Sport

Verður líkam­leg og and­leg bar­átta

Stefán Árni Pálsson skrifar
Pétur Már Sigurðsson þegar hann var þjálfari Vestra karlamegin. 
Pétur Már Sigurðsson þegar hann var þjálfari Vestra karlamegin.  Vísir/Hulda Margrét

„Þetta leggst bara mjög vel í mig og alla leikmenn. Þetta er náttúrulega stærsta prófraunin til þessa. Þannig að vonandi erum við bara vel undirbúnar og hérna tilbúnar í þetta. Þetta er náttúrulega bara líkamleg og andleg barátta,“ segir Pétur Már Sigurðsson, þjálfari Grindavíkur í Bónus-deild kvenna, en Íslandsmeistarar Njarðvíkur taka á móti Grindvíkingum í stórleik 6. umferðarinnar í kvöld.

Rætt var við Pétur í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. Grindavík er búið að vinna alla leikina á tímabilinu á meðan Njarðvík hefur tapað einum. Njarðvík er ríkjandi Íslandsmeistari.

En af hverju hefur Grindavík farið svona vel af stað á tímabilinu?

„Ég er náttúrulega með mjög góða leikmenn. Það er ekkert hægt að skafa af því og svo aftur á móti erum við búin að æfa mjög stíft bara síðan í byrjun ágúst. Þannig að eftir þennan leik verður gefið nokkurra daga kærkomið frí. En við ætlum að reyna að klára þetta með stæl, svona fyrsta fjórðunginn af tímabilinu.“

En Pétur gerir sér grein fyrir styrkleika Njarðvíkinga.

„Þær eru ótrúlega vel mannaðar, vel þjálfaðar og með svona leikreynslu á bak við sig og söguna og eru ríkjandi meistarar þannig að þetta er verðugt verkefni. Þó að Dani [Rodriguez] verði ekki með þá verður þetta líkamleg barátta og ekki síður andleg.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×