Stefna nánum bandamönnum Trump vegna árásarinnar á þinghúsið Þingnefnd sem rannsakar árás stuðningsmanna Donald Trump á bandaríska þinghúsið í janúar hefur stefnt fjórum ráðgjöfum og embættismönnum hans til að bera vitni og afhenda gögn. Á meðal þeirra sem er stefnt er Mark Meadows, fyrrverandi skrifstofustjóri Hvíta hússins. Erlent 24. september 2021 11:50
Unnusti Petito ákærður fyrir greiðslukortasvindl Yfirvöld í Wyoming í Bandaríkjunum hafa gefið út ákæru á hendur unnusta Gabrielle Petito, ungrar konu sem fannst myrt þar eftir að hún hvarf á ferðalagi með honum, fyrir að svíkja út fé með greiðslukorti. Erlent 24. september 2021 10:52
Lögreglumaðurinn áfrýjar dómi vegna dauða Georges Floyd Derek Chauvin, lögreglumaðurinn sem var dæmdur í meira en 22 ára fangelsi fyrir að valda dauða George Floyd í Minneapolis í Bandaríkjunum í fyrra hefur áfrýjað dómnum. Chauvin kraup ofan á hálsi Floyd þar til hann lét lífið. Erlent 24. september 2021 10:16
Umdeild endurskoðun í Arizona staðfestir sigur Biden Sex mánaða löng og afar umdeild endurskoðun einkafyrirtækis á úrslitum bandarísku forsetakosninganna í Arizona sem repúblikanar létu fara fram sýndi að opinber úrslit voru rétt. Stofnað var til könnunarinnar vegna samsæriskenninga um að stórfelld svik hefðu kostað Donald Trump sigurinn í Arizona og fleiri ríkjum. Erlent 24. september 2021 09:00
Einn látinn og tólf særðir í skotárás í Bandaríkjunum Minnst einn er látinn og tólf særðir eftir skotárás í matvöruverslun í Tennessee í Bandaríkjunum. Árásarmaðurinn hóf skothríð í Kroger-verslun í Collierville, sem er úthverfi Memphis. Þegar lögregluþjóna bar að garði komu þeir að árásarmanninum látnum. Erlent 23. september 2021 21:21
Bandarísku keppendurnir á Vetrarólympíuleikunum verða að láta bólusetja sig Keppendur fyrir hönd Bandaríkjanna á Vetrarólympíuleikunum og Ólympíumóti fatlaðra í Peking á næsta ári þurfa að fara í bólusetningu vegna kórónuveirunni til að mega taka þátt. Sport 23. september 2021 17:01
Skera upp herör gegn öflugum gróðurhúsalofttegundum í kælibúnaði Umhverfisstofnun Bandaríkjanna tilkynnti um verulega hertar reglur um framleiðslu svonefndra vetnisflúorkolefna, öflugra gróðurhúsalofttegunda sem eru notaðar í ískápum og loftkælitækjum. Erlent 23. september 2021 15:41
Segir af sér vegna „ómannúðlegrar“ brottvísunar Biden-stjórnarinnar á Haítum Sérstakur sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar vegna ástandsins á Haítí sagði af sér í dag til að mótmæla umdeildum brottvísunum Haíta sem sóttust eftir hæli í Bandaríkjunum. Hundruðum Haíta hefur verið flogið til heimalandsins þrátt fyrir ófremdarástand sem ríkir þar. Erlent 23. september 2021 14:11
Alríkislögreglan leitar að unnusta Petito Alríkislögregla Bandaríkjanna hefur óskað eftir aðstoð almennings til að finna unnusta hinnar 22 ára gömlu Gabrielle Petito, sem fannst myrt í þjóðgarði í Wyoming á dögunum. Dánardómstjóri skar um það í gær að Petito hafi verið ráðinn bani. Erlent 22. september 2021 23:00
Biden og Macron vilja byggja upp traust aftur Sendiherra Frakklands mun snúa aftur til Washington DC í næstu viku. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, kallaði sendiherrann heim eftir að Bandaríkjamenn, Ástralar og Bretar tilkynntu nýjan varnarsáttmála. Erlent 22. september 2021 18:35
R. Kelly mun ekki bera vitni í eigin máli Tónlistarmaðurinn R. Kelly lýsti því yfir við dómara í dag að hann muni ekki bera vitni í dómsmáli sínu. Kelly er ákærður fyrir mansal og fjölda kynferðisbrota. Þetta þýðir að saksóknarar munu ekki fá tækifæri til að spyrja Kelly út í ákæruliðina og þá vitnisburði sem fram hafa komið hjá meintum brotaþolum hans. Erlent 22. september 2021 18:28
Enn einn slagurinn um skuldaþak með yfirvofandi hættu á vanskilum Ekkert samkomulag hefur enn náðst á Bandaríkjaþingi um fjárlög eða nauðsynlega hækkun skuldaþaks ríkissjóðs þegar innan við tvær vikur eru þar til núverandi fjárlagaári lýkur. Bandaríski ríkissjóðurinn gæti jafnframt endað í vanskilum í næsta mánuði sem er talið geta haft afleiðingar sem jafnast á við fjármálahrunið árið 2008. Erlent 22. september 2021 15:02
Nýtt myndband frá Silju Rós: „Plönturnar höfðu visnað eins og ástin þeirra“ Í dag frumsýnum við tónlistarmyndbandið við lagið Mind Stuck on U frá söngkonunni Silju Rós. Lagið er eftir Silju Rós sjálfa og kom út í byrjun árs. Tónlist 22. september 2021 12:00
Trump stefnir frænku sinni og New York Times Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hefur stefnt bróðurdóttur sinni og New York Times vegna umfjöllunar blaðsins um hvernig Trump-fjölskyldan kom sér undan erfðaskatti. Umfjöllunin byggðist á gögnum sem frænka þáverandi forsetans lét blaðamenn fá. Erlent 22. september 2021 09:07
Staðfesta að líkið sé af ungu konunni og að henni hafi verið ráðinn bani Lík sem fannst við þjóðgarð í Wyoming í Bandaríkjunum er af ungri konu sem hvarf þegar hún var á ferðalagi um landið með unnusta sínum í sumar. Dánardómstjóri staðfestir þetta og segir að henni hafi verið ráðinn bani. Erlent 22. september 2021 08:25
Willie Garson er látinn Leikarinn Willie Garson, sem var einna þekktastur fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttaröðinni Sex and the City, er látinn, aðeins 57 ára að aldri. Lífið 22. september 2021 01:23
Náðu sátt í máli gegn konu erindreka sem varð unglingi að bana Fjölskylda Harry Dunn sem lét lífið þegar eiginkona bandarísks erindreka ók hann niður árið 2019 hefur náð sátt í einkamáli sínu gegn konunni vestanhafs. Málið gæti enn endað á borði dómstóla sem sakamál. Erlent 21. september 2021 15:35
Biden lagði áherslu á samvinnu í skugga deilna við bandamenn Joe Biden Bandaríkjaforseti sagði þjóðir heims þurfa að vinna saman sem aldrei fyrr í fyrsta ávarpi sínu á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag. Kastast hefur í kekki á milli Bandaríkjastjórnar og hefðbundinna bandalagsríkja vegna brotthvarfsins frá Afganistan og umdeilds kafbátasamnings við Ástrali. Erlent 21. september 2021 14:52
Húsleit á heimili kærasta ungu konunnar sem hvarf Fulltrúar bandarísku alríkislögreglunnar gerðu húsleit á heimili unnusta Gabrielle Petito sem hvarf þegar þau voru saman á ferðalagi um Bandaríkin í sumar. Til stendur að kryfja lík sem talið er vera af Petito í dag. Erlent 21. september 2021 09:54
Lady Marmalade-söngkonan Sarah Dash er látin Bandaríska söngkonan Sarah Dash, ein stofnenda sveitarinnar Labelle, er látin, 76 ára að aldri. Lífið 21. september 2021 09:47
Maðurinn sem tók upp árásina á Rodney King er látinn George Holliday, pípulagningamaðurinn frá Los Angeles sem tók upp á myndband árás fjögurra bandarískra lögreglumanna á Rodney King árið 1991, er látinn. Erlent 21. september 2021 07:41
Covid fer fram úr spænsku veikinni í Bandaríkjunum Minnst 675 þúsund Bandaríkjamenn hafa dáið vegna Covid-19 frá því faraldur kórónuveirunnar hófst. Það er sambærilegur fjöldi og talið er hafi dáið vegna spænsku veikinnar á árunum 1918 og 1919. Erlent 21. september 2021 06:30
Fyrsti læknirinn ákærður vegna þungunarrofs í Texas Búið er að kæra fyrsta lækninn fyrir að framkvæma þungunarrof í Texas eftir að ný og ströng lög tóku gildi. Alan Braid, læknirinn sem um ræðir, sagði opinberlega frá því í síðustu viku að hann hefði framkvæmt aðgerð sem væri gegn lögunum. Erlent 20. september 2021 22:45
Bóluefni Pfizer virki fyrir fimm til ellefu ára börn Lyfjaframleiðandinn Pfizer tilkynnti í dag að rannsóknir fyrirtækisins hafi sýnt fram á að bóluefni þess veiti börnum á aldrinum fimm til ellefu ára vörn gegn kórónuveirunni. Erlent 20. september 2021 21:35
Sjá fyrir endann á ferðabanni til Bandaríkjanna: „Þetta eru auðvitað miklar gleðifréttir“ Utanríkisráðherra segir öllu muna að nú sjái loks fyrir endann á ferðabanni til Bandaríkjanna og Íslendingar geti ferðast þangað á ný. Bandarísk stjórnvöld hafa ákveðið að leyfa í nóvember bólusettum farþegum frá Schengen-svæðinu að koma aftur til landsins. Bannið hefur nú verið í gildi í eitt og hálft ár. Innlent 20. september 2021 20:30
Vísa hundruðum Haítíbúa úr landi þrátt fyrir ófremdarástand Bandaríkjastjórn flaug á fjórða hundrað Haítíbúum úr landi í gær og kom í veg fyrir að fjöldi annarra kæmist yfir landamærin frá Mexíkó. TIl stendur að senda enn fleiri Haítíbúa til síns heima þrátt fyrir hamfarir og pólitískan óstöðugleika þar. Erlent 20. september 2021 15:54
Bandaríkin slaka á ferðabanni til landsins Yfirvöld í Bandaríkjunum munu frá og með nóvember næstkomandi slaka á ferðabanni til landsins sem verið hefur í gildi frá því í mars á síðasta ári. Fullbólusettir íslenskir ferðamenn munu því að öllum líkindum geta ferðast til Bandaríkjanna á ný eftir langt hlé. Erlent 20. september 2021 14:55
Telja sig hafa fundið lík ungrar konu sem hvarf á ferðalagi með kærastanum Bandaríska alríkislögreglan staðfesti í gær að lík Gabrielle Petito, sem var saknað eftir að hún fór í ferðalag með kærastanum þvert yfir Bandaríkin, hefði að líkindum fundist í Wyoming. Kærasta hennar er nú einnig saknað og fór umfangsmikil leit fram á náttúruverndarsvæði á Flórída um helgina. Erlent 20. september 2021 10:21
Fékk íslenska einangrun í fimmtugsafmælisgjöf Bandarískur embættismaður frá Flórída eyddi fimmtugsafmælisferð sinni til Íslands á farsóttarhóteli. Hann segir dvölina hafa verið erfiða, einkum vegna matarins og að sér hafi liðið eins og heimilisketti á hótelinu. Innlent 19. september 2021 20:20
Sakar Ástrala og Bandaríkjamenn um tvífeldni og lygar Franski utanríkisráðherrann hefur lýst yfir neyðarástandi í samskiptum Frakklands við Ástralíu og Bandaríkin vegna ákvörðunar Ástrala um að rifta skyndilega samkomulagi um kaup á frönskum kafbátum. Frakkar kölluðu sendiherra sína í ríkjunum heim á föstudag. Erlent 19. september 2021 14:04