Skoðun

Heimili á hjólum er líka heimili

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar

Ég hef ásamt öðrum þingmönnum í Flokki fólksins lagt fram þingsályktunartillögu þar sem lagt er til að ríkisstjórninni verði falið að undirbúa og leggja fram frumvarp sem skapi lagagrundvöll fyrir varanlegri búsetu í samþykktum færanlegum búsetueiningum á svæðum sem sveitarfélög hafa sérstaklega skipulagt til slíkrar búsetu. Hún tekur meðal annars til hjólhýsa og húsbíla. Markmiðið er að fólk sem kýs þetta búsetuform geti búið við öryggi og mannsæmandi aðstæður án þess að þurfa stöðugt að óttast um framtíð sína.

Þetta er málefni sem ég þekki vel frá árum mínum í borgarstjórn Reykjavíkur. Barátta hjólabúa fyrir tilverurétti sínum hefur staðið árum saman. Þetta fólk hefur búið við mikla óvissu, tímabundnar lausnir og aðstæður sem enginn ætti að þurfa að sætta sig við.

Frá Laugardal að Sævarhöfða

Um árabil hafði hópur fólks fasta búsetu í hjólhýsum og húsbílum á tjaldsvæðinu í Laugardal. Þegar ákveðið var að hætta að bjóða langtímadvöl þar árið 2023 var fólkinu fundin tímabundin aðstaða við Sævarhöfða.

Þessi lausn átti aðeins að vara í nokkra mánuði en nú eru liðin rúm þrjú ár og fólkið hefur enn ekki fengið varanlega lausn. Aðbúnaðurinn við Sævarhöfða hefur verið ömurlegur. Svæðið var aldrei ætlað til varanlegrar búsetu og nú hefur rafmagn verið tekið af íbúunum til að tryggja að fólkið hafi sig á brott.

Hvar er miskunn borgarstjórnarmeirihlutans?

Miskunnarleysið sem núverandi meirihluti í borgarstjórn sýnir þessu fólki er með ólíkindum. Fyrri meirihluti í borginni hafði samið um aðstöðu fyrir Samtök hjólabúa í Gufunesi, en nýr meirihluti ákvað að rifta þeim samningi einhliða án þess að bjóða íbúunum aðra lóð í staðinn. Að skilja þetta fólk eftir án raunhæfrar lausnar er sannarlega ómanneskjulegt.

Hvert á fólkið að fara? Er það virkilega ásættanleg niðurstaða að vísa fólki frá heimilum sínum án þess að raunhæf lausn sé í sjónmáli?

Borgaryfirvöld hafa vísað til lagalegra hindrana, kostnaðar og öryggissjónarmiða. Þau sjónarmið þarf að taka alvarlega. En þau leysa borgina ekki undan þeirri ábyrgð að sýna fólki mannúð og leita leiða til að tryggja því viðunandi aðstæður.

Á bak við hvert hjólhýsi er manneskja. Hjólhýsin eða húsbílarnir eru heimili fólks, umgjörð um daglegt líf þess, og þar eru kannski allar eigur þess. Það er ekki einungis hægt að skoða mál þessa fólks út frá skipulagi og reglugerðum. Það verður að taka tillit til öryggis og mannlegrar reisnar þessa hóps.

Lög þurfa að taka mið af raunveruleikanum

Núverandi lög og reglur gera ekki með skýrum hætti ráð fyrir varanlegri búsetu í færanlegum búsetueiningum. Sveitarfélög hafa meðal annars vísað til þess að lagagrundvöll skorti til að skipuleggja slík svæði.

Tillagan nær ekki aðeins til hjólhýsa og húsbíla heldur einnig annarra færanlegra búsetueininga sem geta verið raunhæfur og hagkvæmur búsetukostur.

Skoða þarf breytingar á skipulagslögum, mannvirkjalöggjöf og reglum um lögheimilisskráningu. Jafnframt þarf að tryggja öryggi, hreinlæti, nauðsynlega þjónustu og skýra réttarstöðu íbúanna.

Sveitarfélögin halda ákvörðunarvaldinu

Í greinargerð með tillögunni er tekið fram að sveitarfélögin muni áfram ákveða hvort og hvar slík búsetusvæði yrðu skipulögð. Tillagan felur ekki í sér að sveitarfélögin verði skylduð til að útvega svæði fyrir þetta búsetuform. En takist að skapa skýran lagagrundvöll verður ekki lengur hægt að vísa eingöngu til þess að lögin heimili ekki búsetu sem þessa.

Enn er nokkur vegur í land. Tillagan þarf að hljóta brautargengi á Alþingi og eftir það á ríkisstjórnin eftir að skoða til hvaða lagabreytinga þyrfti að grípa til að heimila búsetu sem þessa.

Hugsanlegar lagabreytingar í framtíðinni leysa hins vegar ekki bráðavanda fólksins sem nú hefur verið gert að yfirgefa svæðið á Sævarhöfða. Það er nauðsynlegt að bregðast við þeirri stöðu núna.

Fólk hefur ólíkar þarfir, ólíkan fjárhag og ólíkar óskir um hvernig það vill búa. Við þurfum ekki öll að búa eins. Það eiga allir hins vegar rétt á að lifa við mannsæmandi aðstæður.

Heimili er heimili þótt það standi á hjólum.

Höfundur er þingkona Flokks fólksins.




Skoðun

Skoðun

Allir með

Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar

Sjá meira


×