Skoðun

Sátt um hvað? Of­beldi er ekki á­greiningur

Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar

Í viðtali við Vísi 23. október segir Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu, tímabært að endurskoða lögbundna sáttameðferð í málum þar sem ofbeldi hefur komið við sögu. Jafnframt segir hún embættið meðvitað um að gerendur geti nýtt umgengnismál til áframhaldandi stjórnunar. Þá vaknar óhjákvæmileg spurning: Ef vandinn er þekktur, hvers vegna hefur ekki verið brugðist við honum af meiri festu?

Þegar ofbeldi er kallað ágreiningur hverfur ábyrgð gerandans

Ágreiningur og ofbeldi eru ekki tvær hliðar á sama máli, heldur eðlisólík fyrirbæri. Ágreiningur felur í sér ólík sjónarmið eða hagsmuni sem aðilar geta leitast við að leysa með samræðum og málamiðlunum. Þvingandi stjórnun byggist hins vegar á valdaójafnvægi þar sem annar einstaklingur beitir ógnunum, ótta, eftirliti eða öðrum stjórnunaraðferðum til að skerða frelsi og sjálfræði hins. Þar er ekki um gagnkvæman samskiptavanda að ræða heldur kerfisbundna valdbeitingu. Þegar ofbeldi er skilgreint sem ágreiningur verður til fölsk mynd af sameiginlegri ábyrgð. Þolandinn er þá krafinn um samstarf við þann sem hefur beitt hann ofbeldi og tilraunir hans til að setja mörk geta verið túlkaðar sem ósveigjanleiki eða samstarfsleysi. Þannig færist athyglin frá hegðun gerandans yfir á viðbrögð þolandans.

Þvingandi stjórnun lýkur heldur ekki endilega við sambúðarslit. Hún getur tekið á sig nýjar myndir þegar gerandinn missir beinan aðgang að þolandanum. Forsjár- og umgengnismál, endurteknar sáttameðferðir, ásakanir til barnaverndar og málaferli geta þá orðið vettvangur áframhaldandi stjórnunar. Með því að misnota úrræði stjórnsýslu og dómstóla getur gerandi viðhaldið áhrifum sínum á líf þolanda og barns, knúið fram samskipti og haldið þeim í viðvarandi varnarstöðu. Ofbeldið hefur þá ekki endilega stöðvast heldur breytt um birtingarmynd og getur haldið áfram með aðkomu þeirra stofnana sem eiga að tryggja vernd.

Sýslumaður viðurkennir að ofbeldismál kalli á aðra nálgun. Samt er sáttameðferð samkvæmt 33. gr. a barnalaga almennt lögbundið skilyrði áður en tiltekin mál fara til úrlausnar. Aðskildir fundir afmá ekki valdaójafnvægið. Enn fremur bannar 48. gr. Istanbúlssamningsins skyldubundna sáttamiðlun í málum um þar sem saga er um ofbeldi. Spurningin er því ekki hvort hægt sé að hafa foreldra í sitt hvoru herberginu, heldur hvers vegna þolandi eigi yfirhöfuð að þurfa að gangast undir sáttaferli við þann sem hefur beitt hann ofbeldi.

Stofnanir sem stjórnunartæki

Sýslumaður viðurkennir að ofbeldismál kalli á aðra nálgun. Samt er sáttameðferð samkvæmt 33. gr. a barnalaga almennt lögbundið skilyrði áður en tiltekin mál fara til úrlausnar. Aðskildir fundir afmá ekki valdaójafnvægið. Enn fremur bannar 48. gr. Istanbúlssamningsins skyldubundna sáttamiðlun í málum um ofbeldi sem samningurinn nær til. Spurningin er því ekki hvort hægt sé að hafa foreldra í sitt hvoru herberginu, heldur hvers vegna þolandi eigi yfirhöfuð að þurfa að gangast undir sáttaferli við þann sem hefur beitt hann ofbeldi.

Í þessu samhengi er sérstaklega varhugavert að túlka ítrekaða ásókn í umgengni saman við ást og umhyggju. Þegar málarekstur er notaður til að knýja fram samskipti eða viðhalda yfirráðum getur hann verið birtingarmynd þvingandi stjórnunar. Umhyggja verður að birtast í hegðun sem tekur mið af öryggi og hagsmunum barnsins.Umhyggja verður ekki metin út frá því hversu fast foreldri sækir rétt sinn, heldur hvernig hegðun þess samræmist öryggi, líðan og hagsmunum barnsins.

Orðræða fagfólks getur einnig smættað ofbeldi. Í opinberri grein Lífs án ofbeldis er lýst að barni sem sagði frá ofbeldi föður hafi verið svarað að hann hefði „bara verið kjáni“. Samtökin gagnrýna jafnframt ráðleggingar um að „horfa til framtíðar“ og að gögnum um ofbeldi sé lýst sem „einhliða gagnaöflun móður“. Þegar reynsla barna er smættuð og verndandi viðbrögð foreldra tortryggð getur stofnanabundinn þolendaskaði orðið að framhaldi ofbeldisins.

Meðvitund án aðgerða verndar engan

Þegar þekkt er að réttarkerfið geti verið misnotað til áframhaldandi þvingandi stjórnunar verður kerfisbundin skráning ofbeldis grundvallarforsenda þess að hægt sé að greina vandann og bregðast við honum. Á árunum 2019–2023 var 2.694 málum vísað í sáttameðferð hjá sýslumanni. Embættið getur gert grein fyrir málafjölda og málalokum en ekki lagt fram heildstæða tölfræði um hversu mörg málanna vörðuðu ofbeldi. Þótt upplýsingar séu skráðar í einstök mál skortir yfirsýn yfir umfangið, endurtekin málaferli og hvernig ofbeldissaga hefur áhrif á málsmeðferð og niðurstöður. Hvernig á stofnun að meta hvort hún verndi börn og þolendur þegar hana skortir grundvallargögn um þá áhættu sem hún segist þekkja?

Þessi staða er sérstaklega ámælisverð í ljósi þess að GREVIO, sérfræðinganefnd Evrópuráðsins, vakti árið 2022 athygli á alvarlegum veikleikum í framkvæmd forsjár- og umgengnismála á Íslandi, meðal annars varðandi skorts á sérþekkingu á ofbeldi, áhættumati og gagnasöfnun. Fjórum árum síðar er því ekki nóg að vísa til áfallamiðaðs verklags eða aukinnar meðvitundar. Embættið þarf að sýna fram á hvaða úrbætur hafa verið gerðar, hvernig þekking og hæfni starfsfólks er tryggð og hvort breytingarnar hafi skilað raunverulegri vernd. Án slíkrar eftirfylgni er hætta á að yfirlýsingar um fagmennsku verði fyrst og fremst vörn fyrir óbreyttu verklagi, fremur en grundvöllur nauðsynlegra umbóta.

Hver ber ábyrgð þegar kerfið bregst?

Lögin setja umgjörðina, en sýslumannsembættið, barnavernd og dómstólar bera hver um sig ábyrgð á eigin framkvæmd. Getur stofnun sem hefur sætt ítrekaðri gagnrýni og jafnframt varið eigin framkvæmd sjálf lagt trúverðugt mat á hvort sú framkvæmd hafi brugðist börnum og þolendum? Eða er einmitt þessi staða skýrasta röksemdin fyrir því að óháð úttekt sé nauðsynleg?

Það þarf sjálfstæða úttekt á framkvæmd sáttameðferðar, skýra undanþágu frá sáttaskyldu í ofbeldismálum, sérhæft áhættumat og verklag sem greinir mögulega misnotkun stofnana til stjórnunar. Það dugar ekki að ætla að breyta lögum ef sama stofnanamenning gerir ofbeldi að ágreiningi, vernd að samstarfsleysi og stjórnunarhegðun að umhyggju.

Ofbeldi verður ekki að ágreiningi þótt það fari í sáttameðferð. Þegar forsjár- og umgengniskerfið verður vettvangur áframhaldandi þvingandi stjórnunar er það ekki þolandinn sem á að sanna samstarfsvilja sinn. Það eru stofnanirnar sem verða að sýna fram á að framkvæmd þeirra tryggi öryggi barna og þolenda, í stað þess að viðhalda því valdaójafnvægi sem þeim ber að bregðast við.

Höfundur er lokaársnemi í MA í félagsráðgjöf til starfsréttinda




Skoðun

Skoðun

7 er ekki lengur 7

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar

Sjá meira


×