Körfubolti

Fyrstur síðan David Robinson var og hét

Valur Páll Eiríksson skrifar
Wembanyama fer mikinn þessa dagana.
Wembanyama fer mikinn þessa dagana. Getty

Victor Wembanyama fór mikinn í 121-111 sigri San Antonio Spurs á Minnesota Timberwolves í nótt.

Frakkinn tók heil 34 skot í leik næturinnar og skoraði 43 stig í sigrinum. Um er að ræða fyrsta leikinn sem Wembanyama tekur yfir 30 skot í sigri Spurs.

Hann varði einnig fimm skot og er fyrsti Spursarinn til að skora í það minnsta 40 stig og verja fimm skot í sama leik frá því að goðsögnin David Robinson gerði það árið 1996, fyrir 30 árum síðan. Hann er jafnframt fyrsti leikmaðurinn í NBA-deildinni frá því að Joel Embiid afrekaði það árið 2022.

„WemVP“ hljómaði um höllina er Wembanyama tók vítaskot í þriðja leikhluta og ljóst að stuðningsmenn Spurs kalla eftir því að Frakkinn verði valinn besti leikmaður deildarinnar (MVP).

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×