Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Áróra L Davíðsdóttir skrifar 24. október 2026 10:27 Um sjötíu þúsund lögreglumenn verða við störf í Frakklandi á morgun þar sem yfirvöld reyna að stemma stigu við mikilli mótmælaöldu sem hefur á síðustu vikum farið vaxandi. EPA Boðað hefur verið til mótmæla bæði í Frakklandi og á Ítalíu síðdegis í dag. Mikill viðbúnaður lögreglu og herliða verður í ríkjunum tveimur til taks fari mótmælin úr böndunum.
Um sjötíu þúsund lögreglumenn verða við störf í Frakklandi á þar sem yfirvöld reyna að stemma stigu við mótmælaöldu sem hefur farið vaxandi á síðustu vikum. Hún náði hámarki sínu um síðustu helgi þegar fjöldi fólks var handtekinn. Sjá einnig: Mótmælaalda í Evrópu 2026 Nú búa yfirvöld og landmenn sig fyrir aðra helgi mótmæla en víða hefur verið neglt fyrir glugga verslana í miðborg Parísar og hefur Louvre-safninu verið lokað, að því er kemur fram á heimasíðu safnsins. Sömuleiðis hefur mörgum neðanjarðarlestarstöðvum í borginni verið lokað. „Við munum sýna enga linkind gagnvart skemmdarvörgunum, gripdeildarmönnunum og öllum þeim sem beita ofbeldi,“ er haft eftir Laurent Nuñez innanríkisráðherra Frakklands í umfjöllun BBC. Emanuel Macron fyrirskipaði í vikunni að aðeins mótmæli skipulögð af viðurkenndum verkalýðsfélögum yrðu leyfð í dag en í öðrum borgum, þar á meðal Lyon, Nice og Montpellier, hafa allar samkomur verið bannaðar. Í miðju óeirðanna hefur Marie Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar, boðað til landsfundar flokksins í Orléans sunnan við París bæði í dag og á morgun. Boðað hefur verið til mótmæla í tengslum við fundinn í Orléans klukkan hálf ellefu í dag segir í frétt DR um málið. Mótmælin séu gegn „kynþáttahatri, fasisma og heimsvaldastefnu.“ Útgöngubann og fresta stórleik Yfirvöld í Orléans eru sögð á varðbergi og hefur borgarstjórinn Serge Grouard sett útgöngubann á börn yngri en 15 ára. Hefst það klukkan 21 í kvöld og stendur til klukkan sex í fyrramálið. Þá hefur stórleik Paris Saint-Germain og Lyon í frönsku deildinni í knattspyrnu verið seinkað um sólarhring vegna mótmælanna. Leikurinn átti að fara fram annað kvöld á Parc des Princes-leikvanginum í París en verður þess í stað spilaður á mánudagskvöld. Herlið sent til Mílanó Á Ítalíu hefur verið boðað til mótmæla í átta borgum og hefjast þau klukkan 15 í dag. Fimm hundruð hermenn hafa verið sendir til Mílanóborgar vegna mótmælanna. Einnig er búist við mótmælum í Austurríki, Spáni, Portúgal, Albaníu og á Írlandi. Viðbúnaður herliðs við Dómkirkjuna í Mílanó.EPA Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað víðs vegar um Evrópu á undanförnum dögum. Mótmælin hafa teygt anga sína víða um heimsálfuna en þau beinast flest gegn hækkandi verðlagi og samdrætti í opinberri þjónustu. Í Frakklandi, Ítalíu og Albaníu hafa mótmæli þessi orðið að óeirðum með tilheyrandi skemmdum og handtökum. Hér að neðan má lesa nánar um mótmælaölduna. Fréttin verður uppfærð.
Mótmælaalda í Evrópu 2026 Ítalía Frakkland Tengdar fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Í kjölfar mikilla óeirða sem brutust út í ítölsku borginni Mílanó um helgina hafa óstaðfestir orðrómar verið í linnulausri dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem varað er við yfirvofandi árás á skóla og jafnvel hópnauðgunum. Íslenskar námskonur í borginni segjast hafa verið sendar fyrr heim úr skólanum í dag vegna skjáskota sem ganga manna á milli. Þær kveðast óttaslegnar og segjast ekki vita hverju þær eigi að trúa. 19. október 2026 23:36 Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Íslenskur kennari við Sorbonne-háskólann í París segir mótmælin þar að mestu hafa farið friðsamlega fram. Mótmæli stúdenta eigi fátt sameiginlegt með þeim óeirðum sem hafa geisað undanfarna daga. Mótmælin hafi sett kennslu hans úr skorðum og nemandi hafi misst hendi í átökum við lögreglu. 19. október 2026 11:59 Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur hvatt mótmælendur til stillingar og róar vegna óeirða víða um Frakkland um helgina. Ekkert réttlæti það ofbeldi sem hafi átt sér stað. 19. október 2026 00:06 Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Sjá meira
Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Í kjölfar mikilla óeirða sem brutust út í ítölsku borginni Mílanó um helgina hafa óstaðfestir orðrómar verið í linnulausri dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem varað er við yfirvofandi árás á skóla og jafnvel hópnauðgunum. Íslenskar námskonur í borginni segjast hafa verið sendar fyrr heim úr skólanum í dag vegna skjáskota sem ganga manna á milli. Þær kveðast óttaslegnar og segjast ekki vita hverju þær eigi að trúa. 19. október 2026 23:36
Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Íslenskur kennari við Sorbonne-háskólann í París segir mótmælin þar að mestu hafa farið friðsamlega fram. Mótmæli stúdenta eigi fátt sameiginlegt með þeim óeirðum sem hafa geisað undanfarna daga. Mótmælin hafi sett kennslu hans úr skorðum og nemandi hafi misst hendi í átökum við lögreglu. 19. október 2026 11:59
Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur hvatt mótmælendur til stillingar og róar vegna óeirða víða um Frakkland um helgina. Ekkert réttlæti það ofbeldi sem hafi átt sér stað. 19. október 2026 00:06