Innlent

Fjöru­tíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins

Lovísa Arnardóttir skrifar
Eftir að hafa afplán þriðjung refsingar má vísa erlendum brotamönnum úr landi.
Eftir að hafa afplán þriðjung refsingar má vísa erlendum brotamönnum úr landi. Vísir/Vilhelm

Á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 lauk heimferða- og fylgdadeild ríkislögreglustjóra (HOF) afgreiðslu á 271 verkbeiðni um fylgd eða brottvísun úr landi. Flest mál varða einstaklinga í ólögmætri dvöl og þar á eftir fangaflutninga eða framsal. Fjörutíu var fylgt úr landi á fyrstu níu mánuðum ársins sem höfðu afplánað þriðjung refsidóms.

Í tilkynningu frá embætti ríkislögreglustjóra í gær kom fram að flestar verkbeiðnir hafi tengst einstaklingum í ólögmætri dvöl, alls 117 mál, sem svarar til 43 prósenta allra lokinna verkbeiðna á tímabilinu.

Skýrsla HOF vegna fylgda. Ríkislögreglustjóri

Ólögmæt dvöl er þegar útlendingur dvelst hér á landi án tilskilinna heimilda eða getur ekki sýnt fram á heimild sína til dvalar. 

Flestir frá Albaníu

Í skýrslu embættisins eru tilgreind ríkisföng þeirra sem vísað er úr landi og er Albanía þar algengust, eða alls 37 manns, og svo Rúmenía, nítján manns. Þar á eftir eru sautján frá Spáni, sextán frá Póllandi og svo fjórtán Grikkir. Algengast var að fólki væri vísað til Albaníu, svo Grikklands og Spánar.

Næst á eftir komu mál tengd sakaferli, fangaflutningum og framsölum, alls 89 mál (33%). Þar af vörðuðu 40 fylgdir einstaklinga sem höfðu afplánað þriðjung refsidóms síns og voru því nær helmingur þessa málaflokks. Hælismál voru 55 talsins (20%) en aðstoð við frávísun á landamærum nam níu málum.

70 prósent í fylgd

Í tilkynningu kemur fram að af þessum 271 verkbeiðnum hafi 189 verið framkvæmdar með fylgd sem jafngildir um 70 prósentum verkefnanna. Í fylgdarlausum ferðum fylgja lögreglufulltrúar HOF viðkomandi í flug og ganga úr skugga um að viðkomandi yfirgefi landið en í fylgd fara fulltrúarnir með í flugið og fylgja viðkomandi á áfangastað eða í tengiflug á áfangastað.

Til samanburðar er í tilkynningu ríkislögreglustjóra bent á að í fyrra hafi alls verið afgreiddar 389 verkbeiðnir og þá hafi hælismál verið stærsti málaflokkurinn með um helming allra verkefna.

Gjörbreytt mynd

Fyrstu níu mánuði ársins 2026 hafi myndin hins vegar breyst og mál vegna ólögmætrar dvalar tekið við sem stærsti málaflokkur deildarinnar á sama tíma og vægi hælismála hafi dregist saman.

Þá kemur fram í tilkynningu að við lok septembermánaðar hafi enn verið 154 verkbeiðnir til afgreiðslu. Af þeim tengjast 82 frávísun eða brottvísun úr hæliskerfi, 44 brottvísun einstaklinga í ólögmætri dvöl og 21 mál var vegna fanga, sakaferla eða framsala. Flest opin mál voru í virkri vinnslu en hluti þeirra beið eftir ferðaskilríkjum eða öðrum nauðsynlegum gögnum.

Flestar opnar beiðnir, eða 23, tengjast einstaklingum frá Írak og svo fimmtán einstaklingum frá Venesúela.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×