Fótbolti

Viktor ná­lægt sigurmarki en FCK gefur eftir

Sindri Sverrisson skrifar
Svekkjandi jafntefli hjá Viktori Bjarka og félögum í kvöld.
Svekkjandi jafntefli hjá Viktori Bjarka og félögum í kvöld. Getty/Kristian Tuxen Ladegaard

Íslendingaliðið FC Kaupmannahöfn varð að sætta sig við 1-1 jafntefli við OB á heimavelli í kvöld í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta og mistókst þar með að endurheimta toppsætið.

Viktor Bjarki Daðason kom inná sem varamaður á Parken í kvöld þegar hálftími var til stefnu og FCK marki undir.

Samkvæmt dönskum miðlum lét Viktor varnarmenn OB hafa mikið fyrir hlutunum en það var annar varamaður, Birger Meling, sem skoraði jöfnunarmarkið á 77. mínútu.

Viktor var svo nálægt því að skora sigurmark, sérstaklega í lok leiks þegar hann fékk gott skallafæri en náði þó ekki að nýta það.

FCK hefur nú spilað þrjá leiki í röð án sigurs og er tveimur stigum á eftir Midtjylland á toppi deildarinnar, með 26 stig eftir 12 leiki. OB er í 7. sæti með 14 stig.

Rúnar Alex Rúnarsson var á varamannabekk FCK í kvöld líkt og oftast áður á leiktíðinni en Gunnar Orri Olsen, sem er aðeins 18 ára líkt og Viktor, var ekki í leikmannahópnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×