Skoðun

Þú átt nóg og þú ert nóg

Ragnhildur Katla Jónsdóttir skrifar

Enn og aftur er kominn nóvember. Í rauninni finnst manni ekki svo langt síðan við pökkuðum jólaskrautinu, eða heilsuðum lóunni. En tíminn flýgur. Tíminn sem er eitt af því fáa sem við eigum aldrei nóg af. Tími sem hleypur frá okkur á meðan við hlaupum á eftir hlutum sem við teljum okkur vanta í heimi þar sem föt, leikföng, dót og drasl flæðir upp úr skúffum og út úr geymslum. Á meðan áreiti fyllir skilningarvitin og verslanir sjúga hundrað þúsund kallana út af kortunum okkar, er það samt tíminn sem við viljum alltaf að halda í og reynum að hafa stjórn á.

Nú í nóvember er sérstaklega erfitt að halda í síðustu þræði meðvitundar okkar því áreitið er endalaust. Nóvember er mánuður tilboða og freistinga, okkur er stöðugt talin trú um að við þurfum meira. Auglýsingar hrópa af götum, úr útvarpi, sjónvarpi og beint upp úr vösum okkar. Hver í kapp við aðra til þess að sannfæra okkur um að okkur vanti eitthvað, þó það sé sjaldnast raunin. Það er fullkomlega mannlegt að glepjast af sannfærandi tilboðum og það þarf styrk til þess að synda gegn straumi neyslusamfélagsins. En þessi styrkur býr innra með okkur öllum og það er fjöldi fólks sem er byrjaður að synda á móti.

Nægjusemi snýst ekki um að hafna lífsgæðum heldur að velja þau meðvitað. Tíska breytist og fyrirtæki munu líklegast telja þér trú um að síminn þinn sé úreltur, þótt hann sé fullkomlega nothæfur. Ef við erum þeirrar skoðunar að hamingjuna sé ekki að finna í hlutum heldur í gæðastundum, er þá ekki svolítið sorglegt að sjá eftir verðmætum klukkustundum hverfa á meðan við erum að leita að, vinna fyrir og kaupa hluti sem okkur vantar ekki og enda á að rykfalla í skáp, áður en þeim er ýtt inn í geymslu.

Nægjusamur nóvember er hvatningarátak sem hvetur fólk til að taka stjórnina á eigin lífi og meta sjálft hvað er dýrmætt og hvað ekki. Hvatningarátakið minnir okkur á að við eigum nóg, ef við gefum okkur tíma til að taka eftir því og tíma til að njóta þess sem við þegar eigum. Með nægjusemi minnkar sóunin, draslið, samviskubitið og álagið, bæði á veskið og á hugann.

Þetta er í fimmta sinn sem nægjusamur nóvember breiðir út faðminn til þess að mýkja skothríð auglýsinga sem herja á sjálfsmat okkar. Þú átt nóg og þú ert nóg.

Skráðu þig til þess að fá hvatningu og góð ráð í nóvember á vefsíðu átaksins! https://landvernd.is/naegjusamur-nov/

Með heilbrigðri gagnrýni getum við saman dregið úr ægivaldi neyslunnar og lagt grunn að notalegri og betri framtíð í takt við heilbrigt samfélag og náttúru.

Höfundur er Upplýsingastjóri Landverndar.




Skoðun

Sjá meira


×