Sport

Dag­skráin: Loka­um­ferð Bestu með Doc Zone og Messan í einum pakka

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Víkingar taka við Íslandsskildinum annað árið í röð í beinni á Sýn Sport Ísland 2 í dag.
Víkingar taka við Íslandsskildinum annað árið í röð í beinni á Sýn Sport Ísland 2 í dag. Vísir/Anton

Það eru beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag og kvöld eins og vanalega á laugardögum en þetta er síðasti dagur Íslandsmótsins í fótbolta.

Lokaumferð Bestu deildar karla í fótbolta fer fram í dag þar sem ræðst hvort Akureyrarliðið, KA eða Þór, fellur úr deildinni. Dagurinn endar svo á því að Víkingar taka við Íslandskildinum.

Þórsurum nægir sigur á FH í Kaplakrika en KA-menn þurfa að vinna ÍBV á heimavelli og treysta á að nágrannar þeirra tapi stigum í Hafnarfirði.

Í tilefni dagsins verða Doc Zone og Messan í einum pakka en það er auðvitað verið að spila í ensku úrvalsdeildinni á sama tíma.

Seinna um kvöldið mun Stúkan síðan gera upp tímabilið í Bestu deild karla.

Fyrsti leikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni er á milli Aston Villa og Man. City en dagurinn í enska endar á Lundúnaslag Chelsea og Tottenham.

Andri Lucas Guðjohnsen og félagar í Blackburn Rovers verða í beinni þegar þeir mæta Hollywood-liðinu Wrexham.

Það verður einnig sýnt frá íslensku úrvalsdeildinni í pílukasti.

Í kvöld verður tímataka fyrir Texas-kappaksturinn í Formúlu 1 og það verða líka tvö golfmót í beinni.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir beinar útsendingar á sportstöðvunum í dag.

Sýn Sport Ísland

Klukkan 20.00 hefst Stúkan þar sem farið verður yfir lokaumferð Bestu deildar karla í fótbolta.

Sýn Sport Ísland 2

Klukkan 13.50 hefst bein útsending frá leik FH og Þórs Ak. í Bestu deild karla í fótbolta.

Klukkan 16.05 hefst bein útsending frá leik Víkings og Fram í Bestu deild karla í fótbolta.

Klukkan 19.30 hefst bein útsending frá úrvalsdeildinni í pílukasti.

Sýn Sport Ísland 3

Klukkan 13.50 hefst bein útsending frá leik KR og Breiðabliks í Bestu deild karla í fótbolta.

Sýn Sport Ísland 4

Klukkan 13.50 hefst bein útsending frá leik KA og ÍBV í Bestu deild karla í fótbolta.

Sýn Sport Ísland 5

Klukkan 13.50 hefst bein útsending frá leik Stjörnunnar og Vals í Bestu deild karla í fótbolta.

Sýn Sport

Klukkan 11.10 hefst bein útsending frá leik Aston Villa og Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Klukkan 13.50 hefst sameiginleg útsending Messunnar og Doc Zone þar sem fylgst verður með lokaumferð Bestu deildar og ensku úrvalsdeildinni.

Klukkan 16.15 hefst bein útsending frá leik Chelsea og Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Klukkan 18.35 hefjast Laugardagsmörkin þar sem farið verður yfir alla leiki dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Sýn Sport 2

Klukkan 13.40 hefst bein útsending frá leik Arsenal og Everton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Sýn Sport 3

Klukkan 13.50 hefst bein útsending frá leik Coventry og Fulham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Sýn Sport 4

Klukkan 03.00 hefst bein útsending frá Genesis Championship-golfmótinu á DP World Tour.

Sýn Sport 5

Klukkan 13.50 hefst bein útsending frá leik ÍA og Keflavíkur í Bestu deild karla í fótbolta.

Klukkan 02.00 hefst bein útsending frá BMW Ladies Championship-golfmótinu á LPGA-mótaröðinni.

Sýn Sport Viaplay

Klukkan 11.20 hefst bein útsending frá leik Charlton og Norwich í ensku B-deildinni.

Klukkan 13.50 hefst bein útsending frá leik Blackburn og Wrexham í ensku B-deildinni.

Klukkan 17.25 hefst bein útsending frá þriðju æfingu fyrir Formúlu 1-kappaksturinn í Texas í Bandaríkjunum.

Klukkan 20.45 hefst bein útsending frá tímatöku fyrir Formúlu 1-kappaksturinn í Texas í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×