Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar 27. október 2026 08:00 Hjálmar Bogi Hafliðason kennari á Húsavík, fyrrverandi varaþingmaður Framsóknarflokksins og sveitarstjórnarmaður hefur lagt ýmislegt til í menntamálum í gegnum tíðina. Hann hefur m.a. skrifað um að takmarka ætti snjallsímaeign barna og gott ef ekki mælt með símabanni í skólum sem varaþingmaður Framsóknarflokksins. Mig minnir að hann hafi lagt til samræmt og skýrara námsmat og bætta lestrakennslu en án nákvæmrar forskriftar eða lausnar. Hann ætti því að fagna þeim fjölmörgu aðgerðum sem Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra hefur kynnt og vinnur nú að að koma í framkvæmd. Hún er einmitt búin að hrinda í framkvæmd ýmsu af því sem frumkvöðullinn Hjálmar Bogi hefur lagt til. Hún er meðal annars að innleiða símafrí í skólum og aldurstakmarkanir barna á samfélagsmiðlum. Þá lítur loksins út fyrir að húsakostur verknámsdeilda framhaldsskóla víða um land verði stækkaður, en allar þær framkvæmdir höfðu steitt á skeri hjá fyrrverandi ríkisstjórnum Framsóknarflokksins, Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna. Eftir að Inga beitti sér fyrir samningum við sveitarfélögin sjálf um uppbygginguna með 60 prósenta kosnaðarhlutdeild ríkisins, verða verknámsdeildirnar loksins stækkaðar eftir margra ára fimbulfamb fyrri stjórna. Pólitísk niðurrifsstarfsemi Í stað þess að fagna fjölmörgum aðgerðum til framfara ráðast Hjálmar Bogi og margir meðreiðarsveina hans í pólitíska niðurrifsstarfsemi og persónulegt skítkast. Fyrirfram hefði ég haldið að skólafrömuðurinn myndi fagna framgangi þessara góðu mála en svo er ekki. Þess í stað skrifar hann hverja beiskjublandna greinina á fætur annarri þar sem alger aukaatriði í útfærslu mála eru gerð að aðalatriði. Til að mynda hvar og hvernig eigi að geyma síma barnanna og hver eigi að bera ábyrgð ef símunum yrði stolið og fleira í þeim dúr. Nú stendur yfir vinna við að útfæra nýtt námsmat þannig að nemendur í grunnskólum fái framvegis einkunnir í tölum í stað bókstafa og verður byrjað á því fyrir nemendur í 10. bekk grunnskóla næsta vor. Þetta er gert til að auka gagnsæi og samræmi á milli skólastiga þannig að bæði börn og foreldrar eigi auðveldara með að skilja framvindu nemenda. Sumir skólar hafa meira að segja nú þegar tekið upp talnakerfið og lagt bókstafa kerfið niður við mikla ánægju nemenda, foreldra og kennara. Í nýrri grein gagnrýnir Hjálmar Bogi mennta- og barnamálaráðherra persónulega. Sakar hana um gerræði á sama tíma og ráðuneytið væri enn að vinna að breytingum á aðalnámsskrá sem enn lúti bókstafakerfinu. Aðalnámsskráin er viðamikið plagg sem ekki verður allt endurskoðað á einum vetri. En Inga Sæland hefur ákveðið að byrja með endurskoðun á þeim hluta sem lýtur að einkunnargjöfinni sjálfri, þannig að nemendur og foreldrar eigi auðvelt með að fylgjast með stöðu og framvindu nemenda. Að auki er Inga að beita sér fyrir því að komið verði á fót samræmdum gagnagrunni þannig að upplýsingar um nemendur fylgi þeim á milli skóla. Þannig verði auðveldara að greina þá nemendur sem þurfa á auknum stuðningi að halda og styðja við framúrskarandi nemendur þannig að þeir fái notið sín. Staðan eftir áratuga stjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks Framganga Hjálmars bendir ekki til mikils vilja til endurbóta á menntakerfinu eftir allt saman. Það hefur hins vegar ekki farið framhjá neinum sem fylgist með skólamálum að staðan er mjög alvarleg á mörgum sviðum þótt margt gott sé auðvitað stað í menntakerfinu. Hátt í helmingur nemenda hefur til að mynda ekki grunnhæfni í lesskilning eftir 10 ára nám í grunnskóla. Það gefur augaleið að það er ekki ásættanlegt og að ekki verður búið við óbreytt ástand. Framsóknarflokkurinn fór með stjórn menntamálaráðuneytisins síðustu sjö árin áður en núverandi ríkisstjórn tók við og þar af stýrði Lilja Alfreðsdóttir núverandi formaður flokksins ráðuneytinu í fjögur ár. Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn bera sameiginlega mikla ábyrgð á þeirri stöðu sem uppi er í menntakerfinu því á síðustu rúmu 40 árum hafa þessi flokkar farið með stjórn menntamálaráðuneytisins í 33 ár. Inga Sæland hefur hins vegar einbeitt sér að því að horfa til framtíðar með hagsmuni barnanna að leiðarljósi vegna þess að það eru fyrst og fremst börnin sem hafa liðið fyrir fjölmargar brotalamir í menntakerfinu. Inga vinnur að breytingum sem styrkja kennslu í bæði lestri og raungreinum (STEM) og breytingum sem auka stuðning við börn sem þurfa á viðbótarstuðningi að halda. Hún er að innleiða í skrefum einkunargjöf sem bæði nemendur og foreldrar skilja og er í samræmi við námsmat í framhalds-, verkmennta-, og háskólum. Í stað þess að gera mennta- og barnamálaráðherra upp fávisku, vafasamar hvatir og illan hug til bæði kennarastéttarinnar og barna, ættu allir þeir sem vilja nauðsynlegar umbætur börnunum til hagsbóta, að leggjast á árar með Ingu Sæland. Það er til háborinnar skammar hvernig margt málsmetandi fólk hefur ítrekað ráðist að Ingu með persónulegum svívirðingum þegar hún er af mikilli einlægni og elju að byggja upp betra, gagnsærra og sanngjarnara menntakerfi. Það er heldur ekki til marks um mikla framsýni að hlaupa stöðugt í vörn fyrir kerfi sem ekki er að skila þeim árangri sem eðlilegt er að ætlast til. Í stöðuga vörn fyrir einkunnarkerfi sem foreldrar og börn hafa ítrekað kallað eftir breytingum á. Hvaða tilgangi gegnir slíkt kerfi og hverjum þjónar það? Fá ríki verja hlutfallslega meiri fjármunum til menntamála en Ísland. Það er þess vegna eðlilegt og sjálfsagt að gera þá kröfu að þeir miklu fjármunir skili framúrskarandi árangri. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurjón Þórðarson Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Sjá meira
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun