Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar 26. október 2026 11:30 Við sem búum á Austurlandi tökum þátt í að fjármagna sameiginlega þjónustu landsmanna rétt eins og aðrir. Stór hluti þeirrar þjónustu og starfsemi er á höfuðborgarsvæðinu. Þar eru margar helstu stofnanir ríkisins og þangað liggur leið okkar til að sækja fjölbreytta þjónustu, menningarviðburði og íþróttastarf. Sambærileg staða blasir við íbúum annarra landshluta sem búa fjarri Reykjavík. Það geta verið góð rök fyrir því að sameina sérhæfða starfsemi á einum stað. En þá þarf líka að tryggja að fólkið sem býr annars staðar geti sótt hana. Þjónusta sem við fjármögnum úr sameiginlegum sjóðum þarf að vera raunhæfur kostur fyrir okkur öll, óháð búsetu. Loftbrú var komið á til að bæta aðgengi íbúa landsbyggðarinnar að miðlægri þjónustu. Fyrirhugaðar breytingar þurfa að vera metnar út frá því markmiði. Verður auðveldara eða erfiðara fyrir fólk að sækja þessa þjónustu? Langur fyrirvari tryggir ekki ódýrt flug Upphaflega var boðað að 40% afsláttur myndi víkja fyrir 7.000 króna stuðningi á hvern fluglegg um áramótin. Ráðherra hefur síðan sagt að til skoðunar sé að hækka fjárhæðina í 9.000 krónur. Það er skref í rétta átt, en breytir ekki því að fastur stuðningur fylgir ekki verði flugmiðans. Tökum raunverulegt verðdæmi úr bókunarkerfi Icelandair: flug frá Egilsstöðum til Reykjavíkur 12. mars 2027 og til baka 14. mars. Verðið í Economy Flex er 49.475 krónur, þótt ferðin sé ekki fyrr en eftir rúma fjóra mánuði. Miðað við þetta verð fyrir afslátt myndi farþeginn greiða 29.685 krónur með 40% Loftbrúarafslætti. Með 7.000 króna stuðningi á hvorn fluglegg yrði greiðslan 35.475 krónur, eða 5.790 krónum hærri. Jafnvel með 9.000 króna stuðningi yrði ferðin 1.790 krónum dýrari en með núverandi fyrirkomulagi. Þetta er eitt verðdæmi, en það sýnir að breytingin getur aukið kostnað þótt ferð sé skipulögð löngu fyrir fram. Ofan á flugið getur svo bæst gisting og annar ferðakostnaður. Það er heldur ekki ódýrt að velja bílinn Langar vegalengdir kalla á mikil eldsneytisútgjöld og fleiri kílómetra sem greiða þarf gjald fyrir. Hærra eldsneytisverð í heimabyggð getur aukið þann kostnað enn frekar. Þá er ótalinn tíminn sem fer í ferðina. Miðað við um níu klukkustunda akstur frá Reyðarfirði til Reykjavíkur fara um átján klukkustundir í akstur fram og til baka. Það getur þýtt fleiri fjarvistir frá vinnu og meiri röskun á fjölskyldulífi. Sparnaður sem getur orðið dýrkeyptur Árið 2025 stóð Austurland undir um fjórðungi vöruútflutnings landsins, þótt hér byggju aðeins um 3% þjóðarinnar. Á bak við þessi verðmæti er fólk sem þarf húsnæði, skóla, þjónustu og greiðar samgöngur. Hér eru góð atvinnutækifæri, húsnæði á viðráðanlegu verði og öflugt samfélag. Til að halda áfram uppbyggingu og auka verðmætasköpun þarf bæði að fólk vilji búa hér áfram og að fleiri sjái sér framtíð á Austurlandi. Aðgangur að þjónustu, menningu og fjölbreyttu samfélagslífi skiptir þar máli. Ef aukinn ferðakostnaður verður til þess að fólk veigrar sér við að flytja austur getur orðið erfiðara að manna störf hjá fyrirtækjum og opinberum stofnunum. Það getur aukið kostnað við að halda úti þjónustu og hægt á uppbyggingu og verðmætasköpun. Sparnaður ríkisins á einum stað getur þannig skapað meiri kostnað annars staðar. Ég hvet stjórnvöld til að endurskoða breytingarnar í samtali við sveitarfélögin og fólkið sem þarf að reiða sig á innanlandsflugið. Markmiðið þarf að vera að jafna aðstöðumun og gera fólki kleift að sækja þá þjónustu sem við fjármögnum saman. Við höfum margar góðar ástæður til að búa á Austurlandi. Aðgangur að nauðsynlegri þjónustu þarf að styðja við það val. Höfundur er íbúi á Reyðarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun