Lífið

Extreme Chill í febrúar í stað septem­ber

Lovísa Arnardóttir skrifar
Pan hefur skipulagt hátíðina sautján sinnum.
Pan hefur skipulagt hátíðina sautján sinnum. Aðsend

Tónlistarhátíðin Extreme Chill fer fram í Reykjavík dagana 11.-13. febrúar. Þetta er 18. árið sem hátíðin er haldin. Dagskráin verður kynnt föstudaginn 18. desember.

„Með því að færa hátíðina frá september yfir í dimmasta hluta vetrarins viljum við skapa henni enn skýrari sérstöðu og nýta einstakt andrúmsloft Reykjavíkur á þessum árstíma. Myrkur, norðurljós og íslenskt vetrarlandslag verða hluti af upplifun hátíðarinnar og kallast á við tónlist og sjónræna miðla,“ segir Pan Thorarensen skipuleggjandi hátíðarinnar.

Hátíðin er ein sú langlífasta af þeim tónlistarhátíðum sem hafa verið haldnar á Íslandi og hefur verið starfandi nær óslitið síðustu sautján árin.

Tónlistarmaðurinn Seefeel á Extreme Chill. Aðsend

„Hátíðin hefur vakið mikla athygli víða um heim og er orðin mjög mikilvægur partur af tónlistarsenu Íslands með sína sérstöðu sem er fókus á tilraunakennda tónlist, raf- og sveimtónlist.“

Pan segir hátíðina og starfið í kringum hana hafa leitt af sér fjölda útgáfa, tónleika, ferðalaga erlendis og samstarf við tónlistarmenn að ótöldum ógleymanlegum uppsetningum á hátíðum erlendis og innanlands sem eru bein afleiðing hátíðarinnar.

Antonina Nowacka á Extreme Chill.Aðsend

„Þriggja daga alþjóðleg raf- og tilraunatónlistarhátíð í Reykjavík þar sem íslenskt og erlent tónlistarfólk mætist í íslenskum vetri. Myrkur, norðurljós og vetrarstemning borgarinnar skapa hátíðinni einstaka umgjörð.”

Miðasala er á midix.


Tengdar fréttir

DJ Krush á Extreme Chill

DJ Krush stígur á svið í Gamla bíói þann 3. september. Viðburðurinn er hluti af Extreme Chill-tónlistarhátíðinni sem fer fram 3.–6. september 2026.

Raf­tón­listar­hátíðin Extreme Chill haldin í sex­tánda sinn næstu helgi

Tónlistarhátíðin Extreme Chill fer fram í sextánda sinn í Reykjavík dagana 3.-7. september. Meðal listamanna sem koma fram á hátíðinni í ár eru John Maus, Romeo Poirier, Antonina Nowacka og Patricia Wolf. Hátíðin fer fram á sex stöðum í miðbænum og verður skemmtistaðurinn Húrra enduropnaður sérstaklega fyrir hátíðina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.