Innlent

Stakk af frá far­gjaldi leigu­bíls

Lovísa Arnardóttir skrifar
Ekki kemur fram hvar stungið var af en tilkynnt var um brotið til stöðvar 4 sem sinnir Norðlingaholti, Mosfellsbæ, Grafarholti og Árbæ.
Ekki kemur fram hvar stungið var af en tilkynnt var um brotið til stöðvar 4 sem sinnir Norðlingaholti, Mosfellsbæ, Grafarholti og Árbæ. Vísir/Anton Brink

Fjórir voru vistaðir í fangageymslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í morgun. Einn var handtekinn fyrir að hlýða ekki fyrirmælum lögreglunnar og þá kemur einnig fram í dagbók að lögregla hafi verið kölluð til þegar einstaklingi var vísað úr félagslegu dvalarúrræði.

Í dagbók kemur einnig fram að lögregla hafi sinnt fjölda verkefna vegna aksturslagabrota. Einn var handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum auk þess að vera ekki með ökuréttindi. Þá voru aðrir ökumenn kærðir fyrir akstur án ökuréttinda, gegn rauðu ljósi og fyrir að aka of hratt. Einn ók á 118 þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund.

Þá var einn handtekinn fyrir húsbrot af lögreglumönnum á stöð 4 sem sinna Árbæ, Norðlindaholti og Grafarholti. Á sömu stöð var einn tilkynntur vegna þess að hann stakk af frá fargjaldi leigubíls.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×