 | Stólarnir komu til baka eftir slæma byrjun Tindastólsmenn fóru heim með bæði stigin úr Þorlákshöfn eftir þriggja stiga sigur á heimamönnum í Þór, 98-95. Körfubolti 19. febrúar 2026 20:50