Veður

Kaldi og skúrir á Suð­vestur­landi

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Hitinn verður á bilinu tvö til níu stig.
Hitinn verður á bilinu tvö til níu stig. Vísir

Veðurstofa Íslands spáir sunnan- og suðvestanátt, fimm til þrettán metrum á sekúndu, eða kalda og skúrum á Suður- og Vesturlandi. Hægari vindur verður á Norður- og Austurlandi.

Hitinn í dag verður á milli 2 til 9 gráður, svalast inn til landsins norðaustantil en mildast við suðurströndina. Í kvöld og í nótt gengur í suðaustan stinningskalda með rigningu sunnan- og vestanlands.

Í fyrramálið verður rigning víða og um fimm til tíu metrar á sekúndu. Norðaustan- og austanlands má búast við hægari vindi og víða bjartviðri. Hitinn verður á bilinu sex til þrettán stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag:

Sunnan 5-13 m/s, hvassast vestanlands. Víða rigning, en bjartviðri um landið norðaustanvert. Hiti 5 til 11 stig.

Á föstudag:

Suðvestlæg eða breytileg átt 5-13 m/s og dálítil rigning eða súld, en skýjað með köflum og úrkomulítið norðan- og austanlands. Hiti 3 til 10 stig, mildast suðaustanlands.

Á laugardag:

Suðvestlæg átt og rigning, en að mestu þurrt norðaustantil. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag:

Suðvestanátt með skúrum eða éljum, en að mestu bjart eystra og kólnandi veður.

Á mánudag:

Útlit fyrir breytileg átt með éljum, en bjartviðri sunnan heiða. Svalt í veðri.

Á þriðjudag:

Líklega norðlæg átt með slyddu eða snjókomu, en bjart með köflum á vestanverðu landinu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×