Viðskipti innlent

Pólfarinn verður yfir starfs­stöðvum á jöklum

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Vilborg Arna hefur tekið við nýju starfi.
Vilborg Arna hefur tekið við nýju starfi.

Vilborg Arna Gissurardóttir, sem þekktust er fyrir að hafa gengið ein á suðurpólinn, hefur verið ráðin rekstrarstjóri yfir starfsstöðvum Íslenskra Fjallaleiðsögumanna við Sólheimajökul, Mýrdalsjökul og Skaftafell.

Vilborg tekur við starfinu af Steinari Rafni Garðarssyni í byrjun nóvember og fellur það undir afþreyingar- og ævintýrasvið Icelandia. Hún er landsþekkt fyrir afrek sín á fjöllum og ís en árið 2013 gekk hún ein síns liðs á skíðum á suðurpólinn. Árið 2017 varð hún fyrst íslenskra kvenna til að klífa á topp Everest.

Hún hefur að baki þrjátíu ára reynslu í ferðaþjónustu og hefur starfað sem leiðsögumaður á hálendi Íslands og á jökuli frá árinu 2003. Hún stofnaði og rak fyrirtækið Tindar Travel í áratug. Hún er með MS-gráðu í hamfarastjórnun frá Háskólanum á Bifröst, BA-gráðu í ferðamálafræði frá Háskólanum á Hólum og MBA-gráðu frá Háskóla Íslands.

„Vilborg Arna hefur allan sinn feril lagt áherslu á öryggi, skilvirkan rekstur og framúrskarandi upplifun gesta við krefjandi aðstæður og það er einmitt sú blanda sem starfsemi okkar byggir á. Við erum afar ánægð að fá hana til liðs við okkur og sannfærð um að reynsla hennar og þekking muni styrkja teymið okkar hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum og Icelandia,“ er haft eftir Höskuldi Elefsen, framkvæmdastjóra afþreyingar- og ævintýrasviðs Icelandia, í tilkynningu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×