Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 22. október 2026 14:11 Alma skipaði hópinn í ágúst 2025. Vísir/Vilhelm Vinnuhópur heilbrigðisráðherra lagði fram 42 tillögur til að bæta þjónustu við þá sem eru með ME, langvinnt covid, POTS og skylda sjúkdóma. Ráðast þurfi í töluvert af umbótum, þar á meðal aukna vitundarvakningu um tilvist sjúkdómanna. Vinnan tók mun lengri tíma en upphaflega var gert ráð fyrir.
Skýrsla vinnuhóps sem Alma Möller heilbrigðisráðherra skipaði í ágúst 2025 var birt í dag. Markmið hópsins var að fjalla um fyrirkomulag heilbrigðisþjónustu við einstaklinga sem glíma við sjúkdóma og heilkenni sem kennd eru við ME (Myalgic encephalomyelitis), langvinnt covid og POTS. Þá var umhverfisveikindum bætt seinna meir við verkefni hópsins. Hópurinn átti að skila niðurstöðunni í formi minnisblaðs fyrir 1. desember 2025 en reyndist vinnan umfangsmeiri en gert var ráð fyrir. Því var lykilatriðum og helstu tillögum vinnuhópsins skilað til landlæknis þann 1. júlí 2026. Í hópnum voru heilbrigðisstarfsfólk, landlæknir, sérfræðingar og fulltrúar samtaka þeirra sem glíma við sjúkdómana. Lykilatriðin sem komu í ljós við vinnu hópsins eru meðal annars að sjúklingar sem glíma við sjúkdómana hafi gríðarlega sjúkdómsbyrði miðað við sjúklinga með aðra alvarlega sjúkdóma. Þá reynist sjúkdómarnir mjög dýrir fyrir sjúklinga, fjölskyldur þeirra og samfélagið. Stórefla þurfi heilbrigðis- og félagsþjónustu við sjúklingahópinn auk þess sem bæta þurfi tryggingavernd sjúklinganna. Auk þess telur hópurinn að auka þurfi fjárveitingar til málaflokksins í samræmi við umfang hans og alvarleika. Lagðar eru fram alls konar tillögur til úrbóta hjá heilbrigðisyfirvöldum, félagsmálayfirvöldum, háskólayfirvöldum, Tryggingastofnun, Sjúkratryggingum Íslands og fjármálayfirvöldum. Tillögurnar eru 42 talsins. Meðal þeirra er að auka vitundarvakningu innan heilbrigðisþjónustunnar um eðli og alvarleika sjúkdómanna, efla starfsemi Akureyrarklíníkunnar sem sinni þegar öllum sjúklingahópunum, tryggja að öll húsnæði þar sem heilbrigðisþjónusta sé veitt sé heilnæm til að fólk með umhverfisveiki verði ekki fyrir skaða og koma á fót lífsýnasafni fyrir sjúkdómana. Félagsmálayfirvöld þurfi að tryggja heimilisaðstoð, að börn séu ekki tekin af foreldrum sínum vegna vantrúar fagaðila á tilvist sjúkdómanna á meðan háskólayfirvöld þurfi að efla kennslu um sjúkdómana í heilbrigðisvísindagreinum í háskólum landsins. Lagt er þá til að fjármálayfirvöld stórefli fjármögnun til málaflokksins. Skýrsluna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan. Skýrsla_vinnuhóps_landlæknisPDF2.5MBSækja skjal
Heilbrigðismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sjúkratryggingar Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Fleiri fréttir Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Sjá meira