Skoðun

Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sál­ræn sár

Sigríður Björk Þormar skrifar

Hefur þú einhvern tíma brugðist óvenju sterkt við einhverju sem önnur manneskja sagði eða gerði? Kannski var það saklaus athugasemd, ákveðinn raddblær eða skilaboð sem var ekki svarað. Skyndilega finnurðu fyrir höfnun, reiði eða sorg sem virðist miklu stærri en tilefnið. En hvað ef viðbrögðin snúast ekki eingöngu um það sem gerðist, heldur líka um eitthvað sem gerðist fyrir löngu?

Við berum öll með okkur sögu. Reynsla okkar, sérstaklega úr nánum tengslum, mótar hvernig við skynjum okkur sjálf og annað fólk. John Bowlby, upphafsmaður tengslakenningarinnar, lýsti því hvernig fyrstu tengsl okkar geta mótað innri hugmyndir um eigið virði, öryggi og það hvort hægt sé að treysta öðrum. Rannsóknir á tengslamynstrum fullorðinna hafa síðan sýnt hvernig þessar hugmyndir geta haft áhrif á tilfinningastjórnun og viðbrögð í nánum samböndum. Sá sem hefur upplifað höfnun getur orðið sérstaklega næmur fyrir skorti á tilfinningalegri nánd. Sá sem hefur þurft að berjast fyrir viðurkenningu getur upplifað gagnrýni sem staðfestingu á eigin vanmætti. Og sá sem hefur alist upp við óöryggi getur túlkað ágreining sem ógn við sambandið.

Hugræn kenning Aarons Becks hjálpar okkur að skilja þetta enn betur. Við bregðumst ekki aðeins við atburðum heldur einnig þeirri merkingu sem við leggjum í þá. Djúpstæð kjarnaviðhorf, svo sem „ég er ekki nógu góð“ eða „fólk yfirgefur mig“, geta haft áhrif á hvernig við túlkum jafnvel hversdagsleg samskipti. Tilfinningar okkar eru því raunverulegar, en túlkun okkar á því hvað olli þeim er ekki endilega alltaf rétt staðsett.

Þetta er mikilvægur greinarmunur. Við getum upplifað höfnun án þess að okkur hafi í raun verið hafnað. Við getum fundið fyrir vanvirðingu án þess að ætlun hinnar manneskjunnar hafi verið að sýna okkur vanvirðingu. Við segjum gjarnan að aðrir „ýti á takkana okkar“.

En höfum við einhvern tíma velt því fyrir okkur hvers vegna þessir takkar eru þarna eða hver á takkana?

Þegar einhver vekur hjá okkur sársaukafullar tilfinningar beinist athyglin gjarnan að viðkomandi. Við viljum að hann breyti hegðun sinni, sýni meiri skilning eða hætti að gera það sem veldur okkur vanlíðan. Við getum jafnvel eytt árum í að reyna að breyta maka, foreldrum eða öðrum nákomnum í þeirri von að okkur muni loksins líða betur. En hvað ef við erum ómeðvitað að ætlast til þess að aðrir græði sár sem þeir ollu ekki?

Þegar við gerum aðra ábyrga fyrir eigin tilfinningalegu öryggi verðum við háð því að þeir hegði sér á ákveðinn hátt. Við þurfum stöðuga staðfestingu, skilning eða viðurkenningu til að finna

fyrir ró. En jafnvel þótt við fáum það sem við biðjum um er ekki víst að gamla sárið grói. Það getur einfaldlega fundið sér nýja kveikju.

Í sálfræðimeðferð er meðal annars unnið með að greina þessi mynstur, skilja uppruna þeirra og þróa nýjar leiðir til að bregðast við. Fyrsta skrefið getur verið að staldra við og spyrja: Hvers vegna særir þetta mig svona mikið? Hvaða merkingu legg ég í hegðun hinnar manneskjunnar? Kannast ég við þessa tilfinningu úr eigin sögu? Þar getur raunveruleg sjálfsvinna hafist.

Auðvitað ber engum að umbera vanvirðingu, ofbeldi eða ítrekuð brot á eigin mörkum. Aðrir bera ábyrgð á sinni hegðun, rétt eins og við berum ábyrgð á okkar. Stundum er heilbrigðasta viðbragðið einmitt að setja mörk eða yfirgefa skaðlegar aðstæður. En við getum ekki alltaf ætlast til þess að aðrir lagfæri það sem lífið hefur sært í okkur. Stundum er manneskjan sem kveikir sársaukann ekki sú sem skapaði sárið. Hún er einfaldlega sú sem snerti það. Áskorunin er að læra að greina þar á milli.

Og kannski er mikilvægasta upphafsspurningin ekki alltaf: Hvers vegna gerir þú mér þetta?

Heldur: Hvað er það innra með mér sem þarfnast heilunar?

Við getum ekki komið í veg fyrir að aðrir ýti á takkana okkar. En við getum lært að skilja hvers vegna þeir eru svona viðkvæmir og bregðast við í samræmi.

Höfundur er sálfræðingur, hjúkrunarfræðingur og doktor í heilbrigðisvísindum.




Skoðun

Sjá meira


×