„Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, var ósáttur við stórar dómaraákvarðanir sem féllu liði hans í óhag eftir 2-1 tap fyrir Breiðabliki í 14. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Eikarvellinum í Kópavogi í kvöld. Íslenski boltinn 13.7.2026 22:15
Frábært að koma úr meiðslum og skora sitt fyrsta mark Jónatan Guðni Arnarsson, 19 ára kantmaður Breiðabliks, var hæstánægður eftir 2-1 sigur á Keflavík í Bestu deildinni á Eikarvellinum í Kópavogi í kvöld. Í leiknum skoraði hann sitt fyrsta mark fyrir Breiðablik og um leið fyrsta mark í efstu deild. Íslenski boltinn 13.7.2026 22:06
Uppgjör: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Hinn 35 ára gamli Kristinn Jónsson kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmark Blika í 2-1 sigri á Keflavík á Kópavogsvellinum í lokaleik fjórtándu umferðar Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Íslenski boltinn 13.7.2026 18:37
Uppgjörið: FH - Valur 2-0 | Gils gerði gæfumuninn í langþráðum sigri FH-liðsins Íslenski boltinn 12.7.2026 19:20
Uppgjörið: KA - ÍA 3-2 | Víti í blálokin og loksins vann KA leik KA vann dramatískan 3-2 sigur á ÍA á Greifavellinum á Akureyri í þrettándu umferð Bestu deildar karla. Skagamann leiddu 2-0 eftir rúman klukkutíma en þá hófst endurkoma norðanmanna sem var fullkomnuð í blálok leiksins. Íslenski boltinn 12. júlí 2026 21:05
„Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Aron Sigurðarson skoraði tvö og lagði upp eitt þegar KR lagði ÍBV 5-2 í Bestu deild karla í fótbolta. Hans markmið er einfalt, vinna bæði gullskóinn sem og að slá markamet efstu deildar. Íslenski boltinn 12. júlí 2026 20:45
Uppgjörið: KR - ÍBV 5-2 | Eyjamenn sáu ekki til sólar í rokinu vestur í bæ Eftir sex leiki án ósigurs var Eyjamönnum skellt á jörðina þegar liðið sótti KR heim í Vesturbænum. Lokatölur 5-2 í leik þar sem mörkin hefðu hæglega getað orðið fleiri. Leik liðanna í Eyjum lauk með 6-2 sigri KR og hafa Eyjamenn eflaust fengið nóg af því að spila við svarthvíta í sumar. Íslenski boltinn 12. júlí 2026 19:56
Uppgjörið: Fram - Þór 6-1 | Framarar settu upp sýningu Fram sýndi styrk sinn á heimavelli þegar liðið vann öruggan 6-1 sigur á Þór í Bestu deild karla. Íslenski boltinn 12. júlí 2026 17:16
Dagskráin í dag: Líflegur dagur í Bestu deildinni Það verður nóg um að vera í Bestu deild karla í fótbolta í dag þegar fjórir leikir verða í beinni útsendingu á sportrásum Sýnar. Þar má einnig finna tvö golfmót. Sport 12. júlí 2026 07:02
Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Á Íslandi er veðrið ekki alltaf ákjósanlegt og þar sem fótboltatímabilið byrjar snemma er oft erfitt að halda grasvöllum í toppstandi. Þá hafa einhver félög notað gervigrasvelli sem höndlar betur íslenska frostið en þegar þeir vellir verða ónýtir geta leikmenn meiðst alvarlega. Fótbolti 11. júlí 2026 09:02
Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Elías Már Ómarsson, framherji Víkings, sleit krossband í hné þegar hann meiddist á gervigrasinu á Víkingsvelli í leiknum við Ungverjalandsmeistara ETO á þriðjudagskvöld. Hann spilar því ekki meira með liðinu á tímabilinu. Íslenski boltinn 10. júlí 2026 11:45
Árni Vilhjálms í Stjörnuna Framherjinn Árni Vilhjálmsson hefur samið við Stjörnuna en félagið greindi frá rétt í þessu. Íslenski boltinn 10. júlí 2026 10:53
Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Í Stúkunni á mánudagskvöldið voru ungir leikmenn Breiðabliks til umræðu en Blikarnir unnu flottan sigur á ÍA í síðustu umferð, 2-1. Þór Andersen Willumsson skoraði sigurmark Blika í leiknum og Dagur Örn Fjeldsted var einnig frábær í leiknum. Íslenski boltinn 8. júlí 2026 13:33
Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Breiðablik hefur fengið góðan liðsstyrk því félagið hefur samið við sænska knattspyrnufélagið Brommapojkarna um að Hlynur Freyr Karlsson leiki með Kópavogsliðinu út þessa leiktíð. Íslenski boltinn 8. júlí 2026 12:18
Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? „Af hverju heldur þú að hann taki við eftir tímabilið?“ spurði Bjarni Guðjónsson í Stúkunni og vísaði til Halldórs Árnasonar, verðandi þjálfara Vals í Bestu deild karla. Sérfræðingum þáttarins þótti fátt til frammistöðu liðsins í 1-0 tapi fyrir ÍBV í Vestmannaeyjum koma. Íslenski boltinn 8. júlí 2026 07:02
Elías Már sárþjáður og fór af velli Óttast er að Elías Már Ómarsson hafi orðið fyrir slæmum meiðslum í leik Víkings við Ungverjalandsmeistara Györ í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Hann hlaut aðhlynningu í um fimm mínútur áður en hann fór meiddur af velli. Íslenski boltinn 7. júlí 2026 19:51
Tók upp hanskann fyrir Sigurpál: „Gerir það sem markmenn KR eiga að gera“ Sigurpáll Sören Ingólfsson fékk á sig þrjú mörk á fyrstu fjórtán mínútunum þegar KR sótti Þór heim í Bestu deild karla í síðustu viku. Kollegi hans í marki Akureyrarliðsins, Aron Birkir Stefánsson, skoraði meðal annars með skoti af gríðarlöngu færi. Bjarni Guðjónsson tók til varna fyrir Sigurpál í Stúkunni. Íslenski boltinn 7. júlí 2026 16:45
Sjáðu enn eitt markið hjá Kennie og Stefan koma Keflavík í efri hlutann Keflavík og Fram skildu jöfn, 1-1, í lokaleik 13. umferðar Bestu deildar karla í gær. Með stiginu komust Keflvíkingar upp í efri hluta deildarinnar. Íslenski boltinn 7. júlí 2026 12:45
Uppgjörið: Keflavík - Fram 1-1 | Heimamenn upp í efri hlutann Keflavík og Fram skildu jöfn, 1-1, í lokaleik 13. umferðar Bestu deildar karla í fótbolta í Reykjanesbæ í kvöld. Fram er áfram í þriðja sæti deildarinnar en Keflavík fer upp í sjötta sæti þökk sé stiginu. Íslenski boltinn 6. júlí 2026 21:10
Amin Cosic orðinn leikmaður Noregsmeistaranna Amin Cosic hefur verið opinberaður sem nýr leikmaður Noregsmeistara Viking í Stafangri. Hann er keyptur til liðsins frá KR í Bestu deildinni. Íslenski boltinn 6. júlí 2026 19:30
Fór betur en áhorfðist hjá Aroni Snæ Aron Snær Friðriksson, markvörður Víkings, verður frá í tvær til þrjár vikur að sögn Sölva Geirs Ottesen, þjálfara liðsins. Hann meiddist í sigri Víkings á KA á dögunum. Íslenski boltinn 6. júlí 2026 19:00
Með sitt eigið HM í Bestu deildinni Viðburða- og gæðastjóri Bestu deildarinnar hefur ekki áhyggjur af áhrifum HM á deildina og bendir á að Besta deildin sé með sitt eigið „HM“ sem vert sé að fylgjast með. Íslenski boltinn 6. júlí 2026 11:58
Sautján ára hetja Breiðabliks: Kemur þegar maður trúir á Guð og sig sjálfan Þór Andersen Willumsson reyndist hetja Breiðabliks þegar hann kom inn á sem varamaður og skoraði sigurmark liðsins í 2-1 sigri á ÍA í þrettándu umferð Bestu deildarinnar í fótbolta á ELKEM vellinum á Akranesi í gær. Fótbolti 5. júlí 2026 10:29
Sjáðu mörk og atvik helgarinnar í Bestu deildinni Tveir leikir fóru fram í Bestu deild karla í gær og einn fór fram á föstudaginn. Í þeim var skorað nóg af mörkum og fengum við jafnvel að sjá rautt spjald. Fótbolti 5. júlí 2026 10:02
„Gleður mitt Blikahjarta“ Ólafur Ingi Skúlason þjálfari Breiðabliks var að vonum hæstánægður með 2-1 endurkomusigur á ÍA í 13. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á ELKEM vellinum á Akranesi í gær. Fótbolti 5. júlí 2026 09:02