Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 25. október 2026 18:33 Hafsteinn Dan Kristjánsson hefur meðal annars kennt Evrópu- og stjórnsýslurétt við Oxford-háskóla Vísir/Samsett Hafsteinn Dan Kristjánsson lagaprófessor telur ekki mikinn vafa leika á því að hægt sé að lögfesta svokallaða bókun 35 án þess að brjóta gegn stjórnarskrá. Hann segir þó líklegt að látið verði reyna á málið mjög fljótlega fyrir dómstólum verði frumvarpið samþykkt. „[
Bókun 35] verður aldrei beitt þannig að hún víki til hliðar stjórnarskránni. Stjórnarskráin mun alltaf trompa hana,“ sagði Hafsteinn í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Hart hefur verið tekist á um frumvarpið á Alþingi síðustu vikur. Fyrstu umræðu lauk 6. október og málið fór í kjölfarið til utanríkismálanefndar. Úr röðum stjórnarandstöðunnar hafa komið fram þau sjónarmið að breyta þurfi stjórnarskrá áður en bókun 35 verði innleidd. Ekki erlend lög gegn íslenskum Hafsteinn sagði umræðuna miðast við tvo andstæða póla, annars vegar þeirra sem teldu málið varða sjálft fullveldi Íslands og hins vegar þeirra sem litu á það sem ómerkilegt lagatæknilegt úrlausnarefni. „Sannleikurinn [er] einhvers staðar þarna á milli,“ sagði hann. Hafsteinn sagði mikilvægt að leiðrétta þá hugmynd að frumvarpið fæli einfaldlega í sér að erlend lög fengju forgang fram yfir íslensk lög. Bókun 35 gangi út á að ríki EES tryggi innan eigin réttarkerfis að reglur sem innleiða skuldbindingar samkvæmt EES-samningnum hafi forgang ef þær stangast á við aðrar innlendar reglur. „Hér erum við bara að tala um tvö íslensk lög sem rekast á og við þær aðstæður hvor þeirra á að ganga framar hinu,“ sagði Hafsteinn. EES-réttur verði ekki sjálfkrafa að íslenskum lögum. Alþingi þurfi eftir sem áður að innleiða reglurnar, eða ráðherra með stjórnvaldsfyrirmælum þegar heimild sé til þess. Hafsteinn tók fram að ef frumvarpið kvæði raunverulega á um að erlend lög giltu hér á landi og gengju framar íslenskum lögum myndi það að hans mati fara gegn stjórnarskrá. „En það er ekki það sem er verið að gera í þessu frumvarpi,“ sagði hann. Fæðingarorlofsmálið hafi breytt stöðunni Hafsteinn vék einnig að þeirri röksemd að núverandi fyrirkomulag hefði gengið í rúm þrjátíu ár og því væri óþarfi að breyta því. Hann sagði mikilvæga breytingu hafa orðið með dómi Hæstaréttar í svokölluðu fæðingarorlofsmáli. Hæstiréttur komst árið 2024 að þeirri niðurstöðu að 3. grein EES-laganna fæli ekki í sér almenna forgangsreglu í samræmi við bókun 35. Sú niðurstaða er meðal þess sem ríkisstjórnin vísar nú til sem ástæðu fyrir lagabreytingunni. Hafsteinn sagði að við upphaflega innleiðingu EES-samningsins hefði meðal annars verið treyst á þá íslensku lögskýringarreglu að sérlög gengju framar almennum lögum. Í fæðingarorlofsmálinu hefði hins vegar komið fram að almennar reglur EES-samningsins um meðal annars frjálst flæði gætu sjálfar talist almennar reglur. „Í raun og veru er bara seinni stoðin við inleiðinguna hálfpartinn kippt úr sambandi,“ sagði Hafsteinn. Afleiðingin gæti orðið sú að erfiðara yrði með tímanum að byggja á réttindum samkvæmt EES-samningnum. ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, vísaði í lok september máli gegn Íslandi til EFTA-dómstólsins vegna þess að stofnunin telur bókun 35 ekki hafa verið innleidda með fullnægjandi hætti. Hafsteinn sagði frumvarpið ekki binda hendur Alþingis til framtíðar. Alþingi gæti síðar samþykkt lög sem gengju gegn EES-skuldbindingu, en þyrfti þá að gera það með skýrum hætti. „Það væri bara ákvörðunaratriði, pólitískt ákvörðunaratriði Alþingis,“ sagði Hafsteinn. Þá yrði Ísland mögulega brotlegt við EES-samninginn en ákvörðunin væri engu að síður tekin af Alþingi sjálfu. Hafsteinn telur því ekki að frumvarpið feli í sér óhóflega takmörkun á löggjafarvaldi þingsins.
Bókun 35 EES-samningurinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira